Weghorst orðaður við United Atli Arason skrifar 8. janúar 2023 12:30 Wout Weghorst fagnar marki gegn Argentínu á HM í Katar. Getty Images Wout Weghorst, framherji Burnley, gæti verið að ganga til liðs við Manchester United á lánssamningi.
Weghorst er sem stendur á láni hjá Besiktas í Tyrklandi en hann skoraði í sigri liðsins gegn Kasimpasa í tyrknesku ofurdeildinni í gær. Weghorst fagnaði markinu með því að veifa stuðningsmönnum, þar sem margir telja Weghorst vera að kveðja stuðningsmenn liðsins. Şenol Güneş, knattspyrnustjóri Besiktas, er þó ekki á sama máli. „Weghorst er mikilvægur leikmaður hjá okkur. Það er ekki nóg að veifa stúkunni, hann þarf líka að tala við félagið. Ég hef heyrt af þessum orðrómi en það er ekkert ákveðið. Ég mynda mér skoðun á þessu þegar ég er búinn að tala bæði við hann [Weghorst] og félagið,“ sagði Gunes eftir sigur Besiktas í gær. Weghorst er 30 ára gamall Hollendingur og er á láni hjá Besiktas út þessa leiktíð. Weghorst er samningsbundinn Burnley en öll þrjú félög þurfa að samþykkja félagaskiptin til Manchester United ef það á að verða af þeim núna í janúar. Burnley keypti Weghorst á 12 milljónir punda frá Wolfsburg í janúar á síðasta ári. Weghorst lék með Hollendingum á HM í Katar og skoraði tvö mörk, bæði í 2-2 jafntefli gegn Argentínu í 8-liða úrslitum.
Enski boltinn Mest lesið „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Íslandsmeistari í ólympískum lyftingum þremur vikum eftir að hún missti fóstur Sport Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Lindsey Vonn úr leik eftir hrikalegt fall í fyrstu ferð Sport Mætir á sinn sextugasta Super Bowl-leik en segir að þessi sé sá síðasti Sport Ákærður fyrir morðið á kærustu sinni Sport Fleiri fréttir Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Orri aftur með draumainnkomu Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Kristian Nökkvi á skotskónum í Hollandi Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Börsungar gefa ekkert eftir á toppnum Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Fara fögrum orðum um Íslendinginn unga Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Sjá meira