Fleiri fréttir

Haustfundur Landsvirkjunar í beinni á Vísi

Haustfundur Landsvirkjunar fer fram í dag undir yfirskriftinni Auður í orku framtíðar. Á meðal þeirra sem flytja framsögu á fundinum eru Hörður Arnarson forstjóri fyrirtækisins og Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri. Fundurinn er í beinni útsendingu á Vísi og sjá má útsendinguna með því að smella hér að neðan.

Leiguverð lækkaði aðeins í október

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 118,4 stig í október s.l. og lækkaði um 0,3% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,7%.

Krefst fundar með FME vegna Straums fjárfestingabanka

Lilja Mósesdóttir, þingmaður utan flokka, hefur krafist fundar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis vegna greinar Þórðar Snæs Júlíussonar í Fréttablaðinu um helgina. Í greininni kemur meðal annars fram að eigandi Straums sé Davidsson-Kempner vogunarsjóðurinn.

Kaupmáttur launa lækkaði í október

Kaupmáttur launa lækkaði í október s.l. miðað við fyrri mánuð. Vísitala kaupmáttar launa í október er 111,8 stig og lækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hinsvegar hækkað um 0,9%.

Íbúðaverð í borginni hækkar áfram

Íbúðaverð í borginni heldur áfram að hækka. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 348,8 stig í október s.l. og hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði.

Fjólubláar kýr í Háskólabíói í næstu viku

Einn frægasti markaðsmaður heims, Bandaríkjamaðurinn Seth Godin, er væntanlegur til landsins. Godin mun halda fyrirlestur í Háskólabíói eftir átta daga á vegum Ímarks, félags íslensks markaðsfólks. Markaðurinn ræddi við Godin vegna komu hans til Íslands.

Eignarrétti ógnað með lögum um lífeyrissjóði

Lífeyrissjóðirnir leggja nú þegar fjármuni í varasjóði, segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar, kallaði eftir því í Fréttablaðinu í gær að þeir greiddu í slíkan sjóð. Neituðu þeir því og reiddu sig á lánsveð þyrfti að skoða hvort meina ætti þeim að vera á almennum lánamarkaði.

Hagnaðist um 1,7 milljarða

Landsbankinn hagnaðist um tæplega 1,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi ársins. Bankinn birti uppgjör sitt fyrir fjórðunginn á fimmtudag. Uppsafnaður hagnaður fyrstu níu mánuði ársins er þar með 13,5 milljarðar en til samanburðar var hagnaður 27,0 milljarðar á sama tímabili í fyrra.

Yfir 100 milljón sms send á sex mánuðum

Íslendingar sendu 102 milljónir sms-skilaboða á fyrri hluta þessa árs. Það er tæplega tólf prósentum meira en á fyrri hluta síðasta árs. Viðskiptavinir Nova sendu langflest sms-skeytin, eða 63 milljónir.

Fermetraverð lækkaði um 10% frá 2008 til 2011

Fermetraverð húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu lækkaði í öllum hverfum frá 2008 til 2011, í kjölfar bankahrunsins. Talsverður munur er þó á því hve mikið fermetraverðið lækkaði en verðlækkunin er á bilinu 2 til 16%. Þetta leiða í ljós talnagögn sem hagfræðideild Landsbankans birti í Hagsjá í síðustu viku.

Uppgjör milli Tals og Vodafone fyrir dómstóla

Uppgjör á reikningum vegna gagnaflutnings og innsláttar pantana sem Vodafone telur Tal hafa vangreitt er á leið fyrir dómstóla. Verði lyktir málsins Vodafone í vil mun það kosta Tal 119 milljónir króna auk vaxta. Þetta kemur fram í ársreikningi IP-fjarskipta, móðurfélags Tals, og skráningarlýsingu Vodafone.

FME upplýsir ekki um eigendur Straums

Fjármálaeftirlitið (FME) er með upplýsingar um virka eigendur Straums fjárfestingabanka en telur sig ekki geta veitt aðgang að þeim upplýsingum á grundvelli þagnarskyldu. Straumur er með fjárfestingabankaleyfi og er virkur þátttakandi í íslensku fjármálalífi. Bankinn hefur meðal annars umsjón með hlutafjárútboðum og skuldabréfaútgáfum.

Telur ójafnræði viðskiptavina Dróma ólíðandi og hyggst taka málið upp

Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, segir það óskiljanlegt að útlán viðskiptavina SPRON hafi ekki flust með innlánum í Arion banka á sínum tíma. Hann segir ójafnræðið sem viðskiptavinir Dróma þurfa að þola með öllu ólíðandi og hyggst taka málið upp á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.

Forstjóri Vodafone: Símamarkaðurinn á fleygiferð

Ómar Svavarsson segir að miklar breytingar hafi orðið á símamarkaði, bæði hér á landi og erlendis, að undanförnu og gagnaflutningar, m.a. vegna snjallsímanotkunar, hafi margfaldast og þannig breikkað tekjumöguleika fjarskiptafyrirtækja. Markaðurinn sé að þróast ört, en hefðbundin símanotkun sé þó enn grunnstofninn í tekjum símafyrirtækja.

Steinunn Jónsdóttir stór hluthafi í Eimskipafélaginu

Steinunn Jónsdóttir fjárfestir, sem er dóttir Jóns Helga Guðmundssonar sem gjarnan er kenndur við Byko, er sá einstaklingur sem á stærstan einstakan eignarhlut í Eimskipafélaginu, ef frá er talinn bandaríski auðjöfurinn Ronald Burkle.

FME skoðar kvartanir vegna Dróma

Umboðsmaður skuldara sendi fyrr á þessu ári kvörtun til Fjármálaeftirlitsins vegna fimmtán viðskiptavina Dróma, sem stofnaður var utan um rekstur SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans. Kvartanir fjölluðu um endurútreikninga gengislána, 110% leiðina og ábyrgðarskuldbindingar.

Um 80% telja að Landsvirkjun skapi mikil verðmæti

Um 80% landsmanna telja að Landsvirkjun skapi mikil verðmæti fyrir samfélagið. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup lét framkvæma fyrir Landsvirkjun, en niðurstöðurnar verða kynntar á haustfundi fyrirtækisins á morgun. Einungis 10% landsmanna telja að Landsvirkjun skapi lítil verðmæti.

Yucaipa stærsti eigandi Eimskips

Tvo félög sem bæði heyra undir fjárfestingasjóðinn Yucaipa eiga ríflega 25% hlut í Eimskip. Á bakvið þann sjóð stendur auðjöfurinn Ronald Burkle. Annar stærsti eigandinn er Lífeyrissjóður verzlunarmanna og í þriðja sæti er Landsbankinn. Á nýjum lista sem birtist á vef Kauphallarinnar í morgun sést hvernig eignarhaldið lítur út en það hefur tekið nokkrum breytingum að undanförnu, eftir að félagið var sett á markað.

Hlutafjáraukningu DV ekki lokið

Hlutafjáraukningu útgáfufélags DV er ekki lokið, en er langt komin. Þetta segir Ólafur Magnússon, stjórnarformaður útgáfufélagsins. "Við þurfum að ljúka þessu á næstu dögum. Það verður stórnarfundur í næstu viku og þá verður farið yfir málið og stöðuna á því,“ segir hann. Hann segir að hlutafjáraukningin núna nemi um 30 milljónum. "Það hefur gengið mun betur en við áttum von á,“ segir hann.

Spáir því að verðbólgan aukist í 4,5%

Greining Arion banka spáir 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í nóvember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan hækka og fara í 4,5% í nóvember samanborið við 4,2% í október. Bráðabirgðaspá greiningarinnar gerir ráð fyrir 0,4% hækkun VNV í desember, 0,2% hækkun í janúar og svo 0,7% hækkun í febrúar.

Verulegar fjárhæðir fengist frá fyrrverandi starfsmönnum

Slitastjórn Kaupþings hefur tekist að innheimta verulegar upphæðir frá fyrrverandi starfsmönnum bankans sem fengu lán fyrir hlutabréfakaupum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var ábyrgðum á lánum tugum starfsmanna aflétt sem starfsmennirnir tóku vegna kaupa á hlutabréfum í bankanum á árunum fyrir hrun. Slitastjórnin sætti sig ekki við þessa afléttingu ábyrgða og stefndi starfsmönnunum. Nokkrir dómar hafa fallið. Meðal annars var Hannes Frímann Hrólfsson, dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða þrotabúinu milljarð. Hæsta krafan hljóðar hins vegar upp á 2,6 milljarða.

Fiskaflinn hefur aukist um 15,6% milli ára

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði, metinn á föstu verði, var 19,5% meiri en í október í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 15,6% miðað við sama tímabil í fyrra, sé hann metinn á föstu verði.

Yfir 700 viðskipti með Eimskip í Ávöxtunarleiknum

Samtals áttu þátttakendur í Ávöxtunarleiknum, sem nú eru orðnir ríflega 5.500 talsins, 724 viðskipti með bréf Eimskipafélagsins á fyrsta degi á markaði sl. föstudag, en á hinum raunverulega markaði voru viðskiptin 82.

AGS: Ekki hægt að aflétta gjaldeyrishöftunum næstu þrjú árin

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) telur að Íslendingar verði að viðhalda gjaldeyrishöftum sínum a.m.k. út árið 2015 vegna erfiðleika við að leysa aflandskrónuvandann eða hina svokölluðu snjóhengju sem vofir yfir íslensku efnahagslífi.

50 til 60% í Vodafone boðin út

Viðskipti Hlutafé í Fjarskiptum hf., Vodafone, verður boðið út í tveimur hlutum í byrjun desember. Framtakssjóður Íslands selur 50 til 60 prósenta hlut sinn í Vodafone í útboðinu.

Arion banki virðist eiga Dróma

Arion banki virðist eiga Dróma með nær húð og hári því nær allar skuldir Dróma, sem stofnaður var um útlán SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans, eru við Arion banka. Fyrrverandi viðskiptaráðherra reyndi tvívegis að flytja útlánasafn SPRON til Arion banka en stjórnendur Arion telja afar óheppilegt að safnið hafi ekki færst yfir með innlánum á sínum tíma.

Gengi bréfa Regins hækkuðu um 2,18 prósent

Gengi hlutabréfa í fasteignafélaginu Reginn hækkuðu um 2,18 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 10,78. Gengi bréfa Eimskipafélagins lækkaði um 2,22 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 220, en upphafsgengi skráningar á markað sl. föstudag, var 208.

Himinháar endurgreiðslur framundan hjá sveitarfélögum

Talsverðar endurgreiðslur erlendra lána eru framundan hjá sveitarfélögum á næsta ári og munu þær valda þrýstingi á gengi krónunnar, einkanlega á fyrri helmingi næsta árs. Um þetta er fjallað í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka sem kom út í morgun.

Reginn lýkur endurfjármögnun Smáralindar

Reginn hefur lokið öðrum áfanga í endurfjármögnun félagsins. Í framhaldi af viðræðum og öflun tilboða í fjármögnun þá hefur félagið tryggt endurfjármögnun Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. að fjárhæð 9 milljörðum króna.

Neysla á kindakjöti aldrei verið minni á Íslandi

Neysla á kindakjöti hér á landi var að jafnaði 18,8 kíló á hvern íbúa í fyrra, en það er minnsta neysla frá því að Hagstofan hóf að safna slíkum gögnum árið 1983. Til gamans má geta þess að árið 1983 var neysla á kindakjöti 45,3 kíló á hvern íbúa.

Spáir 5% verðhækkun á íbúðaverði næstu þrjú árin

Seðlabankinn spáir því að íbúðaverð hækki að meðaltali um 5% að nafnverði á ári næstu þrjú árin. Miðað við verðbólguspá bankans þá reiknar hann með að raunverð íbúðarhúsnæðis muni hækka um ríflega 2% á ári á tímabilinu.

Skuggaeigandi Íslands

Vogunarsjóðir í umsjón bandaríska sjóðstýringafyrirtækisins Davidson Kempner Capital Management LLC eru með gríðarleg ítök í íslensku viðskiptalífi. Þeir eru stærsti einstaki kröfuhafi Glitnis, á meðal allra stærstu kröfuhafa Kaupþings, eiga stórar kröfur á

Már: Gefin í skyn meiri vá en tilefni er til

"Ég veit ekki hvort við semjum við þessi þrotabú, ég held við munum bara segja þeim hvernig þetta á að vera,“ sagði Már Guðmundsson, seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs á Nordica hóteli í morgun varðandi nauðasamninga þrotabúa Glitnis og Kaupþings og áhrif þeirra á fjármálastöðugleika í landinu. Hann sagði í ræðu sinni fyrr í morgun að gefin væri í skyn meiri vá vegna þessara nauðasamninga en tilefni er til.

Vogunarsjóðir með gríðarleg ítök í íslensku viðskiptalífi

Vogunarsjóðir í umsjá bandaríska sjóðstýringarfyrirtækisins Davidson Kempner eru með gríðarleg ítök í íslensku viðskiptalífi, og sjóðir á vegum þess eru meðal stærstu almennu kröfuhafa í bú föllnu bankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans. Þá eiga sjóðirnir stóra óbeina hluti í mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins.

Grænar tölur hækkunar í kauphöllinni

Hlutabréf hjá flestum fyrirtækjum í kauphöll Íslands, hækkuðu umtalsvert í dag, en mesta hækkunin var að bréfum Össurar, eða um 2,22 prósent. Gengi bréf félagsins er nú 184. Þá hækkaði gengi bréf Haga um 0,23 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 21,35.

Á fjórða hundrað milljónir greiddar í desemberbætur

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu velferðarráðherra um að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót. Greiðsla til þeirra sem eiga rétt á óskertri uppbót verður 50.152 kr. Þetta er þriðja árið í röð sem atvinnuleitendur fá greidda desemberuppbót, en áður hafði slík uppbót síðast verið greidd árið 2005.

Hannes þarf að greiða þrotabúi Kaupþings milljarð

Hannes Frímann Hrólfsson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóra fjárstýringa og markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur til að greiða þrotabúi Kaupþings rúman milljarð króna.

Hagnaður Landsbankans lækkar um helming milli ára

Afkoma Landsbankans eftir skatt var jákvæð um 13,5 milljarða króna eftir skatta fyrstu níu mánuði ársins 2012. Hefur hagnaðurinn lækkað um helming miðað við sama tímabil í fyrra.

Sjá næstu 50 fréttir