Viðskipti innlent

MS ræðst í milljarða fjárfestingu

Einar Sigurðsson, forstjóri MS.
Einar Sigurðsson, forstjóri MS.
Mjólkursamsalan, MS, sem er afurðafyrirtæki í eigu íslenskra kúabænda, ræðst á næstu mánuðum í 1,5 til tveggja milljarða króna fjárfestingar og breytingar á skipulagi í stærstu afurðastöðvum sínum. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrir MS.

Markmiðið er að ná fram frekari hagræðingu, sem ætlað er að skili sér í vöruverði til neytenda og hráefnisverði til bænda auk þess að skapa nýja möguleika til að flytja út skyr, osta og mysuafurðir, að því er segir í tilkynningunni.

Gert er ráð fyrir að endurnýja og stækka ostaframleiðslu á Akureyri, endurnýja framleiðslu á sýrðum mjólkurvörum á Selfossi, færa saman á Selfossi mjólkurpökkun sem hefur verið þar og í Reykjavík og endurnýja ostapökkun í Reykjavík og byggja þar upp stóra birgðastöð og dreifistöð.

„Mjólkursamsalan hefur á undanförnum árum náð umtalsverðum árangri í hagræðingu og sparnaði", segir Einar Sigurðsson, forstjóri félagsins í tilkynningu. Kostnaður við söfnun, vinnslu og dreifingu mjólkur og mjólkurafurða hefur verið lækkaður um 2 milljarða króna á ársgrunni. Þessi ávinningur hefur átt mestan þátt í að halda hér niðri verði mjólkurvara á sama tíma og eldsneytisverð, orkuverð, erlend aðföng og hráefnisverð til bænda hefur hækkað verulega vegna kostnaðarhækkana þeirra."

„Mjólkursamsalan þarf stöðugt að þróa starfsemi sína og leita hagræðingarkosta. Við gerum ráð fyrir að þurfa að mæta innflutningi einhverra mjólkurafurða á næstu árum. Þess vegna leggjum við höfuðáherslu á að gera vinnsluna hér heima sem hagkvæmasta og styrkja gæðaímynd íslenskra mjólkurafurða," segir Einar Sigurðsson.

Mjólkursamsalan sinnir öllum skyrútflutningi frá landinu með framleiðslu frá Selfossi. Með þessum fyrirhuguðu breytingum eykst framleiðslugetan og geymsluþol eykst sem gefur færi á að flytja skyr lengri vegalengdir.

Framleiðslugeta fyrir ost á Akureyri verður aukin með nýjum ostapressum, að því er segir í tilkynninngunni. „Þetta ásamt framleiðslu á mysuafurðum sem falla til við ostaframleiðsluna mun fjölga útflutningsmöguleikum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×