Viðskipti innlent

Tefjar fengu útflutningsverðlaun forseta Íslands

Það var fyrirtækið Trefjar ehf. sem hlaut útflutningsverðlaun forseta Íslands í gær. Frá árinu 1979 hefur fyrirtækið framleitt yfir 400 smábáta af ýmsum stærðum og gerðum.

Í gær afhenti forsetinn Auðunni N. Óskarssyni sérstök útflutningsverðlaun í viðurkenningarskyni fyrir markvert framlag til eflingar útflutningsverslun og gjaldeyrisöflun íslensku þjóðarinnar.

Upphaflega var fyrirtækið stofnað til að framleiða bílahluta úr trefjaplasti en framleiðslan þróaðist fljótt út í smíði á bátum. 1994 þróuðu Trefjar nýja línu hraðfiskibáta undir nafninu Cleopatra. Cleopatra bátarnir eru í dag aðalframleiðsluvara fyrirtækisins.

Útflutningsverðlaun forseta Íslands voru fyrst veitt árið 1989 og meðal annarra fyrirtækja er hlotið hafa verðlaunin í gegnum tíðina má nefna Össur, Sæplast, Guðmundur Jónasson, GoPro Landsteinar, Bláa lónið, CCP og Marel og Ferðaþjónusta bænda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×