Íslenska ríkið greiðir 260 milljónir í skaðabætur BBI skrifar 20. september 2012 17:03 Héðinsfjarðargöng.
Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða Íslenskum aðalverktökum hf. og NCC International AS tæpar 259 milljónir króna með dráttarvöxtum frá 10. ágúst 2003 til 10. janúar 2007 í skaðabætur vegna útboðs Vegagerðarinnar um gerð Héðinsfjarðarganga. Með niðurstöðunni snýr Hæstiréttur við niðurstöðu Héraðsdóms.Hætt við framkvæmdir Vegagerðin efndi til útboðs á gerð Héðinsfjarðarganga milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar árið 2003. Íslenskir aðalverktakar hf. og NCC International AS áttu þá lægsta tilboðið í verkið. Ríkisstjórnin hætti hins vegar við framkvæmdirnar vegna þenslu í þjóðfélaginu. Því neyddist Vegagerðin til að hafna öllum tilboðunum. Þremur árum síðar var aftur ákveðið að gera göngin og Vegagerðin bauð verkið út aftur. Þá áttu Metrostav a.s. og Háfell ehf. lægsta tilboðið. Framkvæmdum við göngin lauk að fullu árið 2011.Misstu af verkinu Íslenskir aðalverktakar hf. og NCC International AS misstu því af framkvæmdunum við Héðinsfjarðargöng. Fyrirtækin töldu að það hefði valdið þeim tjóni og höfðuðu skaðabótamál á hendur ríkinu. Árið 2005 komst Hæstiréttur að því að ríkið bæri skaðabótaskyldu vegna atvikanna en í dag fékkst endanleg niðurstaða um hve háar bæturnar eiga að vera.Kort af Héðinsfjarðargöngunum.Fyrirtækin kröfðust aðallega tæplega 479 milljóna króna. Sú krafa byggði á útboðsgögnum útboðsins árið 2003. Hæstiréttur féllst ekki á þessa kröfu enda sýndu útreikningar matsmanna að hún stóðst ekki. Hins vegar var fallist á varakröfu fyrirtækjanna sem hljóðaði upp á tæpar 260 milljónir. Hún byggði á matsgerð matsmanna. Upphæðin tekur mið af verklaunum fyrirtækjanna fyrir verkið ef það hefði verið framkvæmt og kostnaði sem fyrirtækin hefðu borið vegna þess. Fyrirtækin voru ekki látin bera hallann af því að hafa ekki gripið til sérstakra aðgerða til að takmarka tjón sitt.Héraðsdómur Héraðsdómur hafði komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtækin hefðu ekki lagt fram öll gögn sem tiltæk voru og því ekki sannað að þau hefðu í raun orðið fyrir tjóni við að missa af framkvæmdunum við Héðinsfjarðargöng.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira