Zlatan lítur hvorki út fyrir að vera fertugur eða meiddur í þessu myndbandi Sænska knattspyrnugoðið Zlatan Ibrahimovic er ekki að spila með AC Milan þessa dagana vegna meiðsla en kappinn lét þó vita af sér með eftirminnilegum hætti á samfélagsmiðlum sínum í gær. Fótbolti 8. febrúar 2022 13:31
Meistararnir keyptu Ara frá Ítalíu Íslands- og bikarmeistarar Víkings hafa fest kaup á knattspyrnumanninum unga Ara Sigurpálssyni sem er uppalinn hjá HK en kemur til Víkinga frá Bologna á Ítalíu. Íslenski boltinn 8. febrúar 2022 12:28
Stoltur Mane sá landa sína missa sig þegar meistararnir komu heim Sadio Mané lagði ekki strax á stað heim til Liverpool þótt að Afríkukeppnin í fótbolta sé búinn. Hann fékk skiljanlega að fara heim með bikarinn. Fótbolti 8. febrúar 2022 11:31
Rodman mætir íslensku stelpunum eftir allt saman Trinity Rodman átti bara að fá að æfa með bandaríska landsliðinu í tengslum við SheBelieves Cup en nú er ljóst að hún verður í búningi þegar liðið mætir Íslandi. Fótbolti 8. febrúar 2022 11:00
Eriksen vissi að hann myndi spila aftur aðeins tveimur dögum eftir hjartastoppið Christian Eriksen vissi að hann myndi spila fótbolta aftur aðeins tveimur dögum eftir að hann fór í hjartastopp í leik Danmerkur og Finnlands á EM síðasta sumar. Enski boltinn 8. febrúar 2022 10:31
Grealish of fullur til að komast inn á skemmtistað Jack Grealish, leikmaður Manchester City og enska landsliðsins, gekk aðeins of hratt um gleðinnar dyr um daginn. Raunar var hann svo fullur að honum var ekki hleypt inn á skemmtistað. Enski boltinn 8. febrúar 2022 08:30
Varnarmaður West Ham biðst afsökunar á dýraníði Kurt Zouma, varnarmaður West Ham United, hefur beðist afsökunar á því að hafa níðst á köttunum sínum. Enski boltinn 8. febrúar 2022 07:30
Chelsea borgar skaðabætur vegna ofbeldis sem fyrrverandi leikmenn félagsins urðu fyrir Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur ákveðið að borga fjórum fyrrverandi leikmönnum félagsins skaðabætur vegna kynþáttaníðs sem þeir urðu fyrir af hálfu þjálfara sinna á tíunda áratug síðustu aldar. Enski boltinn 7. febrúar 2022 23:00
Enn nokkrar vikur í Jóhann Berg | Brasilíumennirnir hjá Man Utd með veiruna Jóhann Berg Guðmundsson verður enn fjarri góðu gamni er Burnley mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld. Sömu sögu er að segja af þeim Alex Telles og Fred en báðir nældu sér í kórónuveiruna á dögunum. Enski boltinn 7. febrúar 2022 21:31
Úrslitaleik Reykjavíkurmótsins frestað vegna óveðurs Þróttur Reykjavík var 2-0 yfir gegn Íslandsmeisturum Vals í úrslitum Reykjavíkurmóts kvenna í knattspyrnu er flauta þurfti leikinn af vegna veðurs. Fótbolti 7. febrúar 2022 20:46
„Knattspyrnusambandið þarf að vera meira til staðar fyrir félögin“ „Þetta kom upp fyrir rúmri viku síðan. Þá voru nokkrir aðilar sem höfðu samband við mig og ýttu mér af stað, var ekki beint með þetta efst í huga,“ sagði Sævar Pétursson í viðtali við Ríkharð Óskar Guðnason fyrr í dag. Fótbolti 7. febrúar 2022 20:30
Skiptir úr besta liði Þýskalands í það næst besta Þýski miðvörðurinn Niklas Süle mun í sumar ganga í raðir Borussia Dortmund en hann er í dag leikmaður Þýskalandsmeistara Bayern München. Fótbolti 7. febrúar 2022 20:01
Er alveg sama um klæðaburð leikmanna svo lengi sem þeir leggi sig alla fram Frank Lampard, nýráðinn þjálfari Everton, gaf lítið fyrir þá fullyrðingu að Dele Alli, ein nýjasta viðbót Everton-liðsins, hafi verið eins og umrenningur til fara er hann var kynntur fyrir stuðningsfólki félagsins. Enski boltinn 7. febrúar 2022 19:01
Jón Dagur fór hamförum er AGF burstaði Íslendingalið Elfsborg Jón Dagur Þorsteinsson gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö af sex mörkum AGF er það lagði Elfsborg 6-1 í æfingaleik á Spáni. Jón Dagur lagði einnig upp tvö mörk í leiknum en alls tóku fjórir Íslendingar þátt í leiknum. Fótbolti 7. febrúar 2022 18:01
Dagný tilnefnd sem sú besta í janúar Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, er ein af sex sem tilnefndar eru sem besti leikmaður janúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti 7. febrúar 2022 16:30
Með „breiðari þekkingu úr hreyfingunni“ en Vanda „toppmanneskja“ „Mig langar að taka slaginn og held að það sé nauðsynlegt að fá inn aðila sem þekkir vel til innan úr starfi félaganna í hreyfingunni,“ segir Sævar Pétursson sem í dag lýsti yfir framboði til Knattspyrnusambands Íslands. Fótbolti 7. febrúar 2022 15:17
Sævar býður sig fram til formanns KSÍ Sævar Pétursson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns Knattspyrnusambands Íslands. Íslenski boltinn 7. febrúar 2022 14:11
Skilur ekki af hverju Salah tók ekki víti gegn Senegal Jamie Carragher botnar ekkert í ákvörðun Egypta að láta Mohamed Salah taka fimmtu spyrnu liðsins í vítaspyrnukeppninni gegn Senegölum í úrslitaleik Afríkukeppninnar í gær. Fótbolti 7. febrúar 2022 13:30
Danski landsliðsframherjinn fékk Covid-19 í þriðja sinn Kasper Dolberg er sönnun þess að þeir sem hafa fengið kórónuveiruna geta fengið hana aftur og svo enn aftur. Dolberg er nú smitaður í þriðja sinn. Fótbolti 7. febrúar 2022 13:01
Mané svaf með bikarinn í nótt Sadio Mané tryggði Senegal fyrsta Afríkumeistaratitilinn í sögu þjóðarinnar í gærkvöldi þegar hann hann skoraði úr lokaspyrnunni í vítaspyrnukeppni. Enski boltinn 7. febrúar 2022 12:31
Dómarinn bauð Mo Salah flautuna sína og spjöldin Það var ekki kvöld Mohamed Salah í gær þegar hann tapaði úrslitaleik Afríkukeppninnar. Liverpool maðurinn hefur átt frábært tímabil en upplifði ekki drauminn sinn að vinna titil með Egyptalandi. Fótbolti 7. febrúar 2022 11:31
Bretar og Írar hættir við að sækja um HM í fótbolta 2030 Bretland og Írland vildu fá að halda heimsmeistarakeppnina í fótbolta eftir átta ár en ekki lengur. HM 2030 fer því ekki fram í Englandi, Skotlandi, Wales, Norður-Írlandi eða Írlandi. Fótbolti 7. febrúar 2022 11:00
Fannst Dele Alli vera eins og umrenningur þegar hann gekk inn á Goodison Park Glenn Hoddle, fyrrverandi leikmaður og þjálfari enska landsliðsins, var ekki hrifinn af fatavali Deles Alli þegar hann var kynntur fyrir stuðningsmönnum Everton á laugardaginn. Enski boltinn 7. febrúar 2022 10:30
Sjáðu stuðningsmann Leicester ráðast á leikmenn Forest þegar þeir fögnuðu marki Stuðningsmaður enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City tók því mjög illa þegar liðið hans var rassskellt í enska bikarnum í gær og varð sér og félaginu sínu til skammar. Enski boltinn 7. febrúar 2022 10:00
Hólmbert lánaður til Lilleström: Finnst ég hafa verið svolítið óheppinn Hólmbert Aron Friðjónsson gekk í gær frá samningi við Lilleström en norska félagið fær hann á láni frá þýska liðinu Holstein Kiel. Hann bætist því í hóp fjölmarga íslenskra leikmanna Lilleström . Fótbolti 7. febrúar 2022 08:44
Pabbi Harveys Elliott að springa úr stolti þegar hann sá soninn skora fyrsta markið fyrir Liverpool Faðir Harveys Elliott réði sér ekki fyrir kæti þegar hann sá son sinn skora sitt fyrsta mark fyrir Liverpool í endurkomuleik sínum gegn Cardiff City í ensku bikarkeppninni í gær. Enski boltinn 7. febrúar 2022 08:01
Overmars hættur hjá Ajax vegna dónaskilaboða sem hann sendi samstarfskonum Marc Overmars er hættur sem yfirmaður knattpyrnumála hjá Hollandsmeisturum Ajax eftir að upp komst að hann sendi samstarfskonum sínum hjá félaginu óviðeigandi skilaboð. Fótbolti 7. febrúar 2022 07:30
Fótboltaþjálfari kvennaliðs hvatti til hópnauðgunar Spænskur fótboltaþjálfari kvennaliðs í Madrid hvatti þjálfarateymi sitt fyrir nokkrum árum til þess að hópnauðga ungri konu. Það myndi efla liðsandann. Stuðningsmenn félagsins krefjast þess að maðurinn verði rekinn, en stjórn félagsins aftekur það með öllu. Erlent 7. febrúar 2022 07:01
Vanda segir ekki rétt að KSÍ eigi nóg af pening og skorar á ríkið að koma með veglegt framlag Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, furðar sig á að enn eitt árið fái KSÍ ekki krónu úr afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Sambandið hefur sótt um styrki síðustu ár en ekkert fengið. Fótbolti 7. febrúar 2022 07:01
Stuðningsmaður Leicester réðst á leikmenn Forest B-deildarlið Nottingham Forest sló ríkjandi bikarmeistara Leicester City úr FA-bikarnum á Englandi í dag. Forest vann sannfærandi 4-1 sigur og virðist sem það hafi verið of mikið fyrir ákveðinn stuðningsmann Leicester. Enski boltinn 6. febrúar 2022 23:00