Þingmenn gefast ekki upp fyrir Seðlabankanum Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. september 2012 13:27
Samstaða er um það í fjárlaganefnd Alþingis að reyna til þrautar að krefja Seðlabanka Íslands upplýsinga um það af hverju tekin var ákvörðun um að lána Kaupþingi 500 milljóna evra þrautavaralán örfáum dögum fyrir hrun bankans og hvernig staðið var að ákvörðuninni. Að sögn Björns Vals Gíslasonar, formanns fjárlaganefndar, hefur Seðlabankinn í tvígang neitað að veita upplýsingar málið, en komið hefur fram að Seðlabanki Íslands á upptökur af samtali Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra, og Geirs Haarde, þáverandi forsætisráðherra, þar sem þeir ræða forsendur lánsins. Fjárlaganefnd fundaði í morgun með yfirlögfræðingi Alþingis þar sem rædd voru þau úrræði sem fjárlaganefnd hefur til að krefjast þessara upplýsinga. „Við viljum vita hvað þeim fór í milli," segir Björn Valur Gíslason. Björn Valur segir að Seðlabankanum verði sent þriðja bréfið. „Eða að við munum grípa til einhverra annarra ráða sem tiltæk eru og rúmast innan heilbrigðrar skynsemi, til að fá vilja okkar fram. Það er eiginlega ófært annað," segir Björn Valur.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira