Fleiri fréttir

Engar hópuppsagnir í ágúst

Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust til Vinnumálastofnunnar í ágústmánuði að því er segir á vefsíðu stofnunarinnar.

Hlutur Landsbankastarfsmanna orðinn 1,5 prósent

Sá hlutur í Landsbankanum sem mun fara í að mynda stofn að nýju kaupaukakerfi bankans var 1,5 prósent af öllu hlutafé hans um mitt þetta ár. Miðað við innra virði bankans er virði hlutarins um 3,2 milljarðar króna. Virði skilyrts skuldabréfs, sem ákvarðar hversu stóran hlut starfsmennirnir munu eignast í bankanum, jókst um níu milljarða króna á fyrri hluta þessa árs. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri Landsbankans sem birt var á fimmtudag.

Hundruð milljóna í akstursgjöld árlega

Ríkið hefur greitt rúmlega 1,6 milljarða króna í akstursgjald til starfsmanna sinna síðan árið 2010. Það ár voru um 655 milljónir greiddar út til meira en 5.000 ríkisstarfsmanna, en sú fjárhæð dróst saman árið eftir, þegar um 590 milljónir fóru í akstursgjald.

Neyðarúrræði að sækja um yfirdráttarlán

Vinna þarf á uppsöfnuðum halla Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) og velferðarráðuneytinu ber að sjá til þess að stofnunin fjármagni ekki rekstur sinn með yfirdráttarlánum enda er slíkt ekki heimilt. Þetta kemur fram í skýrslu sem Ríkisendurskoðun sendi frá sér um HSA í gær.

Gazprom til rannsóknar vegna gruns um stórfelld svik

Rússneska orkufyrirtækið Gazprom, sem byggir starfsemi sína öðru fremur á sölu á orku sem unnin er úr jarðgasi, er nú til rannsóknar hjá Evrópusambandinu vegna gruns um að fyrirtækið misnoti markaðsráðandi stöðu sína, einkum í Mið- og Austur-Evrópu. Á vef breska ríkisútvarpsins BBC segir að grunur sé uppi um að fyrirtækið hafi þrýst söluverðinu upp í gróðaskyni, og með því misnotað markaðsráðandi stöðu sína.

Ísland olnbogabarn Evrópu?

Ísland þarf að öllum líkindum að semja um varanlega undanþágu frá EES-samningnum þegar höftum verður aflétt, ef Seðlabankinn fær í hendur stjórntæki sem hann kallar eftir í nýrri skýrslu.

Óttast um atvinnu sjómanna í Eyjum

Sjómannafélagið Jötunn segir að með sölu útgerðarfyrirtækisins Bergs-Hugins sé atvinnu um 40 sjómanna í Vestmannaeyjum stefnt í mikla óvissu. Að mati sjómannafélagsins hefði átt að bjóða heimamönnum í Vestmannaeyjum fyrirtækið til sölu áður en leitað var annað.

Afstaða Noregs stóð árangri í vegi

Ein helsta ástæða þess að samningafundur í makríldeilunni í London í gær skilaði ekki árangri er einstrengingsleg afstaða Noregs. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra. Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, útilokar ekki sjálfstæðar aðgerðir gegn Íslendingum vegna makríldeilunnar.

Áhöld um hvort hægt sé að refsa fyrir gjaldeyrisbrask

Ríkissaksóknari og Seðlabankinn eru á algjörlega öndverðum meiði um hvort hægt sé að ákæra þá sem grunaðir eru um gjaldeyrisbrask. Ríkissaksóknari telur refsiheimildir ófullnægjandi en Seðlabankinn alveg skýrt að heimildir séu fyrir hendi.

Lækkanir víðast hvar á alþjóðlegum mörkuðum

Lækkanir hafa einkennt helstu hlutabréfamarkaði í Evrópu í dag. Þannig lækkaði DAX vísitalan þýska um 1,17 prósent og FTSE 100 vísitalan breska um 1,5 prósent. Lækkanir eru raktar til svartsýni hjá fjárfestum vegna nýrra atvinnuleysistalna evrópsku hagstofunnar Eurostat, en samkvæmt þeim er atvinnuleysi enn að aukast í Evrópu, en það mælist nú ríflega 11 prósent.

iPhone 5 lendir í næstu viku

Tæknirisinn Apple hefur boðað til blaðamannafundar í næstu viku. Sem fyrr gefur fyrirtækið ekki upp hvert fundarefnið sé. Það þykir þó vera nær öruggt að nýr iPhone snjallsími verði afhjúpaður á fundinum.

Skattlagning á gistingu skilar hátt í 3,4 milljörðum króna

Ætla má að heildarútgjöld erlendra ferðamanna hækki um tæp 2% við hækkun virðisaukaskatts á gistingu. Þetta kemur fram í skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur látið taka saman fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið um áhrif þess að hækka virðisaukaskatt á gistiþjónustu.

Marel lækkaði um tæp 3 prósent

Gengi bréfa Marels lækkaði um 2,93 prósent í viðskiptum dagsins en velta með bréf félagsins nam ríflega 135 milljónum króna. Gengi bréfa félagsins hefur lækkað nokkuð undanfarin misseri og er gengið nú 132. Gengi bréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 1,4 prósent í dag í 268 milljóna króna viðskiptum og er gengi félagsins nú 8,69 prósent en við skráningu á markað var gengið 8,25. Gengi bréfa Icelandair Group lækkaði um 1,57 prósent í viðskiptum dagsins og er gengið nú 6,9.

Afstaða Noregs stendur í vegi fyrir árangri

Ein helsta ástæða þess að makrílfundurinn í London í gær skilaði engum árangri var einstrengingsleg afstaða Noregs. Þetta kemur fram á heimasíðu atvinnuvegaráðuneytisins, en Norðmenn eru sagðir kenna Íslendingum og Færeyingum um hve illa gengur að leysa deiluna þó raunin sé sú að Íslendingar hafi sýnt mikinn sveigjanleika.

Pétur ráðinn framkvæmdastjóri Fíton

Pétur Pétursson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Fíton. Pétur ber ábyrgð á daglegum rekstri auglýsingastofunnar, ásamt stefnumótun og framkvæmd hennar, eins og fram kemur í fréttatilkynningu. Hann situr í framkvæmdaráði Kaaberhússins, en innan þess starfa auk Fítons 4 sérhæfð fyrirtæki í markaðsmálum og boðmiðlun.

Íslenskir frumkvöðlar leita til landans

Íslenska sprotafyrirtækið Cloud Engineering tekur nú þátt í nýsköpunarsamkeppni í Helsinki, en hún er hluti af Arctic15 fagráðstefnunni sem haldinn verður Finnlandi í október. Til mikils er að vinna því sigurvegarinn mun kynna fyrirtæki sitt fyrir fjárfestum á ráðstefnuninni. Netkosning er hafin þar sem almenningur getur kosið um hverjir komast áfram. Því leitar fyrirtækið til landans til að bera hróður íslenskrar nýsköpunar víðar.

Aukið eftirlit með BitTorrent

Líkur eru á að þeir sem nota skráarskiptaþjónustu BitTorrent til að nálgast tónlist, kvikmyndir og hugbúnað án þess að greiða fyrir efnið, séu undir eftirliti stofnana sem fylgjast með brotum á lögum um hugverkavernd.

Snjallsími sem hægt er að hlaða þráðlaust

Raftækjaframleiðandinn Nokia mun opinbera nýjustu vörulínu sína í New York á morgun. Talið er að fyrirtækið muni svipta hulunni af nýjum snjallsíma sem hægt er að hlaða þráðlaust.

Nettengd fjarskiptatæki sjö milljarðar árið 2015

Gert er ráð fyrir að um 7.1 milljarður fjarskiptatækja sem tengst geta veraldarvefnum verði í umferð árið 2015. Þetta kemur fram í skýrslu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti á dögunum.

Mæta hallarekstri með ólöglegum yfirdráttarlánum

Ríkisendurskoðun segir að fjórar af heilbrigðisstofnum landsins hafi mætt hallarekstri sínum með yfirdráttarlánum í bönkum en slíkt sé ólöglegt. Heilbrigðisstofnun Austurlands hafi þannig verið með 83 milljóna króna yfirdrátt á bankareikningi sínum í lok síðasta árs.

Lufthansa aflýsir 190 flugferðum vegna verkfalls

Þýska flugfélagið Lufthansa hefur aflýst 190 af flugferðum sínum í morgun vegna yfirstandandi verkfalls flugliða hjá félaginu. Nær allar þessar flugferðir voru áætlaðar frá alþjóðaflugvellinum í Frankfurt.

Íbúðum í eigu ÍLS fjölgaði um 1.700 á þremur árum

Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs (ÍLS) heldur áfram að fjölga og í júnílok átti sjóðurinn samtals 2.049 fasteignir og hefur þeim fjölgað um 443 síðan í upphafi ársins. Fasteignum í eigu sjóðsins hefur fjölgað verulega undanfarin misseri í byrjun árs 2010 átti sjóðurinn 347 íbúðir og hefur þeim því fjölgað um 1.709 á innan við þremur árum.

Rannsaka tugi mála varðandi skattaskjól

Yfir sjötíu skattaskjólsmál í tíu skattaskjólum hafa borist skattrannsóknarstjóra frá hruni. Langflest málanna tengjast Lúxemborg, að sögn Bryndísar Kristjánsdóttur skattrannsóknarstjóra. "Það hefur mikið farið í gegnum skattaskjólsfélög stofnuð þar eða í gegnum bankana þar þótt félögin tengist til dæmis Tortóla eða öðrum skattaskjólum,“ segir Bryndís.

Nettóskuldir þjóðarbúsins jukust um 177 milljarða

Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.583 milljörðum kr. í lok annars ársfjórðungs ársins. Skuldir námu 3.639 milljörðum kr. og var hrein staða því neikvæð um 1.056 milljarða kr. Nettóskuldir þjóðarbúsins hækkuðu um 177 milljarða kr. á milli ársfjórðunga. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans.

Norðmenn ætla ekki að bora í Norðurpólinn

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, hefur sett ofan í við einn af ráðherrum sínum, sjálfan olíu- og orkumálaráðherrann Ola Borten Moe, vegna yfirlýsingar hans um að Noregur gæti leitað að olíu og gasi alla leið á Norðurskautið. Norðmenn leyfa nú þegar boranir í Barentshafi, langt norðan heimskautsbaugs, og var olíumálaráðherrann, sem situr fyrir Miðflokkinn í þriggja flokka rauðgrænni ríkisstjórn Noregs, spurður í Stafangri í síðustu viku, í tengslum við ráðstefnu olíuiðnaðarins, hve langt norður á bóginn ætti að sækja. Olíumálaráðherrann svaraði að engin ástæða væri til að hætta núna enda næði lögsaga Noregs nánast alla leið á Norðurpólinn.

Skattaskjólsmálum fer enn fjölgandi

Skattaskjólsmálum sem komið hafa til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra fjölgar stöðugt og þau eru nú orðin sjötíu til áttatíu.

Fráleitt að til sé „dauðalisti“

Arion banki segir fráleitt að til sé listi yfir lífvænleg fyrirtæki sem bankinn hafi ákveðið að taka af eigendum þeirra til að laga ójöfnuð milli nýja bankans og þrotabús gamla Kaupþings. Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður hélt því fram í innsendri grein í Fréttablaðinu á laugardag að slíkur listi væri til. Áður hafði Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi eigandi BM Vallár, haldið hinu sama fram.

Varalitavísitalan vekur spurningar um bata hagkerfisins

Íslenska hagkerfið virðist vera á hægri uppleið þó enn sé langt í land, samkvæmt óhefðbundnum vísitölum. Innflutningur á varalit náði hámarki í fyrra en notkun á "K"-orðinu svokallaða hefur minnkað verulega frá hruni.

Draghi ýjar að fjárinnspýtingu

Mario Draghi, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, ýjaði að því á lokuðum fundi í Evrópuþinginu í dag að bankinn gæti þurft að koma þjóðríkjum í vanda til hjálpar með frekari kaupum á ríkisskuldabréfum. Frá þessu greindi Wall Street Journal á vef sínum í kvöld. Draghi var til svara á fundi í Evrópuþinginu, en mánaðarlegur peningastefnufundur Seðlabanka Evrópu fer fram á fimmtudaginn.

Tímamótasamningur hjá Advania

Íslenska upplýsingatæknifyrirtækið Advania, áður Skýrr, hefur náð tímamótasamningi við sænsku tryggingarstofnunina um innleiðingu á nýju upplýsingakerfi. Samningurinn er metinn á tvo komma þrjá milljarða króna.

Þjóðverjar vilja Grikki úr evrusamstarfinu

Aðeins fjórðungur Þjóðverja telur að Grikkir eiga að vera áfram í evrusamstarfinu og þiggja frekari fjárhagsaðstoð frá hinum evruríkjunum, samkvæmt nýrri skoðanankönnun sem Financial Times gerði í Þýskalandi.

Íbúðalánasjóður yfirtók 500 íbúðir

Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs fjölgaði um 443 á fyrstu sex mánuðum ársins, en þær voru 2049 á fyrstu mánuðum ársins. Fasteignum í eigu sjóðsins hefur fjölgað verulega undanfarin misseri í byrjun árs 2010 átti sjóðurinn 347 íbúðir og hefur þeim því fjölgað um 1.709 á innan við þremur árum. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Íbúðalánasjóðs.

Apple vill banna Galaxy S3 í Bandaríkjunum

Apple krefst þess nú að lögbann verði sett á sölu Galaxy S3 snjallsímans í Bandaríkjunum. Síminn er flaggskip suður-kóreska raftækjaframleiðandans Samsung en fyrirtækið er helsti samkeppnisaðili Apple.

Aðdáendur endurgera Half-Life

Bandaríski tölvuleikjaframleiðandinn Valve tilkynnti um helgina að uppfærð útgáfa af tölvuleiknum Half-Life væri væntanlega í þessum mánuði. Síðustu átta ár hafa aðdáendur Half-Life unnið að uppfærslunni en Valve gaf út sérstök forrit sem einstaklingar gátu notað til að endurforrita leikinn.

Töluverð hreyfing á gengi hlutabréfa í kauphöllinni

Töluverð hreyfing var á gengi hlutabréfa í íslensku kauphöllinni í dag en hlutabréfa vísitalan, OMXISK, lækkaði um 0,5 prósent í ríflega 186 milljóna króna viðskiptum, og er nú ríflega 989. Mesta hreyfingan varð á gengi hlutabréfa færeyska bankans Bank Nordik en það lækkaði um 3,68 prósent og er nú 64. Þá lækkaði gengi bréfa Haga um 0,28 prósent og er nú komið niður fyrir 18, í 17,95. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 1,68 prósent og er nú 7,01. Gengi bréfa Marels lækkaði um 1,44 prósent og er nú 136.

Sjá næstu 50 fréttir