Nettóskuldir þjóðarbúsins jukust um 177 milljarða 4. september 2012 06:43
Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.583 milljörðum kr. í lok annars ársfjórðungs ársins. Skuldir námu 3.639 milljörðum kr. og var hrein staða því neikvæð um 1.056 milljarða kr. Nettóskuldir þjóðarbúsins hækkuðu um 177 milljarða kr. á milli ársfjórðunga. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans. Ef innlánsstofnanir eru teknar með námu erlendar eignir þjóðarbúsins 4.215 milljörðum kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.505 milljörðum kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 9.290 milljarða kr. á þennan mælikvarða. Á vefsíðunni segir að viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 49,6 milljarða kr. á ársfjórðungnum samanborið við 47,1 milljarða kr. fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 12,8 milljarðar kr. og 12 milljarðar kr. á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 74,4 milljarða kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 14 milljarða kr. samanborið við 16,7 milljarða kr. fjórðunginn á undan. Halli á þáttatekjum er eins og áður að miklu leyti vegna innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 28,7 milljörðum kr. og tekjur voru neikvæðar um 7 milljarða kr. Neikvæðar tekjur má rekja til neikvæðrar endurfjárfestingar í erlendum félögum en tap varð á rekstrinum á fjórðungnum. Neikvæð áhrif innlánsstofnana í slitameðferð á þáttatekjujöfnuð nema 35,7 milljörðum kr. Jöfnuður þáttatekna án áhrifa þeirra er því óhagstæður um 38,7 milljarða kr.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira