Segir Keane hræsnara vegna ummæla um Ronaldo Wayne Rooney hefur gagnrýnt fyrrum samherja sinn hjá Manchester United vegna ummæla hans um Cristiano Ronaldo á þessari leiktíð. Enski boltinn 12. nóvember 2022 12:45
Barcelona skoðar tvíeyki Villareal Barcelona, topplið spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, virðist ætla að bæta við sig miðvörðum þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Fótbolti 12. nóvember 2022 12:06
Birgir aftur í KA eftir að Valur íhugaði að fá hann Bakvörðurinn Birgir Baldvinsson mun spila með KA í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar en það virtist nær frágengið að hann myndi enda í Val. Hinn 21 árs gamli Birgir hefur leikið með Leikni Reykjavík á láni undanfarin þrjú tímabil en ávallt verið samningsbundinn uppeldisfélagi sínu KA. Íslenski boltinn 12. nóvember 2022 10:31
Maguire má yfirgefa Man United Samkvæmt áreiðanlegum heimildum breska fjölmiðilsins The Guardian mun Manchester United reyna að selja Harry Maguire næsta sumarið. Félagið keypti hann dýrum dómum sumarið 2019 en hann er ekki í plönum Erik ten Hag sem stendur. Enski boltinn 12. nóvember 2022 09:01
Gladbach í Evrópubaráttu eftir sigur á Dortmund Borussia Mönchengladbach vann 4-2 sigur á Borussia Dortmund í eina leik kvöldsins í þýsku úrvalsdeildinni. Sigur kvöldsins þýðir að Gladbach er komið í Evrópubaráttuna en toppbaráttan í Þýskalandi er æsispennandi. Fótbolti 11. nóvember 2022 22:00
Markalaust í Íslendingaslagnum í Tyrklandi Rúnar Alex Rúnarsson hélt hreinu þegar Alanyaspor og Adana Demirspor áttust við í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Leiknum lauk með markalausu jafntefli. Fótbolti 11. nóvember 2022 20:00
Enginn Klopp á hliðarlínunni gegn Southampton Fyrsta verkefni Nathan Jones sem þjálfara Southampton verður talsvert auðveldara þar sem það verður enginn Jürgen Klopp geltandi á hann þegar Liverpool tekur á móti Dýrlingunum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Enski boltinn 11. nóvember 2022 19:15
Andri Adolphsson í Stjörnuna Andri Adolphsson hefur samið við Stjörnuna og mun því leika með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta á næstu leiktíð. Ekki kemur fram hvað samningurinn er langur og þá er Andri enn skráður í lið Vals á vef Knattspyrnusambands Íslands. Fótbolti 11. nóvember 2022 18:30
Perry tekur við kvennaliði KR KR hefur samið við Perry Mclachlan um að taka við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna í KR en liðið spilar í Lengjudeildinni næsta sumar. KR segir frá þessu á heimasíðu sinni. Íslenski boltinn 11. nóvember 2022 15:11
Blikaslagur í úrslitakeppni háskólaboltans vestanhafs Tveir Íslendingaslagir verða í úrslitakeppni bandaríska háskólafótboltans um helgina. Landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir verður meðal annars í eldlínunni. Fótbolti 11. nóvember 2022 14:30
Messi bannaði Argentínumönnum að uppnefna Mac Allister Alexis Mac Allister, leikmaður Brighton, hefur greint frá því hvernig Lionel Messi varði hann þegar hann kom inn í argentínska landsliðið. Fótbolti 11. nóvember 2022 14:01
Umfjöllun: Suður-Kórea - Ísland 1-0 | Með tvö naum töp heim til Íslands Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði 1-0 gegn Suður-Kóreu í vináttulandsleik í Seúl í dag. Suður-Kóreumenn eru á lokastigunum í undirbúningi sínum fyrir HM í Katar en hvorug þjóðin var með sitt sterkasta lið. Fótbolti 11. nóvember 2022 12:53
Ramos og Thiago ekki í HM-hópi Spánverja Ekkert pláss er fyrir Sergio Ramos eða Thiago í spænska landsliðshópnum sem fer á HM í Katar. Fótbolti 11. nóvember 2022 12:16
Senegalar ráða töfralækna til að gera Mané kláran fyrir HM Senegalar beita öllum brögðum, hefðbundnum sem óhefðbundnum, til að Sadio Mané verði klár í slaginn fyrir HM í Katar sem hefst eftir rúma viku. Fótbolti 11. nóvember 2022 12:00
C-riðill á HM í Katar: Svanasöngur Messis og Ernir á sveimi Lionel Messi er á síðasta séns til að verða heimsmeistari. Spennandi lið Póllands og Mexíkó berjast um að fylgja Argentínu upp úr riðlinum og Sádar eru svo að segja á heimavelli. Fótbolti 11. nóvember 2022 11:01
Danijel byrjar í fyrsta landsleiknum og Höskuldur fyrirliði Arnar Þór Viðarsson gerir sjö breytingar á byrjunarliði íslenska fótboltalandsliðsins sem mætir Suður-Kóreu í vináttulandsleik í Hwaseong í dag. Fótbolti 11. nóvember 2022 10:00
Heimsmeistaramótið þrengir að framboði flugvélaeldsneytis Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fer fram í Katar og hefst eftir rúma viku hefur stóraukið eftirspurn eftir flugvélaeldsneyti við Persaflóa. Það hefur aftur haft þær afleiðingar að minna af eldsneytinu fer til Evrópu en ella. Innherji 11. nóvember 2022 09:28
Flaug frá Bandaríkjunum til Manchester til að sjá Ronaldo spila en fór í fýluferð YouTube-stjarnan Speed flaug alla leið frá Bandaríkjunum til Manchester til að sjá Cristiano Ronaldo spila með Manchester United gegn Aston Villa í enska deildabikarnum í gær. En hann fór í fýluferð. Enski boltinn 11. nóvember 2022 08:01
„Fótboltinn drap pabba“ Sonur enska fótboltamannsins Nobbys Stiles er ekki í nokkrum vafa um að fótboltinn hafi drepið föður hans. Enski boltinn 11. nóvember 2022 07:31
FIFA bannar Dönum að klæðast æfingafatnaði til stuðnings mannréttindum Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur hafnað beiðni danska knattspyrnusambandsins um að landslið Danmerkur fái að klæðast æfingatreyjum sem á stendur „Mannréttindi fyrir alla“ á HM 2022 í Katar. Fótbolti 11. nóvember 2022 07:00
Lagði landsliðsskóna á hilluna í febrúar en er á leiðinni á HM Hakim Ziyech var fyrr í kvöld valinn í marokkóska landsliðshópinn sem fer á heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem hefst eftir rúma viku. Fótbolti 10. nóvember 2022 23:31
City tekur á móti Liverpool og Jóhann Berg fer á Old Trafford Manchester United varð í kvöld seinasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum enska deildarbikarsins í knattspyrnu þegar liðið vann 4-2 sigur gegn Aston Villa. Að leik loknum var svo dregið í 16-liða úrslitin og þar er sannkallaður stórleikur þegar Manchester City tekur á móti Liverpool. Fótbolti 10. nóvember 2022 22:46
Madrídingar unnu seinasta leikinn fyrir HM Real Madrid vann góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Cadiz í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Þetta var seinasti leikur deildarinnar áður en HM í Katar tekur við og Madrídingar fara því inn í pásuna löngu tveimur stigum á eftir toppliði Barcelona. Fótbolti 10. nóvember 2022 22:27
United seinasta liðið í 16-liða úrslit Manchester United varð í kvöld seinasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum enska deildarbikarsins er liðið vann 4-2 sigur gegn Aston Villa í úrvalsdeildarslag. Fótbolti 10. nóvember 2022 21:59
Sverrir og félagar aftur á sigurbraut Eftir tvo deildarleiki í röð án sigurs eru Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í PAOK komnir aftur á sigurbraut eftir öruggan 0-3 útisgiur gegn Ionikos í kvöld. Fótbolti 10. nóvember 2022 21:26
Juventus upp í þriðja sæti eftir fimmta sigurinn í röð Ítalska stórliðið Juventus er að snúa gengi sínu við eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Liðið vann nauman 0-1 útisigur gegn botnliði Hellas Verona í kvöld, en þetta var fimmti deildarsigur liðsins í röð. Fótbolti 10. nóvember 2022 19:30
Matthías gengur til liðs við Víking Knattspyrnudeild Víkings hefur gengið frá samningum við Matthías Vilhjálmsson um að leika með liðinu í Bestu-deild karla í knattspyrnu næstu tvö tímabilin. Fótbolti 10. nóvember 2022 18:33
Alfons kveður eftir mikla velgengni Alfons Sampsted, landsliðsbakvörður í fótbolta, mun fara frítt frá norska félaginu Bodö/Glimt nú þegar keppnistímabilinu í Noregi lýkur. Fótbolti 10. nóvember 2022 17:01
Sjáðu fyrsta mark Orra fyrir FCK Orri Steinn Óskarsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðallið FC Kaupmannahafnar þegar það vann Thisted, 1-3, í sextán úrslitum dönsku bikarkeppninnar í gær. Fótbolti 10. nóvember 2022 16:01
Hommapar í kynningu Sviss fyrir HM í Katar Svisslendingar nýttu fólkið í landinu til að kynna í myndbandi hópinn sem fer á heimsmeistaramótið í fótbolta síðar í þessum mánuði. Í myndbandinu er meðal annars hommapar en samkynhneigð er ólögleg í Katar, þar sem HM fer fram. Fótbolti 10. nóvember 2022 15:30