Fleiri fréttir

Óeðlileg fyrirgreiðsla til stærstu eigenda

Rannsóknarnefnd Alþingis telur að eigendur allra stóru bankanna þriggja og Straums-Burðaráss hafi fengið óeðlilega greiðan aðgang að lánsfé hjá þessum bönkum að því er virðist í krafti eignarhalds síns.

Fjármálaeftirlitið réði ekki við ofvöxt bankanna

Rannsóknarnefnd Alþingis segir að að vöxtur bankanna hafi verið svo mikill og áhættusamur að hann hafi ekki samræmst langtímahagsmunum trausts banka. Hins vegar hafi verið sterkir hvatar til vaxtar innan bankanna.

Baugur og tengdir aðilar fengu hátt í þúsund milljarða

Baugur Group stendur upp úr þegar kemur að stórum áhættulánum bankanna á árunum fyrir hrun. Þegar mest lét skuldaði Baugur og tengd félög hátt í þúsund milljarða króna hjá stóru bönkunum þremur miðað við gengi dagsins í dag.

Landsbankinn sagður hafa brotið lög en FME sat aðgerðalaust hjá

Heildarskuldbindingar Björgólfs Thors Björgólfssonar og félaga hans gagnvart Landsbankanum árið 2005 námu 56,2 milljörðum króna, eða 54,5 prósent af eigin fé bankans. Þetta var niðurstaða Fjármálaeftirlitsins sem tók út bankann 30. júní 2005. Svo há skuldbinding varðar við lög.

FME vissi um risavaxnar skuldbindingar en gerði ekkert

STRAX á árinu 2004 komst þáverandi starfsmaður Fjármálaeftirlitsins að þeirri niðurstöðu í samantekt hvorki Kaupþing né Landsbankinn hefðu tengt stórar áhættuskuldbindingar, þ.e lánveitingar, saman á réttan hátt, m.a að því er varðar Baug Group og tengda aðila. Þetta kemur fram í áttunda kafla skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um útlán íslensku bankanna.

Lán til Baugs Group jók áhættuna í bankakerfinu

Lán bankanna til Baugs Group jók kerfislæga áhættu bankakerfisins, að mati Rannsóknarnefndar Alþingis. Félagið fékk lán hjá öllum stóru bönkunum þremur auk Straums Burðaráss. Sama máli gegndi um lán til Existu, Björgólfs Thors Björgólfssonar, Björgólfs Guðmundssonar, og Ólafss Ólafssonar.

Fjármálaeftirlitið notaðist við gallað álagspróf

Álagsprófið sem Fjármálaeftirlitið notaði í opinberri upplýsingagjöf var ófullkomið að mati Rannsóknarnefndar Alþingis en upplýsingagjöf FME gaf til kynna að bankarnir stæðu traustum fótum og veittu bæði markaðnum og Fjármálaeftirlitinu sjálfu falskt öryggi. Gölluð álagspróf höfðu þannig mikil áhrif á opinbera upplýsingagjöf Fjármálaeftirlitsins.

Ritstjóri Pressunnar skuldaði yfir hálfan milljarð í Kaupþingi

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingi um lán til fjölmiðlamanna kemur fram að Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Pressunnar, skuldaði á tímabili 563 milljónir kr. í Kaupþingi. Tveir aðrir fjölmiðlamenn skulduðu yfir 100 milljónir en það voru Óli Björn Kárason og Styrmir Gunnarsson.

Björgólfur Thor mokaði fé úr Landsbankanum viku fyrir hrun

Björgólfur Thor Björgólfsson fékk 153 milljóna evra lán hjá Landsbankanum 30. september árið 2008, um viku áður en FME tók bankann yfir. Þetta jafngilti þá tæpum 24 milljörðum króna þá. Rannsóknarnefnd Alþingis segir Seðlabankann ekki haft lagt mat á það hvort Landsbankinn ætti við lausafjár- eða eiginfjárvanda að stríða.

FME lauk afar fáum málum með beitingu valdheimilda

Fjármálaeftirlitið lauk afar fáum málum með formlegri beitingu valdheimilda samkvæmt niðurstöðu Rannsóknarnefndar Alþingis. Í skýrslunni segir að það hafi vakið sérstaka athygli, miðað við þau alvarlegu brot sem Fjármálaeftirlitið benti sjálft á í skýrslum sínum.

Veðlán bankanna hjá ECB námu 770 milljörðum

Veðlán jukust verulega hjá öllum þremur bönkunum eftir að lausafjárþurrðin ágerðist árið 2007. Haustið 2007 voru veðlán bankanna um tveir milljarðar evra, mestmegnis frá Seðlabanka Íslands. Við fall bankanna höfðu þau aukist í yfir níu milljarða evra og var þá tæplega helmingur þeirra frá Seðlabanka Evrópu (ECB) eða um 770 milljarðar kr.

Bankarnir voru með 300 milljarða í eigin hlutabréfum

Bankarnir voru með fjármagn bundið í eigin hlutabréfum. Hlutafé í félagi sem það fjármagnar sjálft er ekki sú vörn gegn tapi sem því er ætlað að vera. Hér er það nefnt veikt eigið fé. Hjá bönkunum þremur nam veikt eigið fé samtals um 300 milljörðum króna um mitt ár 2008. Á sama tíma var eiginfjárgrunnur bankanna samtals um 1.186 milljarðar króna. Þannig var veikt eigið fé rúmlega 25% af eiginfjárgrunni bankanna.

Evrugengi Microsoft hefur sparað 2 milljarða

Microsoft Íslandi hefur samið við höfuðstöðvar Microsoft um áframhald svokallaðs evrugengis Microsoft fram til júníloka á þessu ári. Hljóðar samkomulagið um að viðskipti Microsoft við íslensk fyrirtæki, stofnanir og almenning verði gerð á evrugenginu 150 krónum. Þetta gengi hefur hingað til sparað 2 milljarða kr. í gjaldeyri.

Arion banki semur um viðskiptavakt við LS

Í dag skrifaði Arion banki hf. undir samninga hjá Lánasjóði sveitarfélaga (LS) í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði með bréf sjóðsins í flokki LSS150224. Tilgangur samningsins er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndum á eftirmarkaði með bréf sjóðsins.

Nauðungarsölum fasteigna fækkar milli ára

Í lok mars 2010 höfðu 59 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Þetta eru nokkuð færri nauðungarsölur en urðu á sama tímabili í fyrra þegar þær voru 72 talsins.

Thule Investments sektað um eina milljón

Þann 23. febrúar 2010 tók stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME) ákvörðun um að sekta Thule Investments ehf. um eina milljón kr. vegna brota á lögum um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.

Skipta má út nafni Lehman fyrir Glitni

„Í stað Lehman Brothers gæti allt eins staðið Glitnir,“ segir Mark T. Williams, höfundur nýrrar bókar um fall bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers. Williams er Íslandi að góðu kunnur, hefur komið hér bæði til námskeiðahalds og sem ráðgjafi í áhættustýringu.

Selja flöskuvatn á landi sem láði

Vatnsfyrirtækið Icelandic Water Holdings hefur samið um sölu á flöskuvatninu Icelandic Glacial við bandaríska fyrirtækið HMSHost Corporation.

Sparisjóður höfðar mál á hendur ábyrgðarmönnum

Sparisjóður Vestmannaeyja hefur höfðað dómsmál á hendur tveimur ábyrgðarmönnum konu sem fór í greiðsluaðlögun. Sparisjóðurinn krefst þess að ábyrgðarmennirnir greiði skuldir hennar þrátt fyrir að það sé bannað samkvæmt lögum. Sjóðurinn telur ákvæðin í nýlegum ábyrgðamannalögum andstæð stjórnarskrá.

Ráðherra krefur skilanefndir um upplýsingar

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, vill að skilanefndir gömlu bankanna upplýsi um fjölda þeirra mála sem þær hafa vísað til sérstaks saksóknara. Ljóst sé að skilanefnd Glitnis hafi einungis sent mál eigenda og stjórnenda Glitnis, sem komst í hámæli í síðustu viku, til sérstaks saksóknara vegna þrýstings stjórnvalda. Þetta kom fram í máli Árna Páls í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni fyrr í dag.

Hugbúnaður flokki lög eftir innihaldi

Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og D3, sem rekur tónlistarvefinn tonlist.is, hafa gert með sér samstarfssamning um rannsóknir á flokkun laga eftir innihaldi þeirra.

Fólk stendur betur í skilum við annað fólk en stofnanir

Reynslan sýnir að fólk stendur betur í skilum við annað fólk en stofnanir, segir framkvæmdastjóri fyrirtækis sem sérhæfir sig í örlánaþjónustu á netinu. Engin veð eru fyrir lánunum, en lánastarfsemin byggir að miklu leyti á trausti.

Seðlabankastjóri sendi samúðarkveðjur til Póllands

Már Guðmundsson seðlabankastjóri sendi í dag bréf til Piotr Wiesioleks starfandi seðlabankastjóra Póllands með samúðarkveðjum vegna fráfalls Slawomirs Stanislaws Skrzypeks seðlabankastjóra Póllands í hinu hörmulega flugslysi í Rússlandi í dag.

Hópur fjárfesta kaupir Securitas

Hópur fjárfesta undir forystu Guðmundar Arasonar, fyrrverandi forstjóra Securitas, skrifaði í gær undir kaupsamning á öllu hlutafé í Securitas hf. sem var í eigu þrotabús Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar. Kaupin eru gerð í framhaldi af opnu og gagnsæju söluferli sem Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabúsins, stýrði.

Hvítflibbabrot grundvöllur kyrrsetninga eigna auðmanna

Skattrannsóknarstjóri hefur heimild til að kyrrsetja eigur sem hafa verið færðar yfir á maka auðmanna. Hann segir skattabrotin sem eru grundvöllur kyrrsetninganna séu í flestum tilvikum hvítflibbabrot í kringum sýndarviðskipti.

Tekur þrýsting af krónunni

Mikið hefur þokast í viðræðum við Seðlabanka Evrópu um krónueign bankans ytra og gætu samningar verið á næsta leiti. Þetta segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. „Það gæti farið að styttast í niðurstöður, gæti jafnvel verið komið í höfn eftir nokkrar vikur,“ segir hann.

Vilhjálmur hefur áður deilt á Iceland Express

Með táknrænni ádeilu sinni í þættinum Útsvari í kvöld á Iceland Express, og þó einkum Pálma Haraldsson eiganda þess, var Vilhjálmur Bjarnason ekki í fyrsta sinn að deila á flugfélagið. í grein sem hann skrifaði árið 2003 benti hann á að félagið væri ekki með íslenskt flugrekstrarleyfi.

Krefst kyrrsetningar eigna tveggja auðmanna

Skattrannsóknarstjóri hefur krafist kyrrsetninga eigna tveggja auðmanna vegna ríflega hundrað milljóna króna skattakröfu á hendur þeim. Farið verður fram á tugi kyrrsetninga á næstu vikum, meðal annars á eignum útrásarvíkinganna. Skattrannsóknarstjóri segir bankareikninga hafa verið tæmda fyrir framan nefið á ríkinu.

Líflegt á skuldabréfamarkaðinum

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,6% í dag í 16,6 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,8% í 6,1 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 10,4 milljarða kr. viðskiptum.

Mark Flanagan: Ísland fær 20 milljarða í viðbót

Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi, segir í yfirlýsingu sem birt hefur verið á heimasíðu sjóðsins að Ísland geti dregið á 159 milljónir dollara eða rúmlega 20 milljarða kr. eftir endurskoðun á áætlun sjóðsins í þessum mánuði.

Ísland í endurskoðun hjá AGS eftir viku

Samkomulag hefur náðst um að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins eins og Vísir greindi frá í dag.

Vandræði hjá 5.000 fyrirtækjum í Landsbankanum

Fimm þúsund fyrirtæki, sem eru í viðskiptum við Landsbankann, eiga í vandræðum vegna banka- og gengiskreppu, segir í afkomutilkynningu bankans. Þar af eru mörg í alvarlegulm vanda.

Gríðarleg aukning í útflutningi iðnaðarvara

Gríðarleg aukning varð í útflutningi iðnaðarvara í mars en alls voru fluttar út slíkar vörur fyrir 30,1 milljarða kr. í mánuðinum og er um að ræða aukningu upp á 52% á föstu gengi frá sama mánuði fyrra árs.

Jón Ólafsson selur vatn á bandarískum flugvöllum

Icelandic Water Holdings, framleiðandi Icelandic Glacial vatnsins, hefur skrifað undir samning við HMSHost Corporation, sem hefur sérleyfi til smásölu á ýmsum ferðamannastöðum, um sölu vatnsins í söluturnum á 23 stórum flugvöllum í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en stjórnarformaður þess er Jón Ólafsson, athafnamaður.

Sjá næstu 50 fréttir