Fleiri fréttir

Kaupmáttur hefur rýrnað um tæp 6%

Kaupmáttur launa á Íslandi er tæplega sex prósentum minni en hann var fyrir hrun. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Gríðarlegir hagsmunir í þjónustu vegna olíuleitar

Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri iðnaðar hjá Mannviti, segir að gríðarlegir hagsmunir séu í húfi fyrir sveitarfélög á Austurlandi vegna olíuleitar á Drekasvæðinu. Frá þessu er greint í fréttaritinu Austurglugganum.

Loksins íslenskt lyklaborð á Apple græjunum

Nýja stýrikerfið iOS 6 frá Apple skartar mörgum nýjungum. Ein þeirra er alvörunni íslenskt lyklaborð með stafina Æ, Þ, Ð og Ö sýnilega. Þetta kemur fram á tækniblogginu Símon.is.

Segir Japani geta lært af Íslendingum

Japanir geta lært mikið af skipulagi sjávarútvegsmála á Íslandi. Þetta segir Dr. Masayuki Komatsu, prófessor í Japan og ráðgjafi japanskra stjórnvalda á sviði sjávarútvegsmála til margra ára.

Þjófar komust fyrstir í iPhone 5 í Japan

Margir virðast hafa áhuga á nýjustu græju Apple, iPhone 5, þeirra á meðal japanskir bófar, því nú lítur út fyrir að verslanir í Japan hafi verið rændar stuttu áður en síminn átti að koma í almenna sölu. Ránsfengurinn er talin um 100 þúsund dollara virði, eða rúmlega 12 milljóna króna.

Sunnlendingar óánægðir með skattahækkunina

Markaðsstofa Suðurlands hvetur stjórnvöld til að hverfa frá boðaðri hækkun virðisaukaskatts á gistingu. Hækkun virðisaukaskatts þykir til þess fallin að grafa undan viðleitni Sunnlendinga til að laða ferðamenn að landsfjórðungnum.

Telur stöðumat Bjarna fela í sér hrapalleg mistök

Einhver hrapallegustu utanríkispólitísku mistök þjóðarinnar fram til þessa voru kolrangt stöðumat í viðræðum við Bandaríkjamenn um framhald varnarviðbúnaðar hér, sem endaði með því að þeir fóru með öllu, segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra í vikulegum pistli sínum í helgarblaði Fréttablaðsins.

"Skýrslan lítur svolítið út eins og pantað plagg"

Skýrsla Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum sem kom út í vikunni var upphaflega skrifuð til að fjalla um íslensku krónuna eða evruna sem valkosti fyrir Ísland. Þetta kom fram í umræðum í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag.

Fjölgar í flugblaðaflórunni

Pálmi Haraldsson og félagar hjá Iceland Express virðast vera að ná vopnum sínum eftir fáheyrðar hrakfarir síðasta árs. Í gær var tilkynnt um að þar á bæ hygðust menn feta í fótspor Flugfélags Íslands og Icelandair og hefja útgáfu nýs flugtímarits fyrir farþega. Í vélum Icelandair gefst fólki kostur á að lesa tímaritið Atlanta - sem Iceland Review sér um - og í innanlandsfluginu má glugga í Ský. Nýja blaðið í Express-vélunum heitir því viðeigandi nafni flyXpress og er gefið út af Birtíngi. Við stjórnvölinn er Hrund Þórsdóttir, sem einnig ritstýrir Mannlífi.

Hundruð Íslendinga forpöntuðu iPhone 5

Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Epli.is, býst við því að eftirspurn eftir iPhone 5 verði meiri en framboðið hér á landi og erfitt verði að komast yfir gripinn fram að jólum.

Leiguverðið hækkar mest miðsvæðis

Leiguverð hefur hækkað umtalsvert að undanförnu en algengt er á þessum árstíma að námsfólk leigi sér húsnæði eða endurnýji leigusamninga. Lögfræðingur Neytendasamtakanna gefur leigutökum og leigusölum einfalt ráð til að koma í veg fyrir vandræði. Það er að hafa allt skriflegt sem samið er um.

Styttist í samninga um fjármögnun Vaðlaheiðarganga

Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, vonast til þess að gengið verði endanlega frá samningum um fjármögnun Vaðlaheiðarganga á næstu dögum. Þetta sagði Eiríkur í samtali við vikudag á Akureyri eftir fund hans með fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra.

Íbúðalánasjóður leigi út eignir sínar

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs skorar á Íbúðalánasjóð að auglýsa eignir sjóðsins á Fljótsdalshéraði til leigu. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í vikunni.

Skuldir Álftaness minnka

Skuldir og skuldbindingar Álftaness voru 7,2 milljarðar í árslok 2009 en verður komin í 3,2 milljarða í lok þessa árs verði af sameiningu sveitarfélagsins við Garðabæ.

Heiðar Már: Hér getur skapast lögfræðilegt stríðsástand

"Hættan er sú að ef kröfuhafar undirrita nauðasamninga án þess að tryggt sé að þeir geti ekki komið eignum sínum út á undan öllum landsmönnum, þá skapist hér lögfræðilegt stríðsástand," segir Heiðar Már Guðjónsson, hagfræðingur, í grein í Fréttablaðinu í dag.

Guðlaugur vill ræða um þrotabú bankanna

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur mikilvægt að efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis ræði framkvæmd Seðlabankans á gjaldeyrishöftunum og hættu sem steðjar af Íslandi ef erlendir kröfuhafar ná yfirráðum yfir þrotabúum bankanna.

Kaupþing frestar nauðasamningi

Kaupþing hefur frestað framlagningu nauðasamnings fram á síðasta ársfjórðung ársins 2012. Áður stóð til að leggja nauðasamninginn fram á þriðja ársfjórðungi, sem lýkur í lok septembermánaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef þrotabús Kaupþings sem birt var í gær.

Apple biðst afsökunar

Tæknirisinn Apple hefur beðið viðskiptavina sína afsökunar og heitir því að uppfæra staðsetningarþjónustu sína á næstu vikum. Fyrirtækið ákvað að slíta samstarfi sínu við Google fyrir nokkru en fyrri kynslóðir iPhone snjallsímanna sem og iPad spjaldtölvanna hafa notað Google Maps kortaþjónustuna.

Dúkkulísurnar flytja fé til Vestfjarða

Dress up games ehf., sem rekur Dúkkulísuvefinn Dressupgames.com, hagnaðist um 48,8 milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi félagsins. Það er nokkru minna en árið 2010 en þá hagnaðist félagið um ríflega 88 milljónir króna. Eigið fé félagsins nam 192 milljónum í lok síðasta árs. Eignir félagsins námu 257 milljónum króna og skuldir rúmlega 65 milljónir, þar af námu viðskiptaskuldir tæplega 50 milljónum króna.

Þingmenn gefast ekki upp fyrir Seðlabankanum

Samstaða er um það í fjárlaganefnd Alþingis að reyna til þrautar að krefja Seðlabanka Íslands upplýsinga um það af hverju tekin var ákvörðun um að lána Kaupþingi 500 milljóna evra þrautavaralán örfáum dögum fyrir hrun bankans og hvernig staðið var að ákvörðuninni.

Ætla að setja lög um smálán

Til stendur að setja lög um smálán, eða svokölluð neytendalán, þar sem meðal annars verður kveðið á um hámarksvexti lánanna.

Harpa Ólafsdóttir: Þurfum að gæta hagsmuna okkar sjóðsfélaga

Harpa Ólafsdóttir, formaður stjórnar Gildis, segir sjóðinn ítrekað hafa óskað eftir því að fá betri sundurliðun á kostnaði hjá slitastjórn Glitnis, en ekki fengið. Það sé óásættanlegt þar sem sjóðsfélagar eigi heimtingu á því að fá þessar upplýsingar nákvæmlega niðurgreindar.

Húsasmiðjan stækkar við sig í Vestmannaeyjum

Húsasmiðjan og Blómaval opna í dag nýja 1.100 fermetra verslun í Vestmannaeyjum. Verslunin er í nýju húsi, sem byggt hefur verið sérstaklega fyrir Húsasmiðjuna, að Græðisbraut 1.

WOW air flýgur til Gatwick

Frá og með deginum í dag mun WOW air hefja áætlunarflug til Gatwick flugvallar. Í vetur verður flogið til Lundúna alla föstudaga og heim til Íslands á mánudögum. Í sumaráætlun félagsins mun ferðum fjölga til muna en flogið verður átta sinnum í viku til Gatwick flugvallar. Gatwick flugvöllur er annar stærsti flugvöllur Bretlands og er ein af flugbrautum vallarins meðal þeirra fjölförnustu í heiminum. Flugvöllurinn þjónar um 34 milljónum farþegar sem koma frá 200 áfangastöðum í 90 löndum. Flugvöllurinn er staðsettur 28 km. suður af Lundúnum og er vel tengdur með opinberum samgöngum, þar með talið Gatwick Express hraðlestinni. Gatwick Airport er í eigu hóps alþjóðlegra fjárfesta en Global Partners er einn stærsti hluthafinn.

Lítilsháttar aukning á kaupmætti launa

Vísitala kaupmáttar launa í ágúst er 112,2 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,7%.

Deilu Actavis og Sanofi vísað til Evrópudómstólsins

Dómari í London hefur vísað deilu Actavis og franska lyfjaframleiðandans Sanofi til Evrópudómstólsins. Deilan snýst um að Actavis vill fá leyfi til að framleiða samheitalyfjaútgáfu af lyfinu Aprovel en einkaleyfi Sanofi á því er runnið út.

Deutsche Bank fór úr landi með 15 milljarða Lýsingarfé

Dótturfélag Lýsingar seldi gjaldeyri til að greiða Deutsche Bank 35 milljarða króna skuld í mars 2012. Þýski bankinn fór með hluta upphæðarinnar úr landi. Greiðslan hafði ekki áhrif á gengi íslensku krónunnar.

Viðtökurnar framar vonum

Victoria?s Secret Beauty & Accessories- verslunin í brottfararverslun Fríhafnarinnar var opnuð í febrúar á þessu ári og hefur verið tekið opnum örmum af íslenskum sem erlendum konum. Verslunin er sú eina sinnar tegundar á Norðurlöndum.

Viðtökurnar framar vonum

Victoria‘s Secret Beauty & Accessories-verslunin í brottfararverslun Fríhafnarinnar var opnuð í febrúar á þessu ári og hefur verið tekið opnum örmum af íslenskum sem erlendum konum. Verslunin er sú eina sinnar tegundar á Norðurlöndum.

Sala á hlut banka gæti skilað 82 milljörðum

Verði frumvarp um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum að lögum fær Oddný G. Harðardóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, heimild til að selja 13 prósenta hlut í Arion banka, fimm prósenta hlut í Íslandsbanka, allt að 28 prósenta hlut í Landsbankanum og allt hlutafé sem ríkið á í sparisjóðum landsins. Í frumvarpinu, sem var lagt fram í gær, kemur fram á að leggja skuli áherslu á "opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni“ við söluna sem Bankasýsla ríkisins á að annast. Með hagkvæmni er átt við að leitað verði hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignarhlutina.

Spánverjar þurfa minna fé til að bjarga bönkum sínum

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að Spánverjar þurfi minna lánsfé til að bjarga bankakerfi sínu en talið var að þeir þyrftu í sumar. Lánsfjárþörfin sé nær 40 milljörðum evra en þeim 100 milljörðum evra, eða um 16.000 milljörðum kr., sem rætt var um í sumar.

Nýtt himneskt ofurfæði á markað

Eftirspurn eftir heilsufæði og lífrænu fæði hefur aukist mikið á undanförnum árum. "Það eru skemmtilegir tímar fram undan í heilsu- og hollustumálum því aðgengi að góðum heilsuvörum er alltaf að aukast," segir Solla Eiríks, sem stofnaði vörulínuna Himneskt ásamt manninum sínum, Elíasi Guðmundssyni.

UNA annast húð þína af alúð

Á sólríkum dögum sumars heilsaði Una með einstökum andlitskremum. Kremin eru rík af náttúrulegum og lífrænum innihaldsefnum, sérvöldum til að veita húðinni það allra besta. Una varðveitir samspil hafs og vísinda með lífefnum úr íslenskum sjávarþörungum.

PurePharma væntanlegt til Íslands

PurePharma er alþjóðlegt fyrirtæki sem er staðsett í Danmörku. Fyrirtækið framleiðir eingöngu nokkur vísindalega sannreynd fæðubótaefni sem virkilega hafa áhrif á heilsufar fólks. Sportlíf mun bráðlega selja PurePharma-vörurnar í verslunum sínum. Að sögn Jóns Inga Þrastarsonar, verslunarstjóra Sportlífs í Glæsibæ og talsmanns PurePharma á Íslandi, er tilgangur sá að setja á markað hérlendis Omega-3 fiskiolíu, D-vítamín og nauðsynleg steinefni í hæsta gæðaflokki fyrir fólk og íþróttamenn sem gera miklar kröfur.

Málareksturinn í Icesave kostar 140 milljónir

Gert er ráð fyrir því að kostnaðurinn við málsvörnina í Icesave málinu kosti 140 milljónir króna. Þetta kemur fram í fjáraukalögum fyrir árið 2012 sem dreift var á Alþingi í dag. Auk 140 milljóna króna sem fara í málareksturinn sjálfan er óskað eftir 13 milljóna króna framlagi til þess að kynna sjónarmið Íslands erlendis.

BMW semur við Verne Global

Þýska stórfyrirtækið BMW hefur bæst í hóp viðskiptavina Verne Global á Íslandi. Bílaframleiðandinn mun sannreyna hönnuð mót fyrir nýjustu bifreiðar sínar í gagnaveri fyrirtækisins í Reykjanesbæ.

Íslenska ríkið greiðir 260 milljónir í skaðabætur

Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða Íslenskum aðalverktökum hf. og NCC International AS tæpar 259 milljónir króna með dráttarvöxtum frá 10. ágúst 2003 til 10. janúar 2007 í skaðabætur vegna útboðs Vegagerðarinnar um gerð Héðinsfjarðarganga. Með niðurstöðunni snýr Hæstiréttur við niðurstöðu Héraðsdóms.

Ósvikin gæði í Senseo kaffinu

Senseo kaffi hefur verið á markaði á Íslandi síðan 2004 og hefur það unnið hug og hjörtu landsmanna. Meirihluti íslenskra heimila státar af Senseo kaffivél og þegar Senseo kaffipúðar eru valdir í vélina er útkoman kaffi með silkimjúkri áferð og froðutopp sem einkennir ekta Senseo kaffi.

Össur: Evran á bjartari tíð framundan

"Ég er þeirrar skoðunar að nú horfi töluvert betur fyrir framtíð evrunnar en áður," sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, á Alþingi í dag. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, velti því upp hvort ekki væri kominn tími til að draga aðildarumsóknina til baka.

Um 10 starfsmenn launahærri en Jóhanna

Eins og stendur eru um 10 manns í stjórnkerfinu með hærri laun en forsætisráðherra. Aftur á móti er það aðeins forseti sem er með hærri dagvinnulaun en forsætisráðherra. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag.

Sjá næstu 50 fréttir