Viðskipti innlent

Íbúðaverð í borginni hækkar áfram

Íbúðaverð í borginni heldur áfram að hækka. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 348,8 stig í október s.l. og hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,9%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×