Sala á hlut banka gæti skilað 82 milljörðum 21. september 2012 07:30 Eign ríkisins í bankanum var 202 til 207,8 milljarða króna virði um mitt þetta ár. fréttablaðið/rósa
Verði frumvarp um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum að lögum fær Oddný G. Harðardóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, heimild til að selja 13 prósenta hlut í Arion banka, fimm prósenta hlut í Íslandsbanka, allt að 28 prósenta hlut í Landsbankanum og allt hlutafé sem ríkið á í sparisjóðum landsins. Í frumvarpinu, sem var lagt fram í gær, kemur fram á að leggja skuli áherslu á „opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni" við söluna sem Bankasýsla ríkisins á að annast. Með hagkvæmni er átt við að leitað verði hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignarhlutina. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir að sala eigna muni skila 8,6 milljörðum króna. Ljóst er að frumvarpið gerir því ekki ráð fyrir sölu á eignarhlutum ríkisins í stóru viðskiptabönkunum þremur. Hlutur ríkisins í Landsbankanum er sem stendur 81,33 prósent. Í frumvarpinu kemur fram ríkið ætli sér að halda eftir 70 prósenta hlut í bankanum en selja hitt. Vegna hækkunar á virði skilyrts skuldabréfs er þó ljóst að ríkið hefur þegar tryggt sér auka fjórtán prósenta hlut í bankanum. Hækki virði skuldabréfsins meira á seinni hluta þessa árs mun 2,67 prósenta hlutur til viðbótar falla ríkinu í skaut. Innra virði eignarhlutar ríkisins í Landsbanka er því 202 til 208 milljarðar króna miðað við eiginfjárstöðu Landsbankans um mitt þetta ár. Virði þess hlutar sem ríkið ætlar að selja er því 53,7 til 59,4 milljarðar króna. Virði hlutarins í Arion er um sextán milljarðar króna og hlutur ríkisins í Íslandsbanka er sem stendur tæplega sjö milljarða króna virði. Þeir hlutir sem ríkið ætlar að selja í stóru viðskiptabönkunum þremur gætu því skilað á bilinu 76,7 til 82,4 milljörðum króna til ríkisins miðað við innra virði bankanna um mitt þetta ár. - þsj
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira