Rio líklegastur til að fá bandið Talið er að Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United, sé líklegastur til að verða næsti fyrirliði enska landsliðsins. John Terry hjá Chelsea er einnig talinn koma til greina. Enski boltinn 3. júní 2008 15:00
Manchester United og Arsenal bítast um Ramsey Manchester United hefur komist að samkomulagi við Cardiff City um kaupverðið á hinum sautján ára Aaron Ramsey. Upphæðin er talin vera rúmlega fimm milljónir punda. Enski boltinn 3. júní 2008 13:15
Ferguson horfir til Santa Cruz Paragvæski sóknarmaðurinn Roque Santa Cruz hjá Blackburn er orðaður við Englands- og Evrópumeistara Manchester United. Talið er að Sir Alex Ferguson sé að íhuga að gera 15 milljón punda boð í leikmanninn. Enski boltinn 3. júní 2008 10:37
Stóri-Sam orðaður við Blackburn Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Sam Allardyce ákveðið að stytta sumarfrí sitt með fjölskyldunni. Ástæðan er sú að hann er líklega að fara að snúa aftur í fótboltann. Enski boltinn 3. júní 2008 10:15
Beckham segir best fyrir Ronaldo að vera áfram Stórstjarnan David Beckham hefur gefið Cristiano Ronaldo þau ráð að feta ekki í fótspor sín og yfirgefa Manchester United fyrir Real Madrid. Spænsku risarnir eru með Ronaldo efstan á óskalista sínum. Enski boltinn 3. júní 2008 09:13
Chelsea vill líka fá Hughes Sky fréttastofan hefur heimildir fyrir því að menn innan Chelsea vilji ráða Mark Hughes sem næsta knattspyrnustjóra liðsins. Hughes er efstur á óskalista Manchester City eins og við greindum frá í dag. Enski boltinn 2. júní 2008 22:02
Ómögulegt að fá Ronaldo Ramon Calderon, forseti Real Madrid, segir að ómögulegt sé fyrir félagið að kaupa Cristiano Ronaldo í sumar. Ronaldo hefur sterklega verið orðaður við spænska stórliðið. Enski boltinn 2. júní 2008 18:30
AC Milan reynir við Eto'o Ítalska liðið AC Milan hefur staðfest að sóknarmaðurinn Samuel Eto'o sé helsta skotmark þess á leikmannamarkaðnum í sumar. AC Milan hefur verið sterklega orðað við Ronaldinho, félaga hans hjá Barcelona, en Carlo Ancelotti vill frekar fá Eto'o. Fótbolti 2. júní 2008 14:33
Mun Essien fylgja Mourinho til Inter? Talið er að Michael Essien sé efstur á óskalista Jose Mourinho sem ráðinn hefur verið nýr þjálfari Inter. Mourinho mun fá mikinn pening til leikmannakaupa og talið er að hann geti fengið Essien fyrir um 25 milljónir punda. Enski boltinn 2. júní 2008 13:45
Robinho segir United og Chelsea á eftir sér Brasilíski landsliðsmaðurinn Robinho segist vera á óskalista ensku stórliðana Manchester United og Chelsea. Leikmaðurinn hefur verið þrjú ár hjá Real Madrid á Spáni en ekki unnið sér fast sæti í byrjunarliðinu. Enski boltinn 2. júní 2008 12:37
Mark Hughes líklegastur til að taka við City Manchester City hefur fengið leyfi frá Blackburn til að ræða við Mark Hughes um að taka við stöðu knattspyrnustjóra liðsins. Sven-Göran Eriksson var rekinn í morgun og er Hughes fyrsti kostur City. Enski boltinn 2. júní 2008 11:39
Voru mennirnir sem Eriksson keypti að standa sig? Sven-Göran Eriksson keypti alls tíu leikmenn í stuttri stjórnartíð sinni hjá Manchester City. Hér má sjá hvaða leikmenn það voru og hvort þeir stóðu undir væntingum? Enski boltinn 2. júní 2008 10:00
Eriksson hættur hjá Man City Manchester City er búið að reka Sven-Göran Eriksson úr starfi knattspyrnustjóra. Sá sænski stýrði City til Evrópusætis á nýliðnu tímabili en fékk þau skilaboð frá eiganda liðsins, Thaksin Shinawatra, í apríl að ekki væri þörf á hans kröftum. Enski boltinn 2. júní 2008 09:04
Léttur sigur hjá Englendingum England vann í kvöld 3-0 sigur á Trinídad og Tóbagó í vináttulandsleik. Enski boltinn 1. júní 2008 23:40
Ferguson sendir Real Madrid skýr skilaboð Alex Ferguson segir að eigendur Manchester United muni frekar senda Cristiano Ronaldo upp í áhorfendastúku en að selja hann til Real Madrid. Enski boltinn 1. júní 2008 13:30
Hiddink útilokar Chelsea Guus Hiddink segir engar líkur á því að hann muni taka við knattspyrnustjórn Chelsea í sumar. Enski boltinn 1. júní 2008 13:00
Liverpool ætlar að bjóða í Ribery Liverpool er sagt ætla að bjóða 20 milljónir punda í franska landsliðsmanninn Franck Ribery sem er á mála hjá Bayern München. Enski boltinn 31. maí 2008 17:15
Beckham fyrirliði á ný David Beckham verður fyrirliði enska landsliðsins á nýjan leik er það mætir Trinídad og Tóbagó í vináttulandsleik á morgun. Enski boltinn 31. maí 2008 16:20
Emre á leið til Fenerbahce Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Fenerbahce hefur félagið komist að samkomulagi við Newcastle um kaup á tyrkneska miðvallarleikmanninum Emre Belozoglu. Enski boltinn 31. maí 2008 14:00
Redknapp hefur áhuga á Dunne Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, hefur staðfest áhuga sinn á varnarmanninum Richard Dunne, fyrirliða Manchester City. Enski boltinn 31. maí 2008 12:23
Barton saklaus í leigubílamáli Joey Barton, leikmaður Newcastle, var úrskurðaður saklaus af ákærum að hafa valdið skemmdum í leigubíl í mars síðastliðnum. Enski boltinn 31. maí 2008 11:42
Ferdinand kominn á sölulista? Breska blaðið Daily Mirror fullyrðir í dag að varnarmaðurinn Anton Ferdinand hafi verið settur á sölulista hjá West Ham. Enski boltinn 30. maí 2008 21:49
Scolari hefur ekkert heyrt frá Chelsea Luiz Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgala, segist ekki hafa heyrt í forráðamönnum Chelsea varðandi knattspyrnustjórastöðuna hjá félaginu. Hann segist einbeita sér að fullu á að undirbúa lið sitt fyrir EM. Enski boltinn 30. maí 2008 21:41
Gerrard vill ólmur fá Barry Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segist ólmur vilja fá landsliðsfélaga sinn Gareth Barry til félagsins frá Aston Villa í sumar. Enski boltinn 30. maí 2008 21:19
Hættir Sven í næstu viku? Sky fréttastofan segist hafa heimildir fyrir því að Sven-Göran Eriksson verði sagt upp störfum hjá Manchester City í næstu viku. Enski boltinn 30. maí 2008 18:19
Bostock á leið til Tottenham Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er nú við það að landa hinum 16 ára gamla miðjumanni John Bostck frá Crystal Palace. Bostock er yngsti leikmaður sem komið hefur við sögu í leik með Palace eftir að hafa komið við sögu hjá liðinu aðeins 15 ára gamall í fyrrahaust. Enski boltinn 30. maí 2008 18:12
Giovani búinn að semja við Tottenham The Sun segir í dag að Giovani Dos Santos sé þegar búinn að semja við Tottenham og að hann fari þangað frá Barcelona fyrir tólf milljónir punda. Enski boltinn 30. maí 2008 14:11
Mikael Forssell til Hannover 96 Finnski sóknarmaðurinn Mikael Forssell hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96 til næstu fjögurra ára. Enski boltinn 30. maí 2008 13:07
Man City að missa Dunne Allar líkur eru á því að Richard Dunne sé á leið frá Manchester City eftir að hann hafnaði nýju samningstilboði frá félaginu. Enski boltinn 30. maí 2008 12:37
John Arne Riise á leið frá Liverpool Dagblaðið The Liverpool Echo heldur því fram í dag að John Arne Riise verði seldur frá Liverpool nú í sumar en hann á eitt ár eftir af samningi sínum. Enski boltinn 30. maí 2008 11:52