Fleiri fréttir

WOW semur við flugfreyjur

WOW air og Flugfreyjufélag Íslands undirrituðu i í dag kjarasamning sín á milli en aðalfundur félagsins er í dag. Í tilkynningu frá WOW segir að um sé að ræða heildarsamning sem taki á öllu sem við starfinu kemur og gildir hann til 31. janúar 2014.

SA segir að fjölga þurfi nemendum í raungreinum

Fjölga þarf útskrifuðu fólki úr verkfræði, tækni- og raunvísindanámi á Íslandi. Nú þegar er gífurleg eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki sem hefur aflað sér raungreina- og tæknimenntunar á háskólastigi.

Watson tilkynnir um kaupin á Actavis í mánaðarlok

Reiknað er með að bandaríska lyfjafyrirtækið Watson tilkynni um kaup sín á Actavis í lok þessa mánaðar. Þetta kemur fram í frétt á Reuters sem segir að Watson sé nú að afla sér lánsfjár upp á 6 milljarða dollara eða rúmlega 760 milljarða króna.

Skuldatryggingaálag Spánar tvöfalt hærra en Íslands

Töluverður skjálfti ríkir á fjármálamörkuðum í Evrópu þar sem að vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til tíu ára fóru yfir 6% markið í gær. Á sama tíma fór skuldatryggingaálag Spánar í 520 punkta og hefur ekki verið hærra í sögunni. Það er nú tvöfalt hærra en skuldatryggingaálag Íslands.

Verulega dró úr útlánum ÍLS milli ára í mars

Verulega dró úr útlánum Íbúðalánasjóðs (ÍLS) milli ára í mars s.l. Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 1,4 milljörðum króna í mánuðinum en þar af voru tæpar 960 milljónir króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í mars í fyrra rúmum 1,7 milljörðum króna.

Krugman: Leiðtogar Evrópuríkja að gera gríðarleg efnahagsleg mistök

Paul Krugman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði og pistlahöfundur hjá New York Times, segir að leiðtogar Evrópuríkja haldi áfram að gera gríðarleg efnhagsleg og pólitísk mistök, sem allur heimurinn muni gjalda fyrir á endanum. Þetta kemur fram í pistli Krugmans sem ber heitið Efnahagslegt sjálfsmorð Evrópu (European Economic Suicide).

Instagram: 10 milljón notendur á 10 dögum

Smáforritið Instagram hefur vægast sagt slegið í gegn síðan Android-útgáfa þess var opinberuð fyrr í þessum mánuði. Rúmlega 10 milljón snjallsímanotendur hafa náð í forritið á síðustu tíu dögum.

Iron Man 3 verður undir kínverskum áhrifum

Kínverskt kvikmyndafyrirtæki mun koma að framleiðslu næstu Iron Man kvikmyndarinnar. Disney tilkynnti þetta í dag en talið er að samstarfið sé liður í áætlun fyrirtækisins um að styrkja tengsl sín við kvikmyndaiðnaðinn í Kína.

Samherji fær gögn frá gjaldeyriseftirlitinu

Gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands hefur afhent Samherja þau gögn sem lágu til grundvallar þegar Héraðsdómur úrskurðaði um heimild til húsleitar og haldlagningar gagna hjá Samherja og tengdum félögum þann 27. mars síðastliðinn.

Glitnir lánaði Björgólfi 2.7 milljarða

Glitnir lánaði Björgólfi Guðmundssyni 2,7 milljarða króna án nokkurra veða, að því er fram kemur í stefnu slitastjórnarinnar gegn endurskoðunarfyrirtækinu PWC. Slitastjórnin telur PWC algjörlega hafa brugðist í hlutverki sínu sem endurskoðandi bankans fyrir hrun.

Goldman Sachs selur hlut í ICBC

Bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs hefur selt hlut sinn í kínverska bankanum ICBC fyrir um 2,3 milljarða dollara, eða sem nemur 294 milljörðum króna.

Tæplega fimm milljarða skuldir afskrifaðar hjá móðurfélagi Odda

Tæplega fimm milljarða króna skuldir móðurfélags Odda, eignarhaldsfélagsins Kvosar, hafa verið afskrifaðar að því er greint er frá í DV í dag. Þorgeir Baldursson, fyrrverandi stjórnarmaður Landsbankans sem oft er kenndur við prentsmiðjuna Odda, var skráður stærsti eigandi Kvosar með ríflega fjórðungshlut, áður en kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.

Mærsk McKinney Möller er látinn

Danski auðjöfurinn Mærsk McKinney Möller eigandi eins af stærstu skipafélögum heimsins er látinn, 98 ára að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mærsk skipafélaginu.

Metafgangur af vöruskiptum Noregs eða yfir 1.000 milljarðar

Í mars s.l. varð mesti afgangur af vöruskiptum í sögu Noregs. Útflutningurinn nam tæpum 89 milljörðum norskra króna en innflutningurinn var helmingi minni eða 42,5 milljarðar norskra króna. Mismunurinn, 46,4 milljarðar norska króna, samsvarar rúmlega 1.000 milljörðum króna.

Stefnir í stærsta kvikmyndaár sögunnar

Árið í ár gæti orðið stærsta kvikmyndaár sögunnar hvað aðsókn varðar. Framundan eru frumsýningar á fimm stórmyndum sem samtlas kostuðu yfir 130 milljarða króna í framleiðslu.

Kortavelta landsmanna heldur áfram að aukast

Kortavelta landsmanna heldur áfram að aukast milli ára. Heildarvelta debetkorta í mars síðastliðnum var 30,7 milljarðar króna sem er 9,2% aukning miðað við mars í fyrra.

Hagnaður endurskoðenda hefur dregst lítillega saman

Hagnaður þriggja af fjórum stærstu endurskoðunarfyrirtækjum landsins dróst saman í fyrra. Alls þénuðu fyrirtækin þrjú, KPMG, PWC og Ernst&Young, 161,7 milljónum krónum minna á síðasta rekstrarári en árið á undan. Þetta kemur fram í nýjustu ársreikningum þeirra.

AGS kallar eftir aðhaldssamari hagstjórn

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur til þess að stjórnvöld sýni meira aðhald í ríkisfjármálum og telur réttast að Seðlabankinn hækki stýrivexti vegna aukins verðbólguþrýstings. Þá telur sjóðurinn að gengi krónunnar gæti enn veikst nokkuð á næstunni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu AGS um íslenskt efnahagslíf sem kom út í síðustu viku en stofnunin gefur reglulega út slíkar skýrslur.

Seðlabanki Bandaríkjanna mun hagnast á björgunarlánum

Bandaríski seðlabankinn tilkynnti um það í dag, að útlit væri fyrir að bankinn myndi hagnast á fjárveitingum sem fóru til banka á Wall Street haustið 2008, þegar fjármálakerfið riðaði til falls. Þá munu öll lán, og jafnvel um tveir milljarðar dollara að auki, sem fóru til bílaframleiðenda og tryggingarfélaga skila sér til baka.

Ríkið að selja Bjálmholt í Rangárþingi ytra

Frestur til þess að skila inn tilboðum í jörðina Bjálmholt í Rangárþingi ytra rennur út klukkan 10:00 17. apríl nk., en Ríkiskaup, fyrir hönd íslenska ríkisins, óskuðu eftir tilboðum í jörðina með auglýsingu í gær.

Samskip fjárfestir fyrir 4 milljarða

Samskip hafa fest kaup á gámaflutningaskipunum Arnarfelli og Helgafelli sem verið hafa í siglingum fyrir félagið milli Íslands og Evrópuhafna frá ársbyrjun 2005. Um er að ræða nærri fjögurra milljarða króna fjárfestingu fyrir Samskip. Samskip hafa verið með Arnarfell og Helgafell á leigu frá því að þau voru smíðuð fyrir sjö árum. Íslenskar áhafnir eru á báðum skipunum.

Ernir flýgur beint til Húsavíkur

Flugfélagið Ernir hefur beint áætlunarflug til Húsavíkur klukkan þrjú í dag og er áætluð lending á Húsavík korter í fjögur. Þetta er fyrsta áætlunarflug frá Reykjavík til Húsavíkur í 12 ár og eru viðtökur heimamanna við fluginu frábærar.

Fjölgun ferðamanna með ólíkindum

Ferðaþjónusta hefur aukist gríðarlega í vetur og fjölgun ferðamanna er með ólíkindum, segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Hún segir að stærsta verkefnið sé eftir se áður að fjölga ferðamönnum utan háannatímans og fá betri nýtingu á alla þá fjárfestingu sem hefur verið ráðist í í tengslum við ferðaþjónustuna. Máli sínu til stuðnings bendir Erna á að 26% aukning hefði orðið á komu ferðamanna í mars.

HB Grandi greiðir tæpar 700 milljónir í arð

HB Grandi greiðir hluthöfum samtals um 679 milljónir króna í arð vegna siðasta árs eða um 0,40 krónur á hvern hlut. Tillaga þessa efnis var samþykkt á hluthafafundi HB Granda í gær. Þá var jafnframt samþykkt að stjórnarmenn fengu 800 þúsund krónur í laun fyrir störf sín fyrir fyrirtækið á árinu og formaður stjórnarinnar fengi 2,4 milljónir.

Óttast að upptökur leki á netið

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að verjendur Lárusar Welding og Guðmundar Hjaltasonar, fyrrverandi yfirmanna hjá Glitni, eigi ekki rétt að fá í hendur geisladiska með upptökum af yfirheyrslum skjólstæðinga sinna.

Ríkið fær 1,8 milljarða í arð frá Landsvirkjun

Rekstrarhagnaður Landsvirkjunar jókst talsvert árið 2011. Fjármálastjóri fyrirtækisins segir skuldastöðu þess viðráðanlega með þeim fyrirvara þó að lokist erlendir fjármagnsmarkaðir gæti hið opinbera þurft að styrkja eigið fé félagsins.

Dómurinn ógnar ekki stöðugleika

Fjármálaeftirlitið (FME) telur að áhrif gengislánadóms Hæstaréttar frá 15. febrúar síðastliðnum og endurreikningar lána vegna hans ógni ekki fjármálastöðugleika.

Unnið með skrímslum og legógeimskipum hjá CCP

Höfustöðvar tölvuleikjaframleiðands CCP eru ævintýralegur vinnustaður þar sem skrímsli, tæknilegó, fiskar, rafmagnstrommusett og spilakassar, svo eitthvað sé nefnt, setja mark sitt á vinnuumhverfið.

Tefjar fengu útflutningsverðlaun forseta Íslands

Það var fyrirtækið Trefjar ehf. sem hlaut útflutningsverðlaun forseta Íslands í gær. Frá árinu 1979 hefur fyrirtækið framleitt yfir 400 smábáta af ýmsum stærðum og gerðum.

Apple berst við Flashback vírusinn

Tæknifyrirtækið Apple opinberaði nýja uppfærslu á forritinu Java í dag. Vonast er til að uppfærslan eigi eftir að koma í veg fyrir að Flashback trójuvírusinn smiti fleiri Mac tölvur. Um 600.000 tölvur urðu fyrir barðinu á vírusnum.

4G þjónustan væntanleg á Ísland

Póst- og fjarskiptastofnun mun úthluta tíðnum fyrir 4G þjónustu hér á landi síðar á þessu ári. Það verður gert með uppboði og verður 800 MHz og 1800 MHz tíðnisviðunum úthlutað fyrst.

Verslun fyrir nútímakonur

I AM var opnuð í Kringlunni í gær en verslunin býður skartgripi og fylgihluti sem fullnægja öllum þörfum íslenskra kvenna.

Stjórn AGS lýkur reglubundnu eftirliti

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur lokið reglubundinni úttekt á íslensku efnahagslífi samkvæmt reglugerð fjögur og birti skýrslu þess efnis í gær samkvæmt tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

Tekjur Google halda áfram aukast

Tekjur tæknifyrirtækisins Google námu 10.65 milljörðum dollara á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta er 24% hærri tekjur en á sama tímabili árið 2011.

Krónan um 5 til 20 prósentum undir jafnvægisraungengi

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að krónan sé nú um 5-20% undir jafnvægisraungengi. Þetta merkir að litið til lengri tíma gæti raungengi krónunnar hækkað, þar sem hún er vanmetin, og þá annað hvort eða hvorutveggja með því að nafngengi krónu hækkar og/eða að verðbólgan og launahækkanir verði meiri en í helstu viðskiptalöndunum. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka.

Skuldsett heimili dýpka og lengja kreppur

Kreppur verða langvinnari og dýpri eftir því sem heimili eru skuldsettari í aðdraganda þeirra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um skuldir heimila. Bornar eru saman skuldakreppur og fall eignaverðs víða um lönd á ólíkum tímum.

MS ræðst í milljarða fjárfestingu

Mjólkursamsalan, MS, sem er afurðafyrirtæki í eigu íslenskra kúabænda, ræðst á næstu mánuðum í 1,5 til tveggja milljarða króna fjárfestingar og breytingar á skipulagi í stærstu afurðastöðvum sínum. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrir MS.

Heildarafli íslenskra skipa talsvert meiri

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 21,2% meiri en í mars 2011. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 29,3% miðað við sama tímabil 2011, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Sjá næstu 50 fréttir