Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur Sólrún Dögg Jósefsdóttir og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 26. mars 2026 22:07 Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís, ræddi dóminn og þau áhrif sem hann gæti haft á samfélagsmiðla í kvöldfréttum. Vísir Tímamótadómur var kveðinn upp í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær í máli þar sem andleg veikindi ungrar konu voru rakin til notkunar á samfélagsmiðlunum Instagram og Youtube. Fyrirtækin Meta og Google voru dæmd til þess að greiða fjölskyldu konunnar sex milljónir Bandaríkjadala í miskabætur, eða um 840 milljónir íslenskra króna. Tiktok og Snapchat gerðu dómsátt í málinu.
Í dómnum segir að smáforritin séu ávanabindandi og að þau séu vísvitandi hönnuð á þann hátt. Fyrirtækin hafi sýnt af sér vítavert gáleysi þegar að því kemur að gæta öryggis barna sem nota miðlana. Fjölskylda konunnar hélt því fram að hún hefði snemma ánetjast miðlunum og að notkunin hafi meðal annars leitt af sér líkamsímyndarröskun, þunglyndi og sjálfsvígshugsanir. Fyrirtækin hyggjast áfrýja dómnum og segja útilokað að þau geti borið ábyrgð á geðheilsu ungmenna en fleiri sambærileg mál eru í burðarliðnum. Fyrirtækin ekki ábyrg hingað til Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís, segir að grein 230 bandarískra fjarskiptalaga hafi hingað til haldið verndarvæng yfir fyrirtækjunum sem reka og eiga samfélagsmiðla með þeim afleiðingum að þau hafi ekki verið gerð ábyrg fyrir efni sem birt er á miðlunum. „Það sem er nýtt núna er auðvitað að það er verið að horfa til þess hvernig vettvangurinn er hannaður. Athyglin okkar hefur verið markaðsvædd og það er þessi algóritmi sem velur fyrir okkur efni, þetta endalausa skrun og hvernig myndböndin byrja að spilast. Það er allt gert til að halda okkur við efnið. Og hér eru fyrirtækin sjálf gerð ábyrg, ekki bara notendurnir, og það er auðvitað stórmál,“ segir Skúli um dóminn. Efnið sem ögrar nær í gegn Hann segir greinarmun á þegar notendur fara sjálfir inn á samfélagmiðla og leita sér upplýsinga annars vegar, og hins vegar þegar algóritmar velja efni fyrir notendur. Slíkt efni geti verið þess eðlis að það veki upp tilfinningaleg viðbrögð hjá notendum og komi þeim í uppnám. „Við höfum séð að það sem ögrar er það sem að nær í gegn hjá algóritmanum því það er líklegra til þess að fá okkur til þess að staldra lengur við. Þannig að hér er mál sem getur haft áhrif á önnur mál þannig að við getum alveg séð fleiri málaferli. Þetta getur haft áhrif á lagasetningu víðar og líka bara hér heima.“ En gæti þetta leitt til raunverulegra breytinga á samfélagsmiðlum sem slíkum? „Upphæðin núna er náttúrulega ekki þannig stór, sem þau eru dæmd til þess að greiða, að hún skipti máli. En það gæti verið þegar fleiri notendur sjá að þarna getum við átt rétt á bótum og fleiri málaferli fara af stað. Það getur ýtt á þessi fyrirtæki að gera betur í að tryggja sína vettvanga, sérstaklega þegar kemur að vernd barna. Og við eigum sem samfélag að kalla eftir þessari ábyrgð.“
Samfélagsmiðlar Bandaríkin Símanotkun barna Börn og uppeldi Mest lesið Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Mark Zuckerberg kaupir lóðir fyrir yfir 30 milljónir dollara Viðskipti erlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Skiptum lokið í 60 milljarða gjaldþroti Nordic Partners Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent