Afstaða Noregs stóð árangri í vegi Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. september 2012 19:56
Ein helsta ástæða þess að samningafundur í makríldeilunni í London í gær skilaði ekki árangri er einstrengingsleg afstaða Noregs. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra. Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, útilokar ekki sjálfstæðar aðgerðir gegn Íslendingum vegna makríldeilunnar. Lisbeth Berg-Hansen sjávarútvegsráðhera Noregs fór mikinn í viðtali við norska ríkissjónvarpið í gærkvöldi eftir makrílfundinn í Lundúnum og sagði Íslendinga engan samningsvilja hafa sýnt. Þá sagði hún að Norðmenn myndu beita sér fyrir því að Ísland verði beitt viðurlögum og gaf hún í skyn að Noregur myndi beita frændþjóð sína sjálfstæðum aðgerðum vegna makríldeilunnar óháð aðgerðum ESB. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, furðar sig á ummælunum. Veruleikinn sé sá að helsta ástæða þess að fundurinn skilaði ekki árangri hafi verið einstrengingsleg afstaða Noregs. „Noregur var auðvitað mjög á hælunum þarna á þessum fundi. Það verður bara að segja þá sögu eins og hún er að ein af ástæðunum fyrir því að við komumst hvorki lönd né strönd á þessum fundi var sú að Norgur gaf ekkert af sér," sagði hann. Engar prósentur voru ræddar á fundinum og Noregur var hvergi tilbúinn að víkja frá kröfum sínum. En hvað með hótanir um sjálfstæðar aðgerðir gegn Íslandi? „Noregur hefur þegar í lögum heimildir til að beita löndunarbanni og einhverju slíku, bara rétt eins og við höfum. Þannig að ég átta mig ekki á því til hvers er þarna verið að vísa og vona nú svo sannarlega að það sé ekki á dagskrá þar að fara að segja upp einhverjum fiskveiðisamningum eða fara út í slíka sálma því það mun ekkert gera annað en að gera andrúmsloftið í þessum samskiptum verra," segir Steingrímur. Steingrímur segir að það hafi slest upp á samskiptum ríkjanna. Það hafi gerst áður en ríkjunum hafi alltaf tekist að leysa sinn ágreining. „Ég vil leyfa mönnum að njóta vafans. Við skulum bíða og sjá hvort að skynsemin hefur ekki að lokum yfirhöndina," segir Steingrímur.
Mest lesið Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent