Viðskipti innlent

Hyggst sækja verulega hækkun orkuverðs í viðræðum við Alcoa

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá Alcoa Fjarðaáli í Reyðafirði. Orkuverð til þess er tengt heimsmarkaðsverði á áli.
Frá Alcoa Fjarðaáli í Reyðafirði. Orkuverð til þess er tengt heimsmarkaðsverði á áli. Arnar Halldórsson

Landsvirkjun hyggst sækja verulega hækkun í viðræðum sem eru að hefjast við Alcoa um endurskoðun raforkuverðs fyrir álverið í Reyðarfirði. Þetta er langstærsti raforkusamningur Landsvirkjunar og tekur til þriðjungs af orkusölu fyrirtækisins.

Forstjóri Landsvirkjunar rekur methagnað fyrirtæksins einkum til verðhækkana sem náðst hafa á undanförnum árum með endursamningum við stóriðjufyrirtækin; Ísal í Straumsvík og Norðurál og Elkem á Grundartanga. Stærsti orkusamningurinn er þó eftir, samningurinn við Alcoa Fjarðaál, en fjallað var um endurskoðun hans í fréttum Stöðvar 2.

Hörður Arnason, forstjóri Landsvirkjunar, lýsti því á kynningarfundi ársreikninga í síðustu viku hvernig fyrirtækinu hefði tekist að ná hærra orkuverði með endursamningum við stórnotendur.Egill Aðalsteinsson

„Það er núna komið að endursamningum við þá. Við munum sækja þar svipaðar hækkanir og við höfum séð í öðrum samningum enda kveða samningarnir á um það,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

Miklir hagsmunir eru undir, megnið af orkuframleiðslu Kárahnjúka. Hún er langstærsta virkjun landsins, með 690 megavatta uppsett afl og framleiðslugetu upp á 4.800 gígavattstundir af rafmagni á ári. Allur samningurinn kemur til endurskoðunar.

„Það er allur samningurinn, sem er sem sagt stærsti samningur Landsvirkjunar, um þriðjungur af raforkusölu fyrirtækisins,“ segir Hörður.

Raforkusamningur álversins í Reyðarfirði er alfarið tengdur heimsmarkaðsverði á áli. Orkusérfræðingurinn Ketill Sigurjónsson taldi í grein í Kjarnanum fyrir sex árum að með nýjum orkusamningi við Alcoa gæti Landsvirkjun vænst árlegrar tekjuaukningar upp á átta til tíu milljarða króna og segir Ketill núna að þetta mat sitt frá þeim tíma standi enn.

„Þær viðræður eru að hefjast en þær munu klárast svona á næstu þremur til fjórum árum, gerum við ráð fyrir,“ segir Hörður.

Úr stöðvarhússhvelfingunni í Fljótsdal þar sem orkan frá Kárahnjúkum er virkjuð.Skjáskot/Stöð 2

Stjórn Landsvirkjunar leggur til að ríkissjóður fái núna tuttugu milljarða króna arðgreiðslu. Forstjórinn sér fram á að fleiri þættir muni skila fyrirtækinu meiri hagnaði í framtíðinni.

„Núna er til dæmis græni þáttur orkunnar að verða verðmætari og verðmætari, sem mun styrkja enn fjármunamyndun fyrirtækisins. En markmiðið er að halda áfram að borga arð af þessari stærðargráðu.

Við ætlum samhliða að vera í öflugum fjárfestingum. Þetta spilar saman. En við sjáum ekki ástæðu til að þess að lækka skuldir enn frekar, sem hefur verið aðaláherslan á undanförnum árum,“ segir forstjóri Landsvirkjunar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Austfirðir væru ekki það sem þeir eru í dag hefði álverið ekki komið

Dagurinn sem breytti öllu á Reyðarfirði var 15. mars árið 2003 þegar samningar voru undirritaðir um smíði álvers Alcoa. Þetta austfirska sjávarþorp, sem áður hét Búðareyri, stökkbreyttist í iðnaðarbæ og íbúafjöldinn meira en tvöfaldaðist. Fimmtán ár eru um þessar mundir frá því rekstur þess hófst.

Landsvirkjun og Rio Tinto ná samkomulagi

Landsvirkjun og Rio Tinto á íslandi hafa samþykkt viðauka við raforkusamning fyrirtækjanna frá árinu 2010, sem ætlað er að auka samkeppnishæfni álversins og er sagður styrkja rekstrargrundvöll álversins á næstu árum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×