Viðskipti innlent

Íslenskir frumkvöðlar leita til landans

Hópurinn á bak við Cloud Engineering og Datatracker.
Hópurinn á bak við Cloud Engineering og Datatracker. mynd/Cloud Engineerin
Íslenska sprotafyrirtækið Cloud Engineering tekur nú þátt í nýsköpunarsamkeppni í Helsinki, en hún er hluti af Arctic15 fagráðstefnunni sem haldinn verður Finnlandi í október. Til mikils er að vinna því sigurvegarinn mun kynna fyrirtæki sitt fyrir fjárfestum á ráðstefnuninni. Netkosning er hafin þar sem almenningur getur kosið um hverjir komast áfram. Því leitar fyrirtækið til landans til að bera hróður íslenskrar nýsköpunar víðar.

Hugbúnaðar Cloud Engineering, Datatracker, keppir í flokknum nýsköpun á sviði viðskiptahugbúnaðar.

„Við bjóðum upp á hugbúnað sem gerir notendum kleift að stilla upp einföldum ferlum sem sækja gögn sjálfvirkt í gegnum veraldarvefinn," segir Ragnar Fjölnisson, þróunarstjóri Cloud Engineering. „Þeir sem fylgjast til að mynda með verðupplýsingum hjá samkeppnisaðilum geta stillt þessum ferlum upp til að sækja upplýsingarnar. Síðan samkeyrum við þessar upplýsingar."

Netkosning stendur nú yfir.mynd/datatracker.io
„Þetta er mikill viðskiptahugbúnaður," segir Ragnar. „Hann blandar í raun saman samkeppnisupplýsingum og aðstoðar við verðstýringu og verðlagningu."

Ragnar segir að Arctic15 fagráðstefnan sé mikið tækifæri til að kynna íslenska nýsköpunarstarfsemi. Hátt í fjögur hundruð aðilar úr Norður-Evrópska fjárfestinga- og frumkvöðlaheiminum sækja ráðstefnuna. Þetta er því mikill vettvangur fyrir ungt fyrirtæki. Þau 15 félög sem tóku þátt á ráðstefnunni í fyrra söfnuðu yfir 12 milljónum dala á tíu mánuðum eftir að þau stigu á svið á ráðstefnunni.

„Þetta er afar gott tækifæri til að kynnast mögulegum fjárfestum og góður vettvangur til að kynnast markaðinum, og auðvitað koma okkur á markað."

Allir geta kosið í samkeppninni en fimm fyrirtæki bítast um verðlaunin. „Þetta eru allt saman flott fyrirtæki, mörg hver á svipuðum stað og við," segir Ragnar. „Við treystum auðvitað á landann og viljum búa til íslenska árangurssögu og viljum virkja frumkvöðlastarfsemi á Íslandi."

Hægt er að styðja við bakið á Cloud Engineering hér. Þá er einnig hægt að kynnast sér starfsemi fyrirtækisins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×