Viðskipti innlent

Kaupmáttur launa lækkaði í október

Kaupmáttur launa lækkaði í október s.l. miðað við fyrri mánuð. Vísitala kaupmáttar launa í október er 111,8 stig og lækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hinsvegar hækkað um 0,9%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að launavísitala í október hafi verið 436,8 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,1%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×