Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr verkefnastjóri í Norræna húsið Norræna húsið auglýsti nýlega eftir stöðu verkefnastjóra og sóttu um 130 manns um starfið. Ákveðið var að ráða Kristínu Scheving myndlistarmann, sýningarstjóra og verkefnisstjóra. Í tilkynningu fagnar Norræna húsið komu Kristínar og tekið er fram að margir mjög hæfileikaríkir einstaklingar hafi sótt um starfið. 20.9.2012 15:48
Óska eftir heimild til sölu á hlutum ríkisins í bönkunum Fjármálaráðherra fær heimild til að selja allan hlut íslenska ríkisins í Arion banka og Íslandsbanka, auk þess sem honum verður heimilt að selja ríflega 11% hlut í Landsbankanum, samkvæmt nýju frumvarpi sem dreift var á Alþingi í morgun. Frumvarpið gerir auk þess ráð fyrir að ráðherra fái heimild til þess að selja hluti ríkisins í sparisjóðunum. Frumvarpið var áður lagt fram á síðasta kjörtímabili en var ekki afgreitt. 20.9.2012 12:46
Þingmenn Samfylkingar: Evran yrði farsælust fyrir þjóðina Alþingismenn ræddu nýbirta skýrslu Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldeyrismálum á þingi í morgun. Skýrslan bendir til þess að þjóðin eigi aðeins tvo raunhæfa kosti, að nota áfram íslensku krónuna eða taka upp Evru. Þingmenn Samfylkingarinnar sammæltust um að upptaka Evru yrði farsælli fyrir þjóðina. 20.9.2012 12:09
Baldur segir eðlilegar ástæður fyrir sölu íbúðabréfa Baldur Guðlaugsson segir í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum fyrir stundu að honum væri ekki kunnugt um að viðskipti, sem Kastljós greindi frá í gærkvöldi, sættu sérstakri rannsókn. 20.9.2012 12:05
Sigurður ráðinn framkvæmdastjóri Athygli Sigurður Sverrisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Athygli ehf. en hann gerðist hluthafi í fyrirtækinu fyrir skömmu. Hann tekur við starfinu af Valþóri Hlöðverssyni sem verður nú stjórnarformaður fyrirtækisins. 20.9.2012 10:44
Spáir aukinni verðbólgu á næstunni Greiningardeild Arion banka spáir 0,7% hækkun á vísitölu neysluverðs í september. Þar með eykst ársverðbólgan úr 4,1% og í 4,2% en verðbólgan hjaðnaði myndarlega í síðasta mánuði. 20.9.2012 10:25
Bílakaup gætu dregist saman um 50% Bílakaup bílaleiga gætu dregist saman um 50% ef hugmyndir ríkisstjórnarinnar, um afnám afsláttar sem íslenskar bílaleigur njóta af vörugjöldum vegna bílakaupa sinna, verða að veruleika. 20.9.2012 09:51
Byggingarvístalan hækkar um 0,3% Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan september 2012 er 115,2 stig sem er hækkun um 0,3% frá fyrri mánuði. 20.9.2012 09:51
Kaupþing hættir við málshöfðun gegn Vestmannaeyjabæ Slitastjórn Kaupþings hefur ákveðið að fella niður málshöfðun þá er höfðuð var á hendur Vestmannaeyjabæ til riftunar greiðslu Kaupþings hf. til Vestmannaeyjabæjar frá 8. september 2008, upp á rétt rúman milljarð kr. 20.9.2012 09:08
Íbúðaverð í borginni lækkar en veltan á markaðinum eykst Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands. Hinsvegar hefur veltan á íbúðamarkaðinum aukist töluvert í sumar miðað við sama tímabil í fyrra. 20.9.2012 07:11
Landsbréf taka við rekstri eigna Horns Fjárfestingafélags Fjármálaeftirlitið veitti Landsbréfum hf. 11. september sl. leyfi til eignastýringar. Leyfið gefur Landsbréfum tækifæri til að annast verkefni á sviði stýringar eigna fyrir þriðja aðila og eykur því verulega möguleika félagsins á að þjóna viðskiptavinum sínum. 19.9.2012 17:23
Gengi bréfa Regins hækkaði mest Hlutabréf í fasteignafélaginu Regin hækkuðu um 0,8 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 9,5. Þegar félagið var skráð á markað á sumarmánuðum var gengi bréfa félagsins 8,25. 19.9.2012 17:10
Ferðamenn fá húsnæði námsmanna Biðlistar eftir íbúðum á stúdentagörðum hjá Félagsstofnun stúdenta hafa aldrei verið lengri en nú í haust. Félagsstofnun stúdenta telur að ódýrara húsnæði miðsvæðis í Reykjavík sé í sífellt meira mæli leigt út til ferðamanna. Fyrir vikið minnkar framboð af leiguhúsnæði fyrir námsmenn. 19.9.2012 15:58
Seðlabankinn: Frétt Morgunblaðsins í flestum atriðum röng „Fréttin á forsíðu Morgunblaðsins um undanþágur frá lögum um gjaldeyrismál er í flestum atriðum röng,“ segir í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands, vegna fréttar sem birtist í Morgunblaðinu í morgun, þess efnis að Deutsche Bank og stórt erlent fjárfestingafélag, hafi fengið undanþágu frá Seðlabanka Íslands til að kaupa gjaldeyri fyrir 18 milljarða í skiptum fyrir íslenskar krónur, og flytja fjármagnið úr landi. 19.9.2012 14:56
Japanski seðlabankinn grípur til aðgerða Japanski seðlabankinn hefur ákveðið að grípa til aðgerða með það fyrir augum að styðja við hagvöxt og styrkja efnahag landsins. Áætlun bankans gengur út að stækka stuðningssjóðs landsins um 78 milljarða dala, eða sem jafngildir tæplega 10 þúsund milljörðum króna. Sjóðurinn er nýttur til þess að kaupa skuldabréf á markaði með það fyrir augum að halda lántökukostnaði Japans niðri, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. 19.9.2012 14:41
Íbúðaleiga hækkar verulega í verði Leiguverð hækkaði um 1,3% í ágúst mánuði samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands sem birtir mánaðarlega vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverð hefur samkvæmt þessari mælingu hækkað mikið í sumar, eða um tæp 7% síðan í maí síðastliðnum. Þessi hækkun leiguverðs virðist hinsvegar aðeins eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu þar sem vísitala leiguverðs sem Hagstofan tekur saman og endurspeglar leiguverð á landinu öllu hefur aðeins hækkað um 0,8% á sama tímabili. Þessi mikla hækkun leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu á þessum árstíma endurspeglar sókn námsmanna í íbúðir áður en skólarnir hefjast á haustin. 19.9.2012 13:48
Robert Parker: Dýfa gæti komið á mörkuðum í desember Robert Parker, aðalráðgjafi Credit Suisse, segir að alþjóðamarkaðir með hlutabréf gætu tekið dýfu í desember næstkomandi þar sem skattalagabreytingar sem samþykktar voru í bandaríska þinginu taka gildi 1. janúar næstkomandi. Þær eru margvísslegar og gætu valdið óróleika hjá fjárfestum. Þetta kom fram í ræðu Parkers á haustráðstefnu MP banka sem nú stendur yfir í Turninum í Kópavogi. Í ræðu sinni fjallar Parker um stöðuna á alþjóðamörkuðum. Parker spáir því að Grikkir muni yfirgefa evrusvæðið árið 2013. Ekkert geti bjargað Grikklandi. 19.9.2012 13:13
Gríðarlegur hagnaður hjá eiganda Zöru Smásölurisinn Inditex, sem meðal annars á vörumerkið Zöru, hagnaðist um 944 milljónir evra, eða 149 milljarða króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn jókst um 32 prósent milli ára, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC um málið. Indetex rekur 5.693 verslanir í 85 löndum, en á fyrstu sex mánuðum ársins opnaði félagið 166 nýjar verslanir. 19.9.2012 11:39
Eldsneytisverð lækkar Atlantsolía og Skeljungur hafa ákveðið að lækka verð á bensíni og dísil olíu um tvær krónur á lítrann. Ástæðan er lækkandi heimsmarkaðsverð. 19.9.2012 11:01
Saudiarabar skrúfa frá olíukrönum sínum til að lækka olíuverðið Saudiarabar ætla sér að skrúfa enn frekar frá olíukrönum sínum til þess að lækka heimsmarkaðsverð á olíu. Þeir telja að verðið sé of hátt og vilja að það lækki niður í um 100 dollara á tunnuna. 19.9.2012 10:39
Ósáttir við að Skeljungur noti nafn Orkunnar Fyrirtækið Orka ehf hefur stefnt Skeljungi fyrir að nota nafnið Orkan í atvinnustarfsemi, en Orka er fyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi og viðgerðum á bílrúðum sem og sölu á bílalakki og öðrum vörum sem tengjast bifreiðum. Fyrirtækið var stofnað árið 1944.365 19.9.2012 10:03
Allar bestu vefsíðurnar fyrir konur Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes tók á dögunum saman lista yfir 100 bestu vefsíðurnar á netinu fyrir konur. Á listanum eru margvíslegar vefsíður, um hin ýmsu mál, sem allar eiga það sameiginlegt að fjalla sérstaklega um áhugamál kvenna. 19.9.2012 09:25
Hagstofan mælir 5,8% atvinnuleysi í ágúst Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í ágúst 2012 að jafnaði 178.300 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 168.000 starfandi og 10.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 79,4%, hlutfall starfandi 74,8% og atvinnuleysi var 5,8%. 19.9.2012 09:08
Skuldatryggingaálag Íslands ekki verið lægra síðan vorið 2008 Svo virðist sem traust fjárfesta í garð íslenska ríkisins fari vaxandi þessa daganna miðað við hvernig skuldatryggingaálagið á Ísland hefur þróast frá fyrrihluta sumars. 19.9.2012 06:14
Nýr og glæsilegur A-class Nýr Mercedes-Benz A-Class er glæsilegur og sportlegur bíll sem kynntur var á bílasýningunni í Genf í mars. Þessi nýja kynslóð bílsins er mikið breytt frá fyrri gerð hvað varðar hönnun og aksturseiginleika. Þá er bíllinn með nýjar vélar sem eru bæði aflmiklar en um leið sparneytnar og umhverfismildar. 19.9.2012 16:28
Metan er 43% ódýrara en bensín Metanbílum fer fjölgandi ár frá ári enda kemur það betur út fjárhagslega að aka slíkum bíl en hefðbundnum bensínbíl svo ekki sé talað um umhverfislegan ávinning. Hjá Metanbill.is er hefðbundnum bensínbílum breytt í metanbíla og var metár í fyrra. 19.9.2012 16:24
Umhverfisvænir bílar í öllum stærðarflokkum hjá Opel Íslendingar hafa farið á mis við trausta gæðinga Opel í hartnær fjögur ár. Þökk sé BL halda þeir nú innreið sína á Íslandsmarkað á ný með ómótstæðilegt úrval traustra og glæsilegra bíla. Þar á meðal er Bíll ársins 2012 í Evrópu; rafbíllinn Opel Ampera sem fylgir bylting í sparneytni og umhverfisvitund. Nýr sýningarsalur Opel var opnaður nú í sumar í Ármúla 17. 19.9.2012 16:20
Nú er enn þá lengra í tóman tank hjá Chevrolet Aveo Chevrolet Aveo Eco fæst nú með ótrúlega sparneytinni dísilvél sem eyðir aðeins 3,6 lítrum á hundraðið. Hann hefur hlotið viðurnefnið draumabíll foreldranna og er fyrsti smábíllinn sem fengið hefur fimm stjörnur í öllum árekstrarprófum, bæði í Evrópu og Ameríku. 19.9.2012 16:07
Bergþóra ráðin framkvæmdastjóri hjá Fastus Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn til starfa hjá Fastus ehf. Bergþóra Þorkelsdóttir tekur við starfinu af Bjarna Halldórssyni, sem mun áfram starfa hjá Fastus og gegna stöðu fjármálastjóra. 19.9.2012 11:00
Íbúðaleiga hefur hækkað um 10,6% á einu ári Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 118,7 stig í ágúst 2012 og hækkaði um 1,3% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,6%. 19.9.2012 10:55
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar töluvert Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert undanfarna tvo daga og kostar Brent olían nú 112,5 dollara á tunnuna. S.l. föstudag stóð verðið í rúmum 117 dollurum og hefur því lækkað um 4%. Hið sama gildir um bandarísku léttolíuna sem er í tæpum 96 dollurum á tunnuna eftir að hafa farið yfir 99 dollara á föstudag. 19.9.2012 06:32
Sala á rafbókum eykst um 188 prósent í Bretlandi Frá áramótum hefur sala á rafbókum í Bretlandi aukist um 188 prósent miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þá hafa vinsældir barnabóka á rafbókarformi aukist verulegan meðan sala á hefðbundnum bókum hefur dregist saman. 18.9.2012 21:30
Argentínumenn kynna sér nýtingu jarðvarma á Íslandi Fjórtán argentínskir ráðherrar eru staddir eru á Íslandi til þess að skoða hvernig Íslendingar nýta sér jarðvarma. Sigurður Óskar Arnarsson var hópnum innan handar í dag og sýndi þeim helstu svæði á Suðurlandi þar sem Íslendingar hafa hagnýtt orku úr jörð. 18.9.2012 22:17
Gengi bréfa Regins hækkar enn Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins, sem skráð var á markað í sumar, hækkaði um 0,8 prósent í viðskiptum dagsins og er gengi bréf félagsins nú 9,43. Þegar félagið var skráð á markað var gengi bréfa félagsins 8,25. 18.9.2012 21:08
Felldu tillögu um útsvarslækkun Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar felldi á fundi borgarstjórnar í dag tillögu um að útsvar verði lækkað í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn lagði lækkunina til svo að hækkanir núverandi meirihluta yrðu dregnar til baka. 18.9.2012 16:46
Tim Ward: Hvergi krafist ríkisábyrgðar Það er ekkert í tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar sem kveður á um að ríkisábyrgðar eða ríkisfjármögnunar sé krafist, sagði Tim Ward, aðalmálflytjandi Íslendinga í Icesavemálinu þegar hann flutti mál Íslands fyrir EFTA dómstólnum í Luxemborg í morgun. "Tilskipunin gerir ríkinu skylt að setja upp og að stjórna innistæðutryggingakerfi, en það er ekkert kveðið á um það að ríkið verði að greiða bætur,“ bætti Tim Ward við. 18.9.2012 14:53
Íslenskt hugvit í Hvíta húsið Íslenska fyrirtækið DataMarket mun kynna nýjan hugbúnað í Hvíta húsinu í byrjun næsta mánaðar. Hugbúnaðurinn er gerður til að safna saman öllum upplýsingum um orkumál í Bandaríkjunum á eina vefgátt. Þannig væri hægt að nálgast allar upplýsingar um orkumál í Bandaríkjunum á einum stað, en hugbúnaðurinn var forritaður að beiðni Hvíta hússins. 18.9.2012 15:00
Minni ásókn í tveggja ára MBA-nám í bandarískum háskólum Dregið hefur stórlega úr umsóknum í tveggja ára MBA-nám í Bandaríkjunum á undanförnum árum, og dró enn úr umsóknum fyrir haustönnina á þessu ári sem var að hefjast. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal (WSJ) í dag, og er vitnað til nýrra talna frá Graduate Management Admission Council (GMAC), sem hefur annast hin svokölluðu GMA próf, sem nemendur þurfa oft að klára með ákveðnum lágmarksárangri til þess að eiga möguleika á því að fá inni í skólum. 18.9.2012 14:12
Málflutningi í Icesave lokið Málflutningi í Icesave málinu lauk í hádeginu að íslenskum tíma, en málflutningurinn tók um þrjár klukkustundir samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Það var Tim Ward sem flutti málið fyrir hönd Íslands en auk hans eru átta manna lögfræðiteymi statt í Lúxemborg vegna málflutningsins. 18.9.2012 13:27
Eignir í bönkum og Landsvirkjun meira en 400 milljarða virði Eignarhlutir íslenska ríkisins í endurreistu bönkunum þremur og Landsvirkjun eru ríflega 400 milljarða króna virði, sé mið tekið af eigin fé Íslandsbanka, Landsbankans og Arion banka annars vegar, og síðan Landsvirkjunar, sem ríkið á að fullu. 18.9.2012 12:54
Svanurinn í samstarf við Advania Norræna umhverfismerkið Svanurinn hefur gengið til samstarfs við upplýsingatæknifyrirtækið Advania um samþættan rekstur á tækniumhverfi Svansins á Norðurlöndum. "Svanurinn hefur um 130 starfsmenn í fjórum löndum, en það er Umhverfisstofnun sem hefur umsjón með Svaninum á Íslandi. Náið samstarf í tæknimálum hvílir á stoðum gagnkvæms trausts og við erum nú þegar farin að skoða fleiri samstarfsfleti. Við teljum okkur í góðum höndum hjá Advania," segir Elva Rakel Jónsdóttir hjá Umhverfisstofnun í fréttatilkynningu. 18.9.2012 11:58
Átján ríki nota gjaldmiðil annars ríkis Alls nota átján fullvalda ríki gjaldmiðil annars ríkis, að því er fram kemur í sérriti Seðlabanka Íslands um gengis- og gjalmiðlamál. Fjallað er um ríkin í sérstökum kafla um einhliða upptöku nýrra gjaldmiðla. Flest ríkin eru fyrrum nýlendur, sem mörg hver hafa haldið áfram að nota gjaldmiðil fyrrum nýlenduherra eða síðar tekið upp gjaldmiðil þess ríkis sem vegur þyngst í utanríkisviðskiptum þeirra, í flestum tilvikum Bandaríkjadollar. Sjá má lista yfir ríkin átján hér að neðan. 18.9.2012 10:00
Frakkar kaupa Hamleys fyrir rúma 11 milljarða Slitastjórn Landsbankans hefur selt leikfangaverslunina Hamleys til franska félagsins Group Ludendo fyrir 60 milljónir punda eða rúma 11 milljarða króna. 18.9.2012 06:32
Danir tapa stórfé á örum frumsýningum kvikmynda Danskir kvikmyndagerðarmenn tapa stórfé á því hve ört danskar kvikmyndir hafa verið frumsýndar í haust. 18.9.2012 06:28
Fyrsta málshöfðun íslenska ríkisins gegn ESA Íslenska ríkið hefur nú í fyrsta skipti höfðað mál gegn ESA, eftirlitsstofnun EFTA, fyrir EFTA dómstólnum í Lúxemborg til ógildingar ákvörðunar ESA frá 4. júlí sl. um ríkisaðstoð. 18.9.2012 06:25