Viðskipti innlent

Heildarafli íslenskra skipa talsvert meiri

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 21,2% meiri en í mars 2011. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 29,3% miðað við sama tímabil 2011, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Aflinn nam rúmlega 193 Þúsund tonnum í mars 2012 samanborið við 118 þúsund tonn í mars 2011. Botnfiskafli jókst um rúm 1400 tonn frá mars 2011 og nam rétt rúmum 46 þúsund tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 24.000 tonn, sem er samdráttur um rúm 300 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 6.500 tonnum sem er um 600 tonnum minni afli en í mars 2011.

Karfaaflinn jókst um rúm 3.600 tonn samanborið við mars 2011 og nam tæpum 7.900 tonnum. Um 3.500 tonn veiddust af ufsa sem er um 400 tonna samdráttur frá mars 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×