Fleiri fréttir

Fyrirhuguð hækkun muni stórskaða ferðaþjónustuna

Enduskoðunarfyrirtækið KPMG segir að fyrirhuguð hækkun á virðisaukaskatti á ferðaþjónustu muni stórskaða greinina. Athugun fyrirtækisins leiddi í ljós að hótelrekstur hér á landi er mjög þungur, og staðan er verri á höfuðborgarsvæðinu heldur en á landsbyggðinni.

Samsung gefur ekkert eftir - kynnir nýja vörulínu

Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung kynnti nýjustu vörulínu sína á IFA tækniráðstefnunni í Berlín í gær. Enginn uppgjafartónn er í Samsung, þrátt fyrir slæma niðurstöðu í dómsmáli gegn Apple á dögunum.

Obama einblínir á samskiptamiðla - heimsótti Reddit

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sat óvænt fyrir svörum á vefsíðunni Reddit í gær. Nokkur þúsund spurninga bárust frá notendum síðunnar en forsetinn sá sér ekki annað fært en að svara aðeins tíu af þeim.

Aflaverðmætið jókst um 15,7% í fyrra

Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um 15,7% í fyrra miðað við árið á undan. Þetta kemur fram í ritinu "Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2011“ sem Hagstofan hefur gefið út.

Helmingi færri gjaldþrot í júlí

Alls voru 43 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júlí, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er meira en helmingsfækkun frá fyrri mánuði því þá voru 97 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júlí í fyrra. Fyrstu 7 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 615, en það er um 34% fækkun frá

FME endurskoðar reglur um hæfismat stjórnenda

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur, í kjölfar nýfallins úrskurðar Persónuverndar, hafið endurskoðun á reglum eftirlitsins um framkvæmd hæfismats framkvæmdastjóra og stjórnarmanna fjármálafyrirtækja. Einnig verður endurskoðað það eyðublað sem Fjármálaeftirlitið notast við til að afla upplýsinga í tengslum við mat á fjárhagslegu sjálfstæði viðkomandi aðila. Vonast er til að þeirri vinnu ljúki á næstu vikum.

Íbúðir í fjölbýli hækka í verði

Verð á íbúðum í fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1% í ágúst miðað við júlí, að því er fram kemur í tölum Hagstofu.

OR vill selja sitt Magmabréf að verðmæti 8,3 milljarðar

Orkuveita Reykjavíkur (OR) leitar nú að kaupenda að skuldabréfi sem fyrirtækið fékk frá Magma Energy þegar Orkuveitan seldi hlut sinn í HS Orku árið 2009. Skuldabréfið er tæplega 68 milljóna dollara virði eða sem svarar til 8,3 milljarða króna.

Skúli Mogensen tekur við sem forstjóri WOW air

Skúli Mogensen mun taka við sem forstjóri WOW air af Baldri Baldurssyni núverandi forstjóra. Þessi breyting gerist samhliða því að Títan, fjárfestingafélag Skúla, leggur inn 500 milljóna króna aukahlutafé til að efla rekstur fyrirtækisins.

HB Grandi segist tapa yfir þremur milljörðum á veiðileyfagjaldinu

Tekjur af rekstri HB Granda námu 93,3 milljónum evra á fyrri hluta ársins en voru 76,3 milljónir evra árið áður. EBITDA var 28,7 milljónir evra en var 25,2 milljónir árið áður og er bættur árangur fyrst og fremst skýrður með góðri afkomu loðnuvertíðar. Tap tímabilsins nemur hins vegar 1,5 m€, þar af er gjaldfærsla vegna virðisrýrnunar aflaheimilda 21,6 m€. Árið áður var hagnaður 15,7 m€, eftir því sem fram kemur í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Bréf Össurar lækkuðu um tvö prósent - veltan um 90 milljónir

Gengi bréfa Össurar lækkaði um 1,97 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 199. Velta í viðskiptum með bréfin nam 9,3 milljónum króna. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 0,28 prósent í viðskiptum upp á 7,7 milljónir. Gengi bréfa félagsins er nú 7,08. Mesta veltan var með bréf Haga, eða sem nam 41 milljón. Gengi bréfa félagsins lækkaði um 0,83 prósent eða niður í 18.

Hagvöxtur mælist 1,7 prósent í Bandaríkjunum

Hagvöxtur í Bandaríkjunum mældist 1,7 prósent á öðrum ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra. Það er heldur meiri hagvöxtur en flestir sérfræðingur höfðu reiknað með en 1,5 prósent hagvexti á tímabilinu, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Hagvöxturinn er þó minni en hann var á fyrsta þremur mánuðum ársins, en þá mældist hagvöxturinn um tvö prósent miðað við sama tímabil árið á undan.

Eyjafjallajökull? - Google skilur nú íslensku

Íslensku hefur nú verið bætt við raddleit tæknirisans Google. Háskólinn í Reykjavík og Máltæknisetur hafa unnið að verkefninu síðustu ár og það í samstarfi við Google. Notendur geta nú nýtt sér þessa þjónustu. Trausti Kristjánsson, athafnarmaður og starfsmaður Google, segir tæknina bjóða upp á margskonar möguleika.

Hagnaður Eimskips 1,2 milljarðar - Eignir upp á 44 milljarða

Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam 19,0 milljónum evra, eða sem nemur um 2,9 milljörðum króna, samanborið við 17,9 milljónir evra fyrir sama tímabilið árið áður. Hagnaður eftir skatta fyrir fyrstu sex mánuði ársins nam 8,0 milljónum evra, eða um 1,2 milljarði króna.

Velgengni Amazon nær nýjum hæðum

Vefverslunarrisinn Amazon tilkynnti fyrr í vikunni að rafbækur sem einskorðaðar eru við Kindle-lesbrettið hafa verið keyptar, halað niður og lánað rúmlega hundrað milljón sinnum. Rétt rúmlega 180 þúsund rafbækur eru á bókaskrá Amazon.

Fótboltakappi opnar ísbúð með Emmessís í Belgíu

Knattspyrnukappinn Stefán Gíslason opnaði nýlega ásamt komu sinni, Hörpu Lind Harðardóttur, ísbúðina YoConcept í belgíska bænum Leuven þar sem boðið er upp á íslenskan jógúrtís frá Emmessís.

Ikea gæti komið að hóteli við Hörpu

Inter Hospitality Holding, dótturfélag sænska húsgagnaframleiðandans Ikea sem staðsett er í Liecthenstein, verður mögulega á meðal eigenda hótelsins sem fyrirhugað er að rísi við hlið Hörpu, samkvæmt heimildum Markaðarins. Félagið er í samstarfi við World Leisure Investment, sem keypti byggingarréttinn á lóðinni við hlið Hörpu, um að fjárfesta í 100 hótelum víðs vegar um Evrópu. Ein þeirra borga sem koma til greina er Reykjavík.

Lögbannskrafa á hendur Samsung tekin fyrir í desember

Krafa Apple, um að nokkrir snjallsímar raftækjafyrirtækisins Samsung verði teknir af markaði í Bandaríkjunum, verður tekin fyrir af dómstólum í desember á þessu ári. Upphaflega var áætlað að krafan yrði tekin fyrir í næsta mánuði.

Skattlagning á áunnin sparnað yrði stjórnarskrárbrot

Hugmyndir um að skattleggja áunninn séreignarsparnað standast engan veginn gagnvart ákvæðum stjórnarskrár Íslands um jafnræði og mannréttindi, friðhelgi eignarréttar og skattamál. Þetta er niðurstaða álitsgerðar sem Einar Gautur Steingrímsson hæstaréttar-lögmaður vann að ósk Landssamtaka lífeyrissjóða vegna hugmynda sem fram hafa komið um að breyta skattlagningu séreignarsparnaðar og skattleggja þegar uppsafnaða inneign en ekki við útgreiðslur.

Kaupfélag malar áfram gull

Tæplega 2,5 milljarða króna hagnaður var af rekstri Kaupfélags Skagfirðinga (KS) og dótturfélaga þess á árinu 2011. Samtals hefur félagið hagnast um sjö milljarða króna á síðustu þremur árum. Þetta kemur fram í ársreikningi KS sem skilað var inn til ársreikningaskrár fyrr í þessum mánuði.

Jón í Jónshúsi telur að kráin hans Jónasar muni lifa af

Þrátt fyrir mikla erfiðleika, telur Jón Runólfsson í Jónshúsi í Kaupmannahöfn að hin sögufræga krá Hviids Vinstue við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn muni lifa af. Kráin berst nú í bökkum og framtíð hennar er óljós vegna breytinga á neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar sem raskar aðgengi að kránni. Eins og margir vita er kráin Íslendingum að góðu kunn, enda sótti skáldið Jónas Hallgrímsson þangað mikið á árum sínum í Kaupmannahöfn.

MP banki skoðar að sækja nýtt hlutafé á næstunni

MP banki stefnir að því að sækja sér aukið hlutafé á komandi vetri til að geta haldið vexti sínum áfram. Eignir bankans hafa aukist hratt og samhliða hefur eiginfjárhlutfall hans lækkað. Um mitt þetta ár var það orðið 14,3 prósent en eigið fé hans er 5,2 milljarðar króna.

Vaxtagreiður og erlend lán veikja gengi krónunnar

Gengi krónunnar hefur lækkað um 3% frá því um miðjan mánuðinn en þessi þróun er þvert á það sem gerðist á sama tíma fyrir ári síðan. Þá hélt gengi krónunnar áfram að styrkjast fram að október vegna innstreymis gjaldeyris frá ferðamönnum.

Aukinn hagnaður hjá Íslandssjóðum

Rekstrarfélag Íslandssjóða skilaði 127 milljón króna hagnaði eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er nokkuð betri afkoma en á sama tímabili í fyrra þegar 98 milljóna kr. hagnaður varð hjá félaginu.

Nýsköpun í blóði Pólverja

Allan Greenberg, sendiherra Bandaríkjanna í Póllandi, segir Pólverja vera öflugt fólk sem þori að taka áhættu. Ekki sé tilviljun að efnahagur landsins hafi tekið vel við sér eftir hrunið þar sem nýsköpun standi Pólverjum nærri.

Repúblikanar skoða gullfót undir dalinn

Repúblikanaflokkurinn, annar af stóru flokkunum tveimur í Bandaríkjunum, hyggst kalla eftir því í stefnuskrá sinni fyrir forsetakosningarnar í haust að stofnuð verði nefnd til að skoða tengingu Bandaríkjadals við gullfót.

Creditinfo krefur ríkið um 400 milljónir

Upplýsingamiðlunin Creditinfo hefur höfðað mál á hendur fjármálaráðuneytinu og Þjóðskrá Íslands til að láta reyna á lögmæti þess að innheimt sé gjald fyrir upplýsingar úr Þjóðskrá, til dæmis veðbönd og fasteignamatsupplýsingar. Fyrirtækið gerir um 400 milljóna króna bótakröfu vegna ofgreiddra gjalda undanfarin ár.

Viðsnúningur í afkomu OR

Orkuveita Reykjavíkur (OR) hagnaðist um ríflega þrjá milljarða króna á öðrum ársfjórðungi. Til samanburðar tapaði fyrirtækið rúmum sex milljörðum króna á sama tímabili í fyrra. OR skilaði þó samanlagt rúmlega 900 milljóna tapi á fyrri helmingi ársins.

Viðunandi hagnaður

Landsvirkjun hagnaðist um 8,5 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir ríflega 1 milljarði íslenskra króna, á fyrri helmingi ársins. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði var hins vegar 46,9 milljónir dala, eða sem nemur 5,7 milljörðum króna. Til samanburðar var hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði 50,5 milljónir dala á sama tímabili í fyrra.

Samkomulag um sparnaðaraðgerðir í Grikklandi

Grísku stjórnarflokkarnir hafa náð samkomulagi um víðtækar sparnaðaraðgerðir í ríkisfjármálum landsins en þessar aðgerðir eru skilyrði þess að landið fái áframhaldandi neyðaraðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu.

Meiri hagnaður hjá RARIK

Töluvert meiri hagnaður varð af rekstri RARIK á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

Sérfræðingar reikna með minni verðbólgu

Nokkuð hefur dregið úr verðbólguvæntingum sérfræðinga á íslenska fjármálamarkaðinum. Þeir reikna nú með því að verðbólgan verði 4,6% á þriðja ársfjórðungi ársins og verði 4,8% eftir eitt ár.

Vodafone hagnast um 206 milljónir

Vodafone hagnaðist um 206 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn jókst um 150 milljónir króna á milli ára. Hagnaður félagsins fyrir skatta, fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var tæplega 1,4 milljarðar króna sem er um fimmtungi meira en Vodafone hagnaðist um á sama tímabili í fyrra.

Hlutafé í IP Studium aukið

Hlutafé í IP Studium Reykjavík ehf., félagi í eigu Ingibjargar S. Pálmadóttur, var aukið um 138,5 milljónir króna þann 13. júlí síðastliðinn. Þá var hlutaféð aukið úr 321,5 milljónum króna í 460 milljónir króna, eða um rúmlega 40 prósent.

Gengi bréfa Marels hækkuð mest í 2,3 milljóna króna viðskiptum

Gengi hlutabréfa Marels hækkuðu um 1,44 prósent í dag í viðskiptum upp á ríflega 2,3 milljónir króna. Gengi bréfa félagsins stendur nú í 141. Heildarveltan á íslenska hlutabréfamarkaðnum nam ríflega 228 milljónum króna. Mest var veltan með bréf Icelandair Group, tæplega 170 milljónir króna. Gengi bréfa Icelandair er nú 7,1. Gengi bréfa Haga stóð í stað í 18,15 en heildarvelta með bréf félagsins nam ríflega 66 milljónum króna.

Um 200 milljóna hagnaður hjá MP - útlán vaxa um 56 prósent

Um 200 milljóna króna hagnaður varð af rekstri MP banka fyrstu 6 mánuði ársins fyrir skatta, samanborið við 681 milljóna króna tap árið 2011. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá MP banka. Hagnaður eftir tekjuskatt og bankaskatt nam 119 milljónum króna. Öll svið starfseminnar hafa vaxið umtalsvert á árinu, að því er segir í tilkynningu frá bankanum.

Íslendingar ekki bjartsýnni í fjögur ár

Íslendingar hafa ekki verið bjartsýnni á stöðu efnahags- og atvinnumála í fjögur ár, eða frá því í apríl 2008, ef marka má væntingavísitölu Capacent Gallup sem birt var í morgun. Vísitalan fyrir ágústmánuð er 85,5 stig og hækkar um 1,1 stig frá fyrri mánuði, en hún hækkaði jafnframt talsvert í júlí, eða um 4,5 stig.

Már: Nauðsynlegt að innleiða varúðarreglur fljótt og örugglega

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að varúðarreglur í tengslum við afnám gjaldeyrishafta séu nauðsynlegar til þess að verja efnahag landsins og takmarka áhættu. Hann segir innleiðingu á þeim reglum sem bankinn leggur til þurfi að vera lokið áður en höftum verður aflétt.

Sjá næstu 50 fréttir