Fleiri fréttir

Breytist í áskriftarvef eftir ráðleggingar frá Facebook
Skessuhorn.is, vefsíða vesturlenska fjölmiðilsins, er búin að breytast í áskriftarvef. Ritstjóri miðilsins segir að breytingin sé búin að vera lengi í pípunum. Ákvörðunin var tekin eftir ráðleggingar frá Facebook.

Eðvarð Ingi tekur við starfi framkvæmdastjóra Héðins um áramótin
Eðvarð Ingi Björgvinsson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Héðins. Hann mun taka við stöðu framkvæmdastjóra af Rögnvaldi Einarssyni um áramótin.

Boðaðar ráðstafanir leiði til tug milljarða tjóns
Stærstu eigendur skuldabréfa ÍL-sjóðs telja það að ekki vera grundvöllur fyrir samningaviðræðum við fjármálaráðuneytið um uppgjör skuldbindinga sjóðsins. Þeir segja fulltrúa ráðuneytisins ekki hafa komið til móts við kröfur lífeyrissjóðanna.

Fer frá Directive Games til Porcelain Fortress
Þorgeir Frímann Óðinsson, formaður IGI, Samtaka leikjaframleiðenda, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Porcelain Fortress. Hann hefur stýrt Directive Games North frá árinu 2019.

Munu fljúga þrisvar í viku til Köben
Niceair mun fljúga þrisvar á viku frá Akureyrarflugvelli til Kaupmannahafnar frá og með byrjun júní. Flugfélagið hefur flogið tvisvar í viku til dönsku höfuðborgarinnar, á fimmtudögum og sunnudögum, en mun nú einnig fljúga á þriðjudögum í sumar.

Hyggst sækja verulega hækkun orkuverðs í viðræðum við Alcoa
Landsvirkjun hyggst sækja verulega hækkun í viðræðum sem eru að hefjast við Alcoa um endurskoðun raforkuverðs fyrir álverið í Reyðarfirði. Þetta er langstærsti raforkusamningur Landsvirkjunar og tekur til þriðjungs af orkusölu fyrirtækisins.

Fólk geti grætt umtalsvert með einu símtali til bankans
Verðbólga er komin yfir tíu prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár. Markaðsaðilar spá enn einni stýrivaxtahækkuninni í næsta mánuði og útlit er fyrir að verðbólgan verði þrálát. Dósent í fjármálum segir mikilvægt að fólk sem á pening á bankareikningum kanni hvort vextir á þeirra reikningum séu þeir bestu. Einstaklingur með tíu milljónir króna á almennum veltureikningi gæti grætt hálfa milljón á ári við það eitt að færa peninginn yfir á hagstæðari bankareikning.

Verðbólguþrýstingurinn meiri og almennari en spár gerðu ráð fyrir
Verðbólgan jókst annan mánuðinn í röð og er nú komin yfir tíu prósent, þvert á væntingar greiningaraðila. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þetta áhyggjufulla þróun og að greiningaraðila þurfi að endurskoða forsendur fyrir sínum spám. Hættan á að verðbólgan verði þrálát og vextir hækki sé að aukast jafnt og þétt. Gert er ráð fyrir annarri stýrivaxtahækkun.

Verðbólgan rýfur tíu prósenta múrinn
Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,39 prósent milli mánaða og mælist verðbólgan á ársgrundvelli nú 10,2 prósent. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 8,9 prósent síðustu tólf mánuði.

Evrópusambandið fýsilegur kostur í litlu hagkerfi
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að innganga Íslands í Evrópusambandið gæti reynst vel. Hann gerir þó fyrirvara við mál sitt; ferlið sé flókið og nýr gjaldmiðill sé engin töfralausn. Aukið samstarf við nágrannaríkin gæti þó verið af hinu góða.

Haraldur virðist vera hættur
Haraldur Þorleifsson, stofnandi hönnunarstofunnar Ueno, virðist vera hættur hjá Twitter. Hann hefur unnið hjá fyrirtækinu síðastliðin tvö ár og segist mikið hafa lært.

Innritun kvöldið áður til þess að bregðast við töfum á flugvellinum
Icelandair býður nú farþegum að innrita farangur á Keflavíkurflugvelli kvöldið fyrir flug og að kaupa flutning á farangrinum þangað til þess að bregðast fyrir lengri afgreiðslutíma við innritun vegna framkvæmda á flugvellinum.

Segir óábyrgt að leysa orkuskiptin með því að flytja framleiðslu annað
Ekki verður sérstaklega virkjað vegna nýrrar stóriðju, að mati forstjóra Landsvirkjunar, sem segir orku nýrra virkjana fremur fara til fjölbreytts hóps smærri fyrirtækja sem og til orkuskipta.

66°Norður loka á Strikinu
Fyrirtækið 66°Norður hefur ákveðið að loka verslun sinni á Strikinu í Kaupmannahöfn. Yfirmaður verslunarsviðs segir að verið sé að hagræða í rekstri og mæta breytingum á markaði. Fyrirtækið opnaði verslunina á Strikinu árið 2015.

„Af hverju ættum við að fara í þrot?“
„Af hverju ættum við að fara í þrot?“ spyr Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, sem kveðst þreyttur á sögusögnum um að félagið sé á barmi gjaldþrots. Hann segir að merki séu um að þrotlaus vinna sé farin að skila sér.

Landsbankinn rukkaði einstæða móður um fyrnda milljóna króna skuld
Innheimtufyrirtæki hélt áfram að reyna að rukka einstæða fjögurra barna móður um milljóna króna kröfur fyrir hönd Landsbankans eftir að þær voru fyrndar. Bankinn segir mistök hafa átt sér stað en lögmaður konunnar segir hana skoða réttarstöðu sína.

Þrír nýir veitingastaðir opna á Keflavíkurflugvelli
Þrír nýir veitingastaðir opna á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Barinn Loksins sem margir kannast við breytist yfir í Loksins Café & Bar.

Guðný nýr forstjóri VÍS
Guðný Helga Herbertsdóttir hefur verið ráðin forstjóri tryggingafélagsins VÍS. Hún hefur verið starfandi forstjóri síðan í janúar á þessu ári.

Benedikt ráðinn framkvæmdastjóri
Benedikt Hálfdánarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Benchmark Genetics Iceland hf. Hann tekur við af Jónasi Jónassyni sem hefur gegnt starfinu síðan árið 2006.

Staðan á fasteignamarkaði: Kaupsamningar geti varla verið færri
Formaður Félags fasteignasala segir gríðarlega fækkun í kaupsamningsgerð á fasteignamarkaði. Hann segir fyrstu kaupendur virðast halda að sér höndum eftir aðgerðir seðlabankastjóra. Von sé á frekari lækkunum á húsnæðisverði.

Ásta Sóllilja nýr framkvæmdastjóri Klak
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Klak - Icelandic Startups. Hún tekur við af Kristínu Soffíu Jónsdóttur sem starfar nú hjá Leitar Capital Partners.

Lilja Kristín nýr forstöðumaður hjá Vodafone
Lilja Kristín Birgisdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone.

Þrír nýir stjórnendur hjá Coca-Cola á Íslandi
Vilborg Anna Garðarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona framlegðar og tekjustýringar Coca-Cola á Íslandi. Vilborg kemur til Coca-Cola á Íslandi frá UN Women á Íslandi þar sem hún starfaði sem fjármálastjóri. Áður en hún starfaði hjá UN Women var hún framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sixt í tæp tíu ár.

Hlutfall íbúða sem seljast yfir ásettu verði fer lækkandi
Hlutfall íbúða sem sem selst yfir ásettu verði fer lækkandi. Á höfuðborgarsvæðinu seldust 12,7 prósent íbúða í janúar yfir ásettu verði samanborið við 16,9 prósent í desember. Hlutfallið er því nú á svipuðu róli og það hefur verið á síðustu árum þegar ró hefur verið á fasteignamarkaðinum.

Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti
Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti.

Fyrirætlanir ESB setji stöðu Íslands í hættu
Fái Ísland ekki undanþágu frá fyrirhuguðum hertum aðgerðum Evrópusambandsins til að sporna við mengun vegna flugsamgangna gæti landið misst stöðu sína sem tengipunktur milli Evrópu og Ameríku, með slæmum afleiðingum fyrir hagkerfið. Þetta segir forstjóri Icelandair.

Kolefnisspor Landsvirkjunar minnkað um sextíu prósent
Losun Landsvirkjunar á gróðurhúsalofttegundum hefur dregist saman um sextíu prósent frá 2008. Heildarlosun á orkueiningu minnkaði um tvö prósent á milli ára í fyrra en kolefnisspor fyrirtækisins stækkaði lítillega á milli ára.

Telur tjónið nú þegar nema hundruð milljónum króna
Ferðamálastjóri telur að útvega þurfi nokkur hundruð ferðamönnum nýja gistingu því hótel hafi eða séu að loka vegna verkfalla Eflingarfélaga. Ferðaþjónustan hafi þegar orðið af hundruðum milljóna króna. Neyðarnúmer hefur verið virkjað. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins væntir þess að félagsmenn SA munu samþykkja boðað verkbann en atkvæðagreiðslu um það lýkur í dag.

Skila öllu vatni sem þarf í kolefnisförgun aftur í jörðina
Vatni sem dælt verður upp úr ferskvatnsstraumi neðanjarðar við Straumsvík fyrir kolefnisförgunarstöð Carbfix verður öllu skilað aftur ofan í jörðina og hefur ekki áhrif á vatnsból. Opinberar stofnanir segja að rannsaka verði vel umhverfisáhrif gríðarlegrar vatnsnotkunar stöðvarinnar.

Þórunn Káradóttir í fjártæknigeirann
Þórunn Káradóttir hefur verið ráðin til fjártæknifyrirtækisins YAY sem lögfræðingur.

Enn lækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5 prósent milli desember og janúar. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem íbúðaverð lækkaði. Ekki hafa verið undirritaðir færri kaupsamningar á mánuði síðan í janúar árið 2011.

Slaufa auglýsingum á Stöð 2+
Frá og með 1. mars verður streymisveitan Stöð 2+ án auglýsinga. Engar auglýsingar verða spilaðar áður en efni fer í gang eins og verið hefur.

Methagnaður Landsvirkjunar fyrst og fremst sóttur til stóriðjunnar
Landsvirkjun á núna Kárahnjúkavirkjun skuldlausa sem og allar virkjanir byggðar fyrir hennar tíma. Forstjórinn segir methagnað fyrirtækisins fyrst og fremst sóttan til stóriðjunnar en ekki til almennings.

Ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans
Hjalti Óskarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans.

Segir methagnað uppskeru af uppbyggingu virkjana
Landsvirkjun skilaði fjörutíuogfimm milljarða króna hagnaði á síðastliðnu ári og leggur stjórn fyrirtækisins til að tuttugu milljarða króna arður verði greiddur í ríkissjóð, fimm milljörðum meira en fjárlög gera ráð fyrir. Forstjórinn segir þetta uppskeru virkjanauppbyggingar síðustu áratuga en endursamningar við stóriðju séu þó stærsti áhrifaþátturinn í góðri afkomu.

Í varnarham á opnum fundi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var í varnarham í morgun á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um áhrif verðbólgu hér á landi, þar sem þingmenn spurðu hann spjörunum úr um aðgerðir Seðlabankans síðustu misseri.

Nýir stjórnendur hjá Nox Medical
Íslenska tæknifyrirtækið Nox Medical hefur ráðið til sín fjóra nýja stjórnendur. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú níutíu talsins og hefur þeim fjölgað um fjörutíu prósent á síðustu tveimur árum.

Adriana tekur við af Ásdísi Eir hjá Mannauði
Adriana Karólína Pétursdóttir var kjörin formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Ásdísi Eir Símonardóttur, mannauðsstjóra Lucinity, sem hefur verið formaður félagsins undanfarin þrjú ár.

Jónas Yngvi til Uniconta
Jónas Yngvi Ásgrímsson hefur verið ráðinn til Uniconta Ísland. Jónas kemur til Uniconta frá DK hugbúnaði þar sem hann hefur starfað síðastliðin fjórtán ár. Hann kemur til með að leiða ráðgjöf, þjónustu og sölu til fagaðila og viðskiptavina félagsins.

Jón, Snorri Páll, Sylvía Kristín og Finnur hlutu stjórnunarverðlaun
Fjórir einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2023 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Nauthól að viðstöddum forseta Íslands í gær.

Leggja til tuttugu milljarða arðgreiðslu
Afkoma ársins var sú besta í sögu Landsvirkjunar. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði sem við lítum helst til þegar afkoma fyrirtækisins er skoðuð, var 44,9 milljarðar króna og hækkaði um ríflega 72% á milli ára í bandaríkjadal talið. Þetta kemur fram í ársreikningi Landsvirkjunar.

Bein útsending: Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2022
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru veitt árlega stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Verðlaunin verða afhent í beinni útsendingu klukkan 16 í dag.

Karítas frá Mogganum og til Landsbankans
Karítas Ríkharðsdóttir hefur gengið til liðs við Landsbankann sem sérfræðingur í samskiptum.

Hjalti Þór og Benedikt til eignastýringar LV
Hjalti Þór Skaftason og Benedikt Guðmundsson hafa verið ráðnir í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.

Rætur nýs markaðsstjóra Icewear liggja til Víkur í Mýrdal
Elma Bjartmarsdóttir hefur verið ráðin nýr markaðsstjóri Icewear. Elma er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í markaðsfræðum frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademias.