Samstarf

Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki

Göngugreining
Búnaðurinn hjá Göngugreiningu.is er einn sá fullkomnasti sem völ er á, þrýstiplata með yfir 10.000 þrýstinemum, hlaupabretti, upptökubúnaður og fullkomin hugbúnaður greinir skekkjur í hælum / ökklum og hvort hné færast út eða inn.
Búnaðurinn hjá Göngugreiningu.is er einn sá fullkomnasti sem völ er á, þrýstiplata með yfir 10.000 þrýstinemum, hlaupabretti, upptökubúnaður og fullkomin hugbúnaður greinir skekkjur í hælum / ökklum og hvort hné færast út eða inn.

Þrálátir verkir í stoðkerfi geta átt upptök sín í lítilli skekkju í líkamanum. Göngugreining.is hefur hjálpað tugi þúsunda Íslendinga við að jafna álagið upp líkamann með sérhönnuðum innleggjum, sérvöldum skóm og fjölbreyttum stoðvörum.

„Við ættum að vera fyrsti viðkomustaður fólks ef það finnur fyrir verkjum í líkamanum. Það þarf enga tilvísun, fólk pantar bara tíma gegnum síðuna og mætir til okkar í Lágmúla 4. Við höfum á 30 árum tekið á móti 85.000 manns í göngugreiningu og búið til um 100.000 innlegg í skó,“ segir Lýður B. Skarphéðinsson, sérfræðingur í göngugreiningu en hann rekur Göngugreining.is ásamt Elvu Björk Sveinsdóttur.

Eigendurnir Lýður B. Skarphéðinsson og Elva Björk Sveinsdóttir sjá um göngugreiningar

Hann segir greiningu geti leyst algeng vandamál í stoðkerfinu. Með því að laga skekkjur í hælum, ökklum og bregðast við mislengd ganglima jafnast álagið á fæturna og upp allt stoðkerfið.

„ Allir ættu að fara í göngugreiningu, það er eins og að fara með bílinn í „ballanseringu“ eftir dekkjaskipti,“ 

„Með göngugreiningu má vinna á verkjum frá baki og niður í hæla. Við fáum til okkar fólk á öllum aldri. Yngstu börnin sem koma í göngugreiningu eru 2 og hálfs árs en skekkjur í fótum geta gert það að verkum að þau vakna grátandi á nóttunni,“ segir Lýður. Við fáum til okkar börn og unglinga í íþróttum sem æfa mikið á gervigrasi, oft með verki í hælum, vandamál sem okkur gegnur vel með. Aldurshópurinn 15- 30 ára er oft virkur í vinnu hreyfingu og íþróttum, 30 -70 ára er að ganga, hlaupa og oft að vinna á fótunum . Fólk yfir 70 stundar golf, göngur og fjölbreytta líkamsrækt.

Krakkar sem æfa íþróttir, til dæmis á gervigrasi hafa notið góðs af greiningu.

Hvað er gert?

Göngugreiningin tekur 30 mínútur. Þá skoðum við allar skekkjur í ökklum og hvernig álagið dreifist á fæturna. Þreyfum eftir tábergssigi, ilsigi, hælspora og öðrum fótameinum. Verkir öðru megin í líkamanum gætu verið merki um að annar fóturinn sé styttri,“ útskýrir Lýður.

Búnaðurinn er einn sá fullkomnasti sem völ er á, þrýstiplata með yfir 10.000 þrýstinemum, hlaupabretti, upptökubúnaður og fullkomin hugbúnaður greinir skekkjur í hælum / ökklum og hvort hné færast út eða inn. Mælum mislengd fóta, bæði frá mjöðmum og frá hnjám og niður.

„Við fáum mikið af fólki eftir mjaðmaskipti og hnéskipti, oft er annar fóturinn styttri eftir liðskipti.“

Gerð innleggja og smíði fer eftir því hvert vandamálið er.

Hver er lausnin?

„Sérgerð innlegg eru okkar aðal tól, hitamótandi innlegg passa í skó sem bjóða ekki upp á mikið pláss s.s. fótboltaskó og skíðaskó, höggdempandi innlegg sem passa í íþróttaskó, vinnuskó og gönguskó, fínni innlegg sem passa í spariskó og einnig breytum við inniskóm. Gerð innleggja og smíði fer eftir því hvert vandamálið er og í hvað á að nota innleggin. Skór skipta miklu máli og við hjálpum fólki að velja skó miðað við fótlag og niðurstig, erum með skó frá Hoka og Asics í mismunandi breiddum og gerðum fyrir göngu, hlaup og vinnu .“

Sérvörur fyrir fætur og samstarf við heilbrigðisstarfsfólk

„Við erum sérfræðingar í fótum og bjóðum margar ólíkar vörur fyrir fætur. Þar má nefna sérhæfða sokka við verkjum í iljum, þrýstisokka fyrir beinhimnubólgu og aðra fyrir útvöxt beina. Nettar en öflugar hnéhlífar, hækkunarpúða, höggdempandi púða, táskiljur og fullt af fótavörum og spelkum. Hjá okkur starfar fótaaðgerðafræðingur en stundum þarf að fjarlægja vörtur eða sigg sem myndast vegna álags, áður en hægt er að fara að nota innlegg. Markmiðið er alltaf að færa álagið á réttan stað. Ef þú ert með verki í baki, mjöðmum, hnjám, ökklum eða fótum, þá áttu að koma til okkar,“ segir Lýður.

Göngugreining er til húsa í Lágmúla 4.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×