Viðskipti innlent

Ekki útilokað að niðurstaða fáist fyrir áramót

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ekki er útilokað að niðurstaða í Icesavedeilunni fáist fyrir jól. Í dag var greint frá því að málflutningur fer fram í Lúxemborg þann 18. september næstkomandi. Ísland skilaði síðustu skriflegu greinargerðinni í júní. Frá þeim tíma hefur verið unnið að ræðu sem flutt verður fyrir Íslands hönd.

Jóhannes Karl Sveinsson, sem sæti á í lögfræðiteymi Íslands, segir að bæði Lichtenstein og Norðmenn séu sammála Íslendingum um skýringu á innstæðutilskipuninni. Það er að segja að af þessari tilskipun leiði ekki að Íslendingum hafi borið að tryggja innistæður.

Lichtenstein og Norðmenn taka hins vegar ekki afstöðu til fullyrðingar ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, um að stjórnvöld hafi brotið jafnræðisreglu með því að tryggja innstæður íslenskra innstæðueigenda en ekki erlendra. Bretar og Hollendingar hafa heldur ekki tekið afstöðu til þess.

Jóhannes Karl segir erfitt að segja til um hvenær dómur fellur í málinu. „Það hefur verið svona lágmark tveir til þrír mánuðir frá hinum munnlega málflutningi. Það gæti verið öðruvísi í þessu máli því þetta er dálítið stórt mál og flókið en það er ekkert útilokað að þetta klárist fyrir árslok," segir Jóhannes Karl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×