Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum fóru undir 6% Vextir á ríkisskuldabréfum Spánar og Ítalíu hafa lækkað töluvert í morgun í kjölfar yfirlýsingar Mario Draghi bankastjóra Evrópska seðlabankans í gærdag um ótakmörkuð kaup bankans á skuldabréfum þessara þjóða, það er bréfum til skamms tíma. 7.9.2012 08:16
Verkfall lamar starfsemi Lufthansa Verkfall sem hófst á miðnætti í nótt hefur lamað megnið af starfsemi flugfélagsins Lufthansa í Þýskalandi. Verkfallið mun standa í sólarhring og nær til þriggja stærstu flugvalla landsins. 7.9.2012 07:00
Eignir fjármálafyrirtækja lækkuðu um 102 milljarða Heildarfjármunaeign fjármálafyrirtækja á öðrum ársfjórðungi ársins nam 8.420 milljarða kr. og lækkaði um 102 milljarða kr. frá fyrsta ársfjórðungi. 7.9.2012 06:52
Launahækkun forstjóra LSH vekur hörð viðbrögð Sú ákvörðun Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, að hækka laun Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, hefur vakið hörð viðbrögð meðal fulltrúa opinberra launamanna. Formaður BSRB segist gáttaður á ákvörðuninni og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að sér sé misboðið. 7.9.2012 05:30
Raforkukostnaður hækkar alls staðar Raforkukostnaður heimila landsins hefur hækkað nokkuð frá ágústmánuði 2011, að því er fram kemur í könnun sem Alþýðusamband Íslands (ASÍ) lét gera, en þó er nokkur munur milli orku- og dreififyrirtækja. 7.9.2012 02:30
Fjárfestar ánægðir með yfirlýsingu Seðlabanka Evrópu Hlutabréfavísitölur hækkuðu víðast hvar á alþjóðamörkuðum í dag, og eru hækkanirnar raktar til yfirlýsinga Mario Draghi, seðlabankastjóra Evrópu, þess efnis að bankinn muni grípa til þess að kaupa skuldabréf af skuldugum ríkjum Evrópu til þess að halda lántökukostnaði niðri. Fjárfestar tóku þessum yfirlýsingum vel. 6.9.2012 21:52
Skuldabréf fyrirtækja er vannýttur fjárfestingakostur Vannýtt tækifæri eru falin í útgáfu skuldabréfa íslenskra fyrirtækja. Skuldabréfaútgáfan myndi leysa fjármögnunarvanda fyrirtækja og vandamál fjárfesta sem skapast af gjaldeyrishöftunum. Þetta kemur fram í grein sem Haraldur I. Þórðarson, framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta Straums fjárfestingabanka hf., skrifaði í Viðskiptablaðið í dag. 6.9.2012 21:49
Gengi bréfa Regins hækkaði um tæp 3 prósent Gengi bréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 2,86 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 8,98, en félagið var skráð á markað á genginu 8,25 í sumar. Þá hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,86 prósent og er gengið nú 7,04. 6.9.2012 20:19
Illugi tekur ekki undir lofsöng Jóns Steinssonar Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, tekur ekki undir yfirlýsingar Jóns Steinssonar um að ríkisstjórnin eigi lof skilið fyrir aðgerðir sínar í efnahagsmálum. Jón segir í aðsendri grein í Fréttablaðinu að Ísland sé í dag í ótrúlega góðri stöðu en hafi verið í ótrúlega vondri stöðu fyrir þremur árum og það sé ríkisstjórninni að þakka. 6.9.2012 19:09
Vantar 223 konur í stjórnir til að fylla kvóta Það vantar 223 konur í stjórnir til að 40% kynjakvóta verði náð að ári. Þetta kemur fram í úttekt KPMG, en þann 1. september á næsta ári taka gildi ný lög sem kveða á um að hlutfalls hvors kyns sé að lágmarki 40% í stjórnum lífeyrissjóða og stærri fyrirtækja. Þetta á við um alla lífeyrissjóði, hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög og opinber hlutafélög þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn á ársgrundvelli. 6.9.2012 16:02
Seðlabanki Evrópu ætlar að láta til sín taka Seðlabanki Evrópu hyggst reyna allt hvað hann getur til þess að örva efnahagslíf álfunnar, draga úr atvinnuleysi og snúa vörn í sókn. Fyrst og fremst er horft til þess að Seðlabankinn kaupi ríkisskuldabréf skuldugra ríkja álfunnar, sem glíma við hátt vaxtaálag á skuldir sínar á markaði. Þetta háa álag, einkum á þjóðir Suður-Evrópu, gerir ríkissjóðum landanna erfitt um vik við endurfjármögnun skulda. 6.9.2012 14:18
Nokia biðst afsökunar á auglýsingu Raftækjaframleiðandinn Nokia hefur beðist afsökunar á því að hafa reynt að blekkja neytendur. Fyrirtækið gaf á dögunum út auglýsingu en því var haldið fram að hún hefði verið tekin upp á Lumia 920, nýjasta snjallsíma raftækjaframleiðandans. 6.9.2012 14:03
FME skoðar ásakanir Víglunds vegna B.M. Vallár Fjármálaeftirlitið hefur tekið til skoðunar starfshætti Arion banka í endurskipulagningu á B.M. Vallá, en Víglundur Þorsteinsson hefur haldið því fram að félagið hafi verið á svokölluðum dauðalista Arion banka. 6.9.2012 13:55
Þrjátíu og einum flugmanni sagt upp Þrjátíu og einu fastráðnum flugmanni hjá Icelandair hefur verið sagt upp störfum en þeir munu vinna út október næstkomandi. Þessi fjöldi er umtalsvert minni en fyrir veturinn í fyrra, en þó bætist við þessa tölu lausráðnir flugmenn sem voru nýráðnir síðasta vor, tíu talsins. Þetta kemur fram í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Í bréfinu kemur einnig fram að þrjátíu flugstjórar hjá félaginu flytjist yfir í sæti flugmanns 1. nóvember næstkomandi. 6.9.2012 13:10
Lumia 920 lofað í hástert Gagnrýnendur hafa tekið nýjasta snjallsíma Nokia, Lumia 920, með opnum örmum. Það er einróma álit sérfræðinga að finnski raftækjaframleiðandinn eigi nú loks möguleika á að ryðja sér til rúms á snjallsímamarkaðinum. 6.9.2012 13:07
Efnahagsráðgjafi Geirs lofsamar verk Jóhönnu og Steingríms Jón Steinsson, sem var efnahagsráðgjafi Geirs Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að Ísland sé í ótrúlega góðri stöðu í dag, einungis þremur árum eftir að hafa verið í ótrúlega vondri stöðu. Erfiðar ákvarðanir sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar tók eigi mikinn þátt í þessum viðsnúningi. 6.9.2012 10:53
Landsliðsþjálfarinn mætir á haustráðstefnu Advania Von er á liðlega 900 gestum á haustráðstefnu Advania sem verður haldin á Hilton-hótelinu í Reykjavík á morgun. Um er að ræða stærsta stefnumót upplýsingatækni og atvinnulífs ár hvert. Að þessu sinni verða um 40 fyrirlestrar í boði á 4 mismunandi þemalínum sparnaðar, hagnýtingar, fróðleiks og virkni. Liðlega helmingur fyrirlesara kemur erlendis, meðal annars Dan Lyons, tækniritstjóri Newsweek, og Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Hátt í eitt þúsund ráðstefnugestir eru væntanlegir. 6.9.2012 10:21
Ísland er í 12. sæti í alþjóðlegu netvísitölunni Ísland er í 12. sæti í alþjóðlegu netvísitölunni Web Index 2012 en þetta er í fyrsta sinn sem þessi vísitala er birt. Vísitala þessi nær til rúmlega 60 þjóða víða um heiminn. 6.9.2012 09:10
Nokia veðjar öllu á smáatriðin Finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia freistar þess nú að ná vopnum sínum á símamarkaði á nýjan leik, eftir nærri 8 ára samdráttarskeið. Fyrirtækið veðjar öllu á nýja Windows 8 síma fyrirtækisins, Lumia 920, sem er útbúinn þráðlausum hleðslubúnaði auk óvenju næmrar myndavélar. 6.9.2012 10:09
Landaður afli hjá Faxaflóahöfnum hefur aukist um 7% Um 7% aukning var á heildarafla sem landað er hjá Faxaflóahöfnum á fyrstu átta mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Þar vegur þyngst góð loðnuveiði að því er segir á vefsíðu hafnanna. 6.9.2012 10:42
Geysisbændur í fjárfestingar Eigendur meirihluta Geysissvæðisins í Haukadal ætla að ráðast í miklar framkvæmdir og fjárfestingar á svæðinu. 6.9.2012 07:00
Lufthansa aflýsir fleiri hundruð flugferðum á morgun Þýska flugfélagið Lufthansa hefur ákveðið að aflýsa fleiri hundruð af flugferðum sínum frá þremur stærstu flugvöllum Þýskalands á morgun, föstudag, vegna verkfalls flugliða hjá félaginu. 6.9.2012 06:52
Ben & Jerry´s höfðar mál gegn klámmyndaframleiðendum Bandaríski ísframleiðandinn Ben & Jerry´s hefur höfðað mál gegn klámmyndaframleiðendum í Bandaríkjunum. 6.9.2012 06:50
Heimsmarkaðsverð á áli fer hækkandi að nýju Heimsmarkaðsverð á áli hefur rétt töluvert úr kútnum frá því í síðasta mánuði. Verðið er komið í rúma 1940 dollara á tonnið í framvirkum samningum til þriggja mánaða á málmmarkaðinum í London. 6.9.2012 06:39
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert í vikunni en tunnan af Brent olíunni er komin niður í 113,5 dollara. Á mánudaginn var fór verðið á Brent olíunni í rúma 116 dollara á tunnuna um tíma. Verðið á bandarísku léttolíunni er komið undir 96 dollara á tunnuna. 6.9.2012 06:37
The Economist: Árangur Obama ekki svo slæmur Árangur Barack Obama Bandaríkjaforseta í efnahagsmálum er alls ekki eins slæmur og af er látið að mati tímaritsins The Economist. 6.9.2012 06:35
Vangoldnir skattar upp á 12 milljarða Ríkisskattstjóri hækkaði í fyrra skatta um tæpan milljarð króna vegna 21 máls frá skattrannsóknarstjóra. Það sem af er þessu ári hefur ríkisskattstjóri hækkað skatta um 674 milljónir króna vegna mála frá skattrannsóknarstjóra. Gjaldabreytingar á þessu ári voru vegna 43 aðila. Hluti þeirra mála er skattaskjólsmál. 6.9.2012 03:30
Munar 4.100 krónum á Strætó og rútu Gjaldskrá Strætó miðast við fjölda "gjaldbelta“ sem ekin eru og kostar ferð um eitt belti, sem er 22 kílómetrar í loftlínu, 350 krónur. Sé miðað við fullt gjald kostar miðinn með Strætó 7.700 krónur, sem er töluvert ódýrara en með langferðarbílum Sterna, þar sem rútuferðin kostar 11.800. Ökutíminn er svipaður, sex tímar með rútu og sex tímar og korter með Strætó. Til gamans má einnig geta að flug með Flugfélagi Íslands á milli bæjarfélaganna kostar frá 7.900 krónum, ef pantað er nógu snemma, upp í 18.830 krónur. Sú ferð tekur að jafnaði um 45 mínútur. Starfsmenn á vegum ríkisins fá samkvæmt útreikningum Ferðakostnaðarnefndar greiddar tæpar 45 þúsund krónur fyrir að ferðast á eigin bíl á milli bæjarfélaganna, en hafa ber í huga að þar er slit og notkun bílsins tekið inn í kostnaðinn. 6.9.2012 03:15
Fær ekki nægar upplýsingar um Hörpu Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur ítrekað reynt að nálgast upplýsingar um rekstur tónlistarhússins Hörpu og heildarbyggingarkostnað þess sem fram koma m.a. í rekstrarúttekt KPMG frá því í vor. 5.9.2012 22:56
Jón Helgi selur Húsgagnahöllina Jón Helgi Guðmundsson, helsti eigandi Norvik, hefur ákveðið að selja Húsgagnahöllina. Kaupendurnir eru bræðurnir Guðmundur Gauti og Egill Reynissynir, sem eiga verslanirnar Betra bak og Dorma. Frá þessu var greint á vef Viðskiptablaðsins í kvöld. 5.9.2012 21:45
Mjólkin selst óvenju vel Mjólkurvörur seldust betur í ágúst á þessu ári en í sama mánuði í fyrra. Landsamband kúabænda telur öruggt að mjólkurfernur með skrúfutappa falli neytendum vel í geð og hafi jákvæð áhrif á söluna. 5.9.2012 21:34
Tollar og vörugjöld fela í sér mismunun Innflutningstollar á vörur fela í sér hrópandi mismunun milli þeirra sem eru efnaðir og þeirra sem hafa lítið milli handanna. Þetta fullyrti Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. 5.9.2012 21:18
Grandi hækkar um tæp 6 prósent í litlum viðskiptum Gengi bréfa í HB Granda, sem skráð er á First North markaðinn í Kauphöll Íslands, hækkaði um 5,93 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 14,3. Lítil viðskipti voru á bak við þessa hreyfingu á genginu, eða aðeins um 338 þúsund krónur. 5.9.2012 18:23
Eignir lífeyrissjóðanna aukast um 3,2 milljarða Hreinar eignir lífeyrissjóðanna jukust um 3,2 milljarða króna á tímabilinu frá júní til júli. Hrein eign sjóðanna er nú 2.242 milljarðar króna og nemur aukningin því 0,1% 5.9.2012 17:50
Kæra á hendur framkvæmdastjóra Thule enn til meðferðar Embætti sérstaks saksóknara hefur enn til meðferðar kæru á hendur framkvæmdastjóra Thule Investments, Gísla Hjálmtýssyni, vegna meintra umboðssvika hans. Embættinu barst kæra í byrjun febrúar á þessu ári en henni var vísað frá 8. maí, þar sem ekki var talið vera tilefni til sakamálarannsóknar. Ríkissaksóknari fól síðan sérstökum saksóknara að taka málið til rannsóknar á nýjan leik. „Málið er enn til meðferðar hér innanhúss, en meira er ekki hægt að segja um það að svo stöddu,“ sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. 5.9.2012 17:00
Ekki útilokað að niðurstaða fáist fyrir áramót Ekki er útilokað að niðurstaða í Icesavedeilunni fáist fyrir jól. Í dag var greint frá því að málflutningur fer fram í Lúxemborg þann 18. september næstkomandi. Ísland skilaði síðustu skriflegu greinargerðinni í júní. Frá þeim tíma hefur verið unnið að ræðu sem flutt verður fyrir Íslands hönd. 5.9.2012 16:29
Nokia kynnir Lumia 920 Finnski raftækjaframleiðandinn Nokia kynnti nýjasta snjallsíma sinn í New York í dag. Fyrirtækið leggur nú allt í sölurnar til að endurheima stað sinn á farsímamarkaðinum. 5.9.2012 14:51
Endurhannaður iPhone væntanlegur Nýr iPhone verður kynntur til leiks í næstu viku. Apple hefur boðað til blaðamannafundar 12. september næstkomandi og þykir það nær öruggt að nýjasta kynslóð snjallsímans verði afhjúpuð. Þó svo að Apple hafi ekki staðfest neitt varðandi hönnun og búnað símans hafa ýmsar upplýsingar um útlit hans og innvols komið fram. 5.9.2012 13:12
Seðlabanki Íslands heldur gjaldeyrisútboð Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. 5.9.2012 16:44
Arctic Investment eignast meirihluta í Andersen & Lauth Gengið hefur verið frá samningi um kaup Arctic Investment á meirihluta í Andersen & Lauth. Andersen & Lauth er íslenskt fyrirtæki sem hannar, framleiðir og selur hátískufatnað á alþjóðamarkaði. Það byggir á gömlu vörumerki sem á sérstakan stað í hugum margra Íslendinga og leggur stolt í að halda tengslum við uppruna merkisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 5.9.2012 15:26
Gefur Síldarvinnslunni og Magnúsi frest fram á föstudag Vestmannaeyjabær gefur Síldarvinnslunni og Magnúsi Kristinsynni frest fram til hádegis á föstudag til þess að leggja fram forkaupsréttartilboð í Berg-Huginn, þar sem söluverð og aðrir skilmálar eru tilgreindir á tæmandi hátt. Að öðrum kosti muni bærinn höfða mál fyrir dómstólum. 5.9.2012 12:01
Zuckerberg ætlar ekki að losa sig við hlutabréf Mark Zuckerberg, stofnandi og framkvæmdastjóri Facebook, reynir nú að efla trú fjárfesta á samskiptamiðlinum. Hann tilkynnti í dag að hann ætlaði ekki selja hlutabréf sín í fyrirtækinu á næstu misserum. Zuckerberg á nú um 444 milljón hlutabréf í Facebook. 5.9.2012 11:57
Raungengi krónunnar ekki hærra frá hruni Raungengi íslensku krónunnar hækkaði um 3,3% í ágúst frá fyrri mánuði á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Þetta er fimmti mánuðurinn í röð sem raungengi krónunnar þróast í þessa átt og stendur það nú í 80,2 stigum, sem er hæsta gildi þess frá því í september árið 2008. 5.9.2012 11:20
Ólafur Þór: Mörg mál á lokastigum - skattamálum fjölgað mikið "Það er nokkur fjöldi mála sem er á lokastigi meðferðar hjá okkur, og saksóknarar eru komnir með inn á sitt borð. Við höfum ekki gefið upp nákvæmlega hvað þetta eru mörg mál eða um hvað mál er að ræða, þar sem þau eru enn til meðferðar,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Nú tæpum fjórum árum eftir hrun fjármálakerfisins sér fyrir endann á rannsókn nokkurs fjölda mála sem hafa verið til rannsóknar hjá embættinu. "Það hefur verið töluvert annríki hjá okkur við yfirheyrslur að undanförnu, þar sem mál hafa verið í lokarennsli, eins og við köllum það, áður en endanlegar ákvarðanir um hvort gefnar séu út ákærur eru teknar,“ segir Ólafur Þór. 5.9.2012 10:59
Fasteignamarkaðurinn stóð nær í stað milli ára í ágúst Veltan á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu og fjöldi þinglýstra kaupsamninga stóð nær í stað í ágúst s.l. miðað við sama tímabil í fyrra. Veltan jókst um 0,6% og fjöldi samninga um 1,6% milli ára. 5.9.2012 10:30