Heildarútlán Landsbankans í London nema 731 milljarði Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 8. júní 2009 18:30
Heildarútlán Landsbankans í London nema rúmum sjö hundruð þrjátíu og einum milljarði íslenskra króna, en þau eiga að ganga upp skuldbindingar ríkisins vegna Icesave. Líklegt er að nokkur afföll verði á útlánunum. Útlán bankans til íslensku útrásarinnar námu um hundrað og þrjátíu milljörðum íslenskra króna en stærstu hluti þess var lánaður til Novator Pharma, sem er í eigu Björgólfs Thors, og fyrirtækja tengdum Baugi. Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að eignir Landsbankans í Lundúnum komi til með að ganga upp í skuldir íslenska ríkisins vegna Icesave innistæðna. Sú upphæð sem íslenska ríkið ábyrgist vegna þeirra nemur 654 milljörðum íslenskra króna. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu nemur heildarupphæð útlánasafns bankans í London rúmum 731 milljarði íslenskra króna. Samkvæmt þessu er verðmæti lánasafnsins um 12% meira en skuldbinding ríkisins og ætti því að duga fyrir Icesave skuldinni og rúmlega það. Í eðlilegu árferði mætti áætla að fullt verð fengist fyrir þessar eignir bankans en lánsfjárkrísan sem staðið hefur yfir síðan á haustmánuðum 2007 setur strik í reikninginn. Bankamaður, sem starfað hefur á fjármálamörkuðum í New York, Asíu og Lundúnum sagði í samtali við fréttastofu að raunhæft væri að áætla að um 70% af heildarverðmæti útlánasafnsins fengist tilbaka. Miðað við þá útreikninga ætti Landsbankinn að fá um 512 milljarða, einvörðungu fyrir lánasafn bankans í Lundúnum. Af þeim 730 milljörðum sem bankinn lánaði frá Lundúnum námu útlán til íslensku útrásarinnar rúmum 130 milljörðum eða rétt tæpum 18% af heildarútlánum útibúsins Ef litið er á lánasafn bankans má t.a.m. sjá að Novator Pharma, betur þekkt sem Actavis, er stærsti einstaki lántaki bankans. Það félag er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, fyrrum eigenda bankans í gegnum fjárfestingafélag hans, Novator. Útistandandi skuld Novator Pharma við Landsbankann nemur um 41 og hálfum milljarði. Þá nema heildarskuldbindingar Baugs og tengdra fyrirtækja um 58 milljörðum króna eða 8% af útlánasafninu. Skilanefnd Landsbankans hefur nú tekið yfir þau veð og þar með þurrkað lánin út. Samtals nema því skuldbindingar Novator Pharma og félaga í eigu Baugs, hjá Landsbankanum, um 100 milljörðum íslenskra króna.
Tengdar fréttir Landsbankinn í London lánaði útrásarvíkingum 130 milljarða króna Eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum koma eignir Landsbankans í London til með að ganga upp í skuldir íslenska ríkisins vegna Icesave innistæðna. 8. júní 2009 16:23 Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira
Landsbankinn í London lánaði útrásarvíkingum 130 milljarða króna Eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum koma eignir Landsbankans í London til með að ganga upp í skuldir íslenska ríkisins vegna Icesave innistæðna. 8. júní 2009 16:23