Telur ólíklegt að vaxtagreiðslur skýri veikingu krónunnar 11. júní 2009 09:50
Hagfræðideild Landsbankans telur ólíklegt að vaxtagreiðslur til erlendra eigenda ríkisbréfa í þessum mánuði skýri veikingu krónunnar. Þetta kemur fram í Hagsjá deildarinnar. Á morgun föstudag fer fram lokagjalddagi á RIKB090612, en markaðsvirði þess flokks er rúmir 70 milljarðar kr. Bréfið ber 8,5% vexti og því má áætla að rúmlega 6 milljarða kr. vaxtagreiðsla verði greidd út í lok vikunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Lánamálum ríkisins var um 80% af flokknum í eigu útlendinga í lok febrúar síðastliðnum. Áfallna vexti af skuldabréfum má yfirfæra frá þeim degi er vaxtagreiðsla fer fram en nýlega áréttaði Seðlabankinn að gjaldeyrisreglur heimiluðu aðeins að yfirfæra vexti í hlutfalli við þann tíma sem viðkomandi aðili hefur átt skuldabréfið. Með þessu er komið í veg fyrir að erlendir aðilar geti keypt þá ríkisbréfaflokka sem eru með vaxtagjalddaga á næstunni til þess að geta flutt út alla vaxtagreiðsluna. Þessu til viðbótar má áætla að um rúmlega hálfur milljarður króna falli til í vaxtagreiðslur af innstæðubréfum, SI 090624, en útistandandi í dag alls 67 milljarðar kr í þessum flokk. Erlendir aðilar eiga langstærstan hluta þessara innstæðubréfa. Þá eru ótaldir vextir af innlendum bankainnistæðum erlendra aðila en þær hafa að öllum líkindum vaxið hratt undanfarið samhliða því að jöklabréf hafa fallið á gjalddaga og höfuðstólsgreiðslunni verið komið fyrir í skammtímaávöxtun. Tveir jöklabréfagjalddagar eru í júní, annar þeirra var að upphæð 10 milljarðar kr. þann 2. júní en sá seinni, 4 milljarðar kr., er á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Í tengslum við þessa tvo gjalddaga má búast við um 1,5 milljarða kr. vaxtagreiðslu. En samkvæmt túlkun Seðlabankans á gjaldeyrislögunum er ekki heimilt að skipta vöxtum af erlendum skuldabréfum sem gefin eru út af erlendum aðilum í krónum, þ.e. jöklabréfum, yfir í erlendan gjaldeyri. „Þegar upp er staðið er því útlit fyrir að aðeins sé heimilt að skipta takmörkuðum hluta ofantalinna vaxtagreiðsla yfir í erlenda mynt og því ólíklegt að þessir gjalddagar skýri veikingu krónunnar síðustu daga," segir í Hagsjánni. Í gær veiktist krónan um 0,8% á móti evrunni og nemur veiking þessarar viku því alls 3,1%. Evran kostaði í lok dags 180 kr. eftir að hafa farið hæst í 182 innan dagsins. Evran hefur ekki verið dýrari frá því í byrjun desember þegar hún fór hæst í um 187 kr., en hún hefur aldrei verið dýrari. Svo virðist sem aukin vantrú sé á krónunni og að enn sé komin upp sú staða að gjaldeyrir sé ekki að skila sér að fullu inn á markaðinn. Ljóst er á meðan að útstreymi gjaldeyris er meira en innstreymi þá er hætt við að krónan haldi áfram að gefa eftir.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira