Lewandowski skaut Barcelona á toppinn Robert Lewandowski skaut Barcelona á topp La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, með marki í uppbótartíma gegn Valencia. Fyrr í leiknum hafði mark verið dæmt af Valencia. Fótbolti 29. október 2022 21:15
Gott gengi Inter heldur áfram Inter Milan vann Sampdoria 3-0 í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 29. október 2022 21:01
Leeds lagði Liverpool á Anfield Leeds United gerði sér lítið fyrir og vann Liverpool á Anfield í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Lokatölur 2-1 gestunum frá Leeds í vil. Enski boltinn 29. október 2022 20:45
Hörður Björgvin áfram ósigraður á toppnum | Brynjar Ingi fékk loks tækifæri Hörður Björgvin Magnússon var á sínum stað í miðverði Panathinaikos þegar liðið vann öruggan 5-1 útisigur á Volos í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Brynjar Ingi Bjarnason fékk loks tækifæri í byrjunarliði Vålerenga þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við Sarpsborg í Noregi. Fótbolti 29. október 2022 20:15
Þórir Jóhann fylgdist með naumu tapi Lecce gegn Juventus af varamannabekknum Þórir Jóhann Helgason sat allan tímann á varamannabekk Lecce þegar liðið tapaði naumlega gegn Juventus í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, í dag. Lokatölur 1-0 gestunum í vil. Fótbolti 29. október 2022 19:30
Stórlið PSG í vandræðum með Troyes París Saint-Germain vann nauman eins marks sigur á Troyes í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur 4-3 PSG í vil. Fótbolti 29. október 2022 18:30
Nýríkt Newcastle gerir atlögu að Meistaradeildarsæti Gott gengi Newcastle United heldur áfram en liðið vann 4-0 sigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta fyrr í dag. Þá vann Crystal Palace nauman sigur á Southampton á meðan Brentford og Úlfarnir gerðu 1-1 jafntefli. Enski boltinn 29. október 2022 17:30
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Víkingur 1-0 | Blikar enduðu mótið með viðeigandi hætti Breiðablik fór með sigur í farteskinu þegar liðið fékk skjöldinn fyrir Íslandsmeistaratitil sinn á Kópavogsvelli í dag. Ísak Snær Þorvaldsson tryggði Blikum 1-0 sigur í leik liðsins gegn Víkingi í lokaumferð deildarinnar. Íslenski boltinn 29. október 2022 17:15
Umfjöllun og viðtal: Keflavík - Fram 4-0 | Aftur vann Keflavík stórsigur á Fram Keflvíkingar unnu öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Fram í lokaumferð Bestu-deildar karla í dag. Guðmundur Magnússon gat tryggt sér markakóngstitilinn með marki fyrir Framara, en hann þarf að sætta sig við það að deila titlinum með Nökkva Þey Þórissyni. Íslenski boltinn 29. október 2022 17:00
Umfjöllun og viðtöl: KA - Valur 2-0 | KA-menn tryggðu sér 2. sætið KA-menn tryggðu sér 2. sæti Bestu-deildar karla er liðið vann góðan 2-0 sigur gegn Val í lokaumferðinni í dag. Íslenski boltinn 29. október 2022 16:50
Umfjöllun: ÍBV - Leiknir 1-0 | Arnar Breki kláraði fallna Breiðhyltinga Leiknir sótti ÍBV heim í síðasta leik sínum í Bestu deild karla í bili. Leikurinn skipti litlu máli fyrir bæði lið en svo fór að Eyjamenn unnu eins marks sigur en sigurmarkið kom undir lok leiks. Íslenski boltinn 29. október 2022 16:45
Stoðsendingakóngurinn Adam Ægir: „Hef gengið í gegnum mikið mótlæti“ Adam Ægir Pálsson, sóknarmaður Keflvíkinga, var hress eftir 4-0 sigur Keflvíkinga á Frömurum. Eftir leikinn var ljóst að hann var stoðsendingarhæstur á tímabilinu. Fótbolti 29. október 2022 16:30
Höskuldur: Viljum vera sigursælir í langan tíma Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, var að vonum kampakátur eftir að flautað hafði verið til leiksloka í lokaleik liðsins í Bestu deild karla í fótbolta á Kópavogsvelli í dag. Fótbolti 29. október 2022 16:20
Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍA 1-2 | Skagamenn fallnir þrátt fyrir sigur ÍA fór með sigur af hólmi gegn FH í Kaplakrika í dag en þrátt fyrir sigurinn er liðið fallið úr deild þeirra bestu. Fótbolti 29. október 2022 16:15
„Við erum að stækka sem félag“ „Þetta er bara ótrúlega góð tilfinning. Við erum gríðarlega ánægðir og stoltir í dag,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA ánægður eftir 2-0 sigur á Valsmönnum á KA vellinum í dag. Sigurinn gulltryggði KA annað sæti deildarinnar. Fótbolti 29. október 2022 16:15
Umfjöllun og viðtöl: KR - Stjarnan 0-2 | KR-ingar halda fjórða sætinu þrátt fyrir tap Stjarnan vann góðan 0-2 sigur er liðið heimsótti KR í lokaumferð Bestu-deildar karla í dag. Lítið sem ekkert var undir í leiknum, en KR-ingar halda þó fjórða sætinu þrátt fyrir tap í dag. Íslenski boltinn 29. október 2022 16:10
„Ég er með samning við KR og ætla mér að vera þar á næsta tímabili“ KR tapaði 2-0 á heimavelli gegn Stjörnunni í lokaumferð Bestu deildarinnar. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var svekktur eftir leik en aðspurður út í framhaldið ætlaði hann sér að vera áfram sem þjálfari KR. Sport 29. október 2022 16:00
Bentancur hetja Tottenham í ótrúlegum endurkomusigri Rodrigo Bentancur reyndist hetja Tottenham er liðið vann ótrúlegan endurkomusigur gegn nýliðum Bournemouth í dag. Lokatölur 2-3, en heimamenn höfðu náð tveggja marka forskoti snemma í síðari hálfleik. Enski boltinn 29. október 2022 16:00
Fyrsta tap Potter sem stjóri Chelsea kom gegn gamla félaginu Brighton & Hove Albion vann sterkan 4-1 sigur er liðið tók á móti sínum fyrrum stjóra, Graham Potter, og lærisveinum hans í Chelsea í dag. Þetta var fyrsta tap Chelsea eftir að Potter tók við stjórnartaumunum. Enski boltinn 29. október 2022 15:50
Bayern lyfti sér á toppinn með stórsigri Þýskalandsmeistarar Bayern München lyftu sér í það minnsta tímabundið á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er liðið vann öruggan 6-2 sigur gegn Mainz í dag. Fótbolti 29. október 2022 15:30
Nökkvi bestur og markakóngur | Anton Ari fær gullhanskann KA-maðurinn NökkviÞeyr Þórisson var í dag valinn besti leikmaður Bestu-deildar karla af leikmönnum deildarinnar. Ekki nóg með það heldur getur Nökkvi einnig fagnað markakóngstitlinum. Fótbolti 29. október 2022 15:13
Ísak Andri valinn efnilegastur | Pétur besti dómarinn Stjörnumaðurinn Ísak Andri Sigurgeirsson var í dag valinn efnilegasti leikmaður Bestu-deildar karla af leikmönnum deildarinnar. Fótbolti 29. október 2022 14:01
De Bruyne skaut Englandsmeisturunum á toppinn Englandsmeistarar Manchester City tylltu sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 0-1 útisigri gegn Leicester í dag. Kevin De Bruyne skoraði eina mark leiksins og það var af dýrari gerðinni. Fótbolti 29. október 2022 13:22
Frá í tvo mánuði eftir stunguárásina Pabló Marí, lánsmaður Arsenal hjá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Monza, verður frá í tvo mánuði eftir að hafa verið stunginn í hnífaárás í verslunarmiðstöð í Assago, rétt fyrir utan Mílanó, í vikunni. Fótbolti 29. október 2022 11:30
Segir að United sé loksins að nálgast sitt besta á ný Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, segir að nágrannar sínir í Manchester United séu loksins að nálgast sitt besta á ný og að liðið geti bráðlega farið að berjast á toppnum í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti 29. október 2022 09:30
Setti sér markmið að skora fimm mörk en á möguleika á markakóngstitlinum í dag Lokaumferðin í Bestu deild karla í fóbolta fer fram í dag. Breiðablik fær Meistaraskjöldin en mesta spennan, og í rauninni eina spennan, er hver verður markakóngur á Íslandsmótinu. Fótbolti 29. október 2022 09:01
Sú yngsta til að vera kosin sú besta Knattspyrnukonan Sophia Smith hjá Portland Thorns var í gær valin mikilvægasti leikmaður bandarísku kvennadeildarinnar á þessu tímabili. Fótbolti 28. október 2022 22:00
Afturgangan í Rómarborg Fáir einstaklingar vekja upp sterkari tilfinningar hjá íbúum Rómar en þjálfarinn Luciano Spalletti. Undir stjórn Spallettis náðu Rómverjar hæstu hæðum en líka djúpum dölum. Hápunktarnir á þjálfaraferli hans í höfuðborginni voru bikartitlarnir árin 2007 og 2008. Dýpstu dalirnir voru 7-1 tapið gegn Manchester United árið 2007 og framkoma hans í garð Francesco Tottis undir lok ferils hans. Fótbolti 28. október 2022 20:30
Íslendingalið Kristianstad fékk skell og stimplaði sig út úr toppbaráttunni Íslendingalið Kristianstad, undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, mátti þola 4-1 tap er liðið heimsótti Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Kristianstad er nú 11 stigum á eftir toppliði Rosengård þegar liðið á aðeins þrjá leiki eftir. Fótbolti 28. október 2022 18:07
Stórstjarna skrifaði óumbeðin á treyju aðdáenda Argentínska knattsyrnustjarnan Paulo Dybala kom aðdáenda heldur betur á óvart þegar sá síðarnefndi var staddur í Colosseum hringleikahúsinu í Rómarborg. Fótbolti 28. október 2022 17:01