Fleiri fréttir

Straumur óskar eftir áframhaldandi greiðslustöðvun

Fjárfestingarbankinn Straumar-Burðarás hefur óskað eftir áframhaldandi greiðslustöðvun. Þetta segir Georg Andersen, forstöðumaður samskiptasviðs bankans. 19. mars veitti Héraðsdómur Reykjavíkur bankanum heimild til greiðslustöðvunar sem rennur út í dag.

Fastir vextir á Icesave láni ásættanlegir

Í vefriti Fjármálaráðuneytisins í dag staðfestir ráðuneytið meðal annars þær lánsupphæðir sem þegar hafa komið fram á Vísi auk vaxtakjara lánanna. Vextir reiknast af láninu frá 1. janúar 2009.

Mikil fækkun á utanlandsferðum Íslendinga

Í maí síðastliðnum ferðuðust 22.500 Íslendingar til útlanda samkvæmt tölum um brottfarir úr Leifsstöð. Er þetta fækkun um 42% frá sama mánuði fyrir ári síðan þegar 38.500 Íslendingar lögðu land undir fót.

Atvinnuleysi minnkar, var 8,7% í maí

Skráð atvinnuleysi í maí 2009 var 8,7% eða að meðaltali 14.595 manns og minnkar atvinnuleysi um 1,5% að meðaltali frá apríl eða um 219 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.739 manns.

Er niðursveiflunni lokið í Bretlandi?

Vöxtur landsframleiðslu í Bretlandi hefur aukist undanfarna tvo mánuði og telur rannsóknarstofnun efnahags- og félagsmála þar í landi, að margt bendi til þess að mestu niðursveiflunni sé nú lokið.

FÍS vill aðildarviðræður við ESB án tafar

Stjórn Félags íslenskra stórkaupmanna (FÍS) sendi í gær bréf til allra alþingismanna, þar sem fjallað er um aðildarviðræður við ESB. Þar kemur fram að FÍS vill að stjórnvöld fari í aðildarviðræður við ESB án tafar.

Sparisjóðirnir lækka vexti

Sparisjóðirnir hafa ákveðið að lækka óverðtryggða vexti inn- og útlána um allt að 1%. Jafnframt lækka sparisjóðirnir verðtryggða vexti inn-og útlána um allt að 1%.

Gengi Bakkavarar fellur í byrjun dags

Gengi hlutabréfa í Bakkavör hefur fallið um 6,09 prósent frá því viðskipti hófust á hlutabréfamarkaði hér í morgun. Á sama tíma hefur gengi bréfa Marel Food Systems lækkað um 1,1 prósent.

40 milljarða hækkun Icesave lána

Vísir greindi frá því í gær að upphæð þeirra lána sem ríkisstjórn Íslands hyggst ábyrgjast vegna Icesave skuldbindinganna, næmi 2,2 milljörðum Sterlingspunda og 1,2 milljörðum Evra.

Mannekla hamlar rannsókn

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, telur að fjölga þurfi starfsmönnum embættisins um helming „að minnsta kosti". Vegna fjölskyldutengsla Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara undirbýr dómsmálaráðherra lagabreytingu til að setja sérstakan ríkissaksóknara, sem annast mál sem frá embætti Ólafs koma. Björn Bergsson hæstaréttardómari mun gegna stöðunni.

37 milljarða hækkun Icesave lána á 5 dögum

Upphæð þeirra lána sem ríkisstjórn Íslands hyggst ábyrgjast vegna Icesave skuldbindinganna, nemur eins og komið hefur fram 2,2 milljörðum Sterlingspunda og 1,2 milljörðum Evra.

Evran í 180 kr. og pundið í 210 kr.!

Enn veikist gengi krónunnar. Nú klukkutíma fyrir lokun markaða hefur krónan veikst um 0,75% en samkvæmt gjaldeyrisborði Íslandsbanka nemur velta á millibankamarkaði rúmum 3 milljónum Evra eða 540 milljónum króna.

Krónan veikst um fjögur prósent í júní

Krónan hefur veikst um tæp 4 prósent það sem af er júní mánuði. Það sem af er degi hefur hún veikst um 1,2 prósent. Dollarinn stendur nú í rúmum 128 krónum, evran er 181 króna, pundið stendur í tæpum 211 krónum og danska krónan er rúmar 24 íslenskar krónur.

Krónan ekki veikari síðan í byrjun desember í fyrra

Gengi krónunnar hefur veikst um 1,18 prósent það sem af er dags og hefur hún ekki verið veikari síðan í byrjun desember í fyrra, eða um það leyti sem gjaldeyrishöftin voru sett á til að sporna við hruni hennar.

Metávöxtun var á Tryggingarsjóðnum

"Svona safn á náttúrulega ekki að geta vaxið svona mikið á einu ári og gerir það sjálfsagt aldrei aftur," segir Marteinn Breki Helgason, forstöðumaður eignastýringar MP Banka. Hann vísar þar til ársávöxtunar fjárvörslusafna Tryggingarsjóðs innstæðueigenda sem uxu um 51,3 prósent á árinu. Eignir sjóðsins eru að mestu erlendar og skýrir því fall krónunnar breytinguna að stærstum hluta.

Hagsmunir starfsfólks teknir fram yfir hagsmuni eigenda

"Það er mikilvægt fyrir okkur að halda fyrirtækjum gangandi ef rekstrargrundvöllur er fyrir hendi,“ segir Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands, fyrrverandi aðstoðarhagstofustjóri og einn eigenda Kaffitárs.

Mikilvægast að hlúa að litlu fyrirtækjunum

„Þegar erfiðleikar líkir þeim sem nú steðja að í íslensku efnahagslífi blasa við, þá eykst hvatinn til að stofna ný, lítil fyrirtæki. Það er líklegt að slíkum fyrirtækjum muni fjölga mjög á næstunni,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Færeyingar framlengja lán

Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum hefur framlengt brúarlán sem var á gjalddaga í lok júlí og desember um eitt ár.

Hvað gerðist?

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur flytur í Háskólanum í dag fyrirlestur með yfirskriftinni „Hvað gerðist eiginlega í bankahruninu?“

Ásgeir Friðgeirsson: Actavis er í skilum

Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, staðfestir í samtali við Vísi að skuld Actavis hjá Landsbankanum nemi 206 milljónum punda eða 41,5 milljarði króna og að félagið sé í skilum við bankann.

Enn lækkar krónan

Gengi krónunnar lækkaði um 0,9% í viðskiptum á gjaldeyrismarkaði í dag. Gengisvísitalan stendur nú í 232,3 stigum og hefur krónan veikst þó nokkuð að undanförnu.

Mikil aukning atvinnuleysis á Íslandi

Atvinnuleysi eykst einna mest á Íslandi af ríkjum OECD en atvinnuleysi hér á landi jókst um 5% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við fyrsta ársfjórðung 2008. Aukning atvinnuleysis er hins vegar mest á Spáni eða 7,2% og þar á eftir kemur Írland með 5,1% aukningu atvinnuleysis.

Jón Ásgeir: Eignir Baugs meira virði en lánin

Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður Baugs, segir það alrangt að lán Landsbankans í London til Wyndeham Media hafi verið lán til Baugs líkt og sagt var frá á Vísi í morgun. Hann segir að Dagsbrún, sem var að hluta til í eigu Baugs, hafi átti Wyndeham. Hann segir eignir Baugs meira virði en lánin.

Heildarvelta ÍLS eykst um 46 prósent á milli mánaða

Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 2,5 milljörðum króna í maí. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þar hafi verið rúmir 1,8 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 700 milljónir vegna leiguíbúðalána. Vanskil lána hjá sjóðnum voru 800 milljónir og eru þau 0.14 prósent frá byrjun árs en 1. janúar var hlutfallið 0,10 prósent.

Hagkerfið dróst saman eftir að stóriðjuframkvæmdum lauk

„Fjárfesting í hagkerfinu hefur dregist mikið og hratt saman frá því að stóriðjuframkvæmdum á Austurlandi lauk síðastliðið vor. Við þann samdrátt hefur svo bæst fjármálakreppa á svo að segja versta tíma enda skellur hún á beint ofan í tímabil sem þegar einkenndist af lægra fjárfestingastigi og hefur því dýpri og langvinnari áhrif en ella hefði verið," þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbankans frá því í morgun. Þar segir ennfremur:

Stærsta lán Baugs - versta fjárfesting ársins 2006

Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í gær, námu heildarskuldbindingar félaga í eigu Baugs hjá Landsbankanum í London um 58 milljörðum króna, eru þá ótalin útlán Baugs hjá bankanum á Íslandi. Ljóst er að útlán Baugs hjá Glitni og Kaupþingi voru auk þess veruleg og heildarskuldbindingar Baugs til viðskiptabankanna þriggja sé vel yfir 100 milljörðum króna.

Lánadrottnar Eglu samþykkja nauðasamninga

Lánardrottnar Eglu hf. samþykktu með 99,6% atkvæða, miðað við kröfumagn, nauðasamningsfrumvarp félagsins á fundi með atkvæðamönnum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fulltingi lögfræðiþjónustu.

Seðlabankinn umsvifamikill á millibankamarkaði

Samkvæmt hagfræðideild Landsbankans nam heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri 5,2 milljörðum króna í maí, þar af var velta Seðlabankans rúmir 2 milljarðar. Var því hlutdeild Seðlabankans í heildarveltunni tæp 40%. Þetta kemur fram í nýuppfærðum hagtölum frá Seðlabankanum.

Ísafjarðarbær skilar 265 milljóna króna hagnaði

Ársreikningur bæjarsjóðs Ísafjarðarbæjar var lagður fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi í gær. Niðurstöður ársreikningsins eru þær að reksturinn skilar 265 milljónum króna í hagnað af reglulegri starfsemi sem er 53 milljónum betri niðurstaða en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að því er fram kemur í tilkynningu.

Heildarútlán Landsbankans í London nema 731 milljarði

Heildarútlán Landsbankans í London nema rúmum sjö hundruð þrjátíu og einum milljarði íslenskra króna, en þau eiga að ganga upp skuldbindingar ríkisins vegna Icesave. Líklegt er að nokkur afföll verði á útlánunum. Útlán bankans til íslensku útrásarinnar námu um hundrað og þrjátíu milljörðum íslenskra króna en stærstu hluti þess var lánaður til Novator Pharma, sem er í eigu Björgólfs Thors, og fyrirtækja tengdum Baugi.

Gengi Marel Food Systems hækkaði mest í dag

Gengi hlutabréfa Marel Food Systems hækkaði um 1,28 prósent í Kauphöllinni í dag, sem er óbreytt frá í morgun. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Össurar um 0,47 prósent.

Landsframleiðsla dregst talsvert saman

Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 3,6 prósent að raungildi frá 4. ársfjórðungi 2008 til 1. ársfjórðungs 2009 samkvæmt hagtíðindum Hagstofunnar.

Heildarskuldir ríkis 1244 milljarðar

Heildarskuldir ríksins eru 1244 milljarðir samkvæmt fréttum frá hagstofunni. Þar kemur einnig fram að ríkið var rekið með 24 milljarða halla á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 18 milljarða tekjuafngang á sama tíma á síðasta ári.

Millistjórnendur með allt að 900 þúsund í mánaðarlaun

Millistjórnendur hjá ríkisbönkunum fá allt að 900 þúsund krónur í mánaðarlaun. Laun framkvæmdastjóra bankanna eru á bilinu 1-1,4 milljónir. Við yfirtöku ríkisins á bönkunum misstu fjölmargir vinnuna. Og þeir sem héldu vinnunni voru lækkaðir talsvert í launum, en laun bankastarfsmanna lækkuðu um á bilinu 5-65%.

Kaupþing í Lúxemborg opnar á ný

Kaup Blackfish Capital Management á Kaupþing í Lúxemborg hafa verið samþykkt af kröfuhöfum bankans. Gert er ráð fyrir að bankinn verði opnaður aftur í byrjun júlí.

Sjá næstu 50 fréttir