Fleiri fréttir

"Apple á meira en nóg af peningum"

Tim Cook, forstjóri Apple, sagði í gær að stjórn fyrirtækisins íhugi nú að greiða hluthöfum arð. Hann sagði að Apple hafi meira en nóg af peningum til ráðstöfunar. Talið er að Apple eigi um 98 milljarða dollara.

Branson fær yfirráð yfir richardbranson.xxx

Auðkýfingurinn Richard Branson hefur loks náð yfirráðum yfir léninu richardbranson.xxx. Hann hefur staðið í deilum við austurríkismanninn Sean Truman sem skráði lénið á síðasta ári.

Forstjóri Össurar með 15 milljónir í mánaðarlaun

Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar, var með 179 milljónir króna í árslaun á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársskýrslu Össurar fyrir síðasta ár, sem kom út í morgun. Launin jafngilda tæplega 15 milljónum króna í mánaðarlaun.

Fiskiskipum fjölgaði um 30

Alls voru 1.655 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun í lok síðasta árs og hafði þeim fjölgað um 30 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var 764 og fjölgaði þeim um þrjú á milli ára. Togarar voru alls 58 og fjölgaði um einn frá árinu á undan. Opnir fiskibátar voru 833 og fjölgaði þeim um 26 milli ára.

Nýjum einkahlutafélögum fjölgaði um 6%

Um sex prósent fleiri einkahlutafélög voru skráð í janúar síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Nú voru 148 félög skráð en 139 í fyrra. Flest einkahlutafélög voru skráð í fasteignaviðskiptum.

Verðbólgan er 6,3%

Tólf mánaða verðbólga, mæld í febrúar, er 6,3% samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Hún lækkar lítillega frá fyrri mánuði en þá var hún 6,5%. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar hækkaði samt um 1,01% frá fyrri mánuði.

Buffett: Mönnum var leyft að skuldsetja sig í botn

Warren Buffett, einn þekktasti fjárfestir heims og annar ríkasti maður Bandaríkjanna á eftir Bill Gates, segir að engin yfirsýn hafi verið fyrir hend þegar kom að skuldsetningu í bandarísku efnahagslífi. Þetta hafi ekki síst átt við markað með tryggingar og afleiður.

Flugmennirnir ráðnir næst

WOW air hefur gengið frá ráðningum á flugfreyjum og flugþjónum, en umsóknarfrestur vegna starfa flugstjóra og flugmanna rennur út um næstu mánaðamót.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar látlaust

Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu þessa stundina. Bandaríska léttolían er komin í 108,5 dollara á tunnuna en fyrir þremur vikum var það verð komið niður í tæpa 96 dollara á tunnuna. Verðið á Brentolíunni stendur í 124 dollurum á tunnuna.

Fleiri mál vofa yfir Kaupþingsmönnum - fréttaskýring

Eiga fleiri dómsmál á hendur fyrrverandi stjórnendum Kaupþings eftir að líta dagsins ljós? Þrátt fyrir að sérstakur saksóknari hafi gefið út ákæru í máli sem kennt er við katarska sjeikinn Al Thani þýðir það ekki að fyrrverandi stjórnendur í Kaupþingi séu komnir fyrir vind í öðrum málum sem hafa verið til rannsóknar hjá embættinu.

Verulegur ábati er af flugstarfsemi

Flugrekstur leiðir af sér verulegan þjóðhagslegan ábata fyrir efnahag Íslands og íslenska borgara, auk þess sem sumir þættir flugrekstrarins eru þess eðlis að ekkert getur komið í þeirra stað og þeir eru algerlega ómissandi fyrir nútímahagkerfi. Þetta er meginniðurstaða nýrrar landsskýrslu Oxford Economics um efnahagslegan ábata af flugrekstri á Íslandi.

Sex laxar á hver þúsund tonn

Meðafli á laxi á Íslandsmiðum virðist nema um 5 til 6 löxum á hverjar 1.000 lestir sem veiðast af makríl. Rannsóknirnar benda til að laxinn sem veiðist sem meðafli á Íslandsmiðum sé ekki upprunninn á Íslandi.

Flytja inn 500 gáma af vörum

Í vikunni var hafist handa við uppsetningu innréttinga í stórhýsi byggingavöruverslunarinnar Bauhaus við Vesturlandsveg. Miðað við gang framkvæmda má ætla að verslunin, sem er um 21 þúsund fermetri að stærð, verði opnuð áður en vorverk hefjast fyrir alvöru. Ekki hefur þó enn verið gefin upp dagsetning opnunarinnar.

Tveir vildu hækka vexti

Tveir af fimm meðlimum peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands vildu hækka vexti við síðustu vaxtaákvörðun. Þrír vildu hins vegar halda vöxtum óbreyttum sem varð ofan á. Þetta kemur fram í fundargerð frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi.

Nova vinsælast hjá neytendum

Nova er það fyrirtæki sem íslenskir viðskiptavinir eru hvað ánægðastir með, samkvæmt íslensku ánægjuvoginni fyrir árið 2011. Iceland Express fær hins vegar lægstu einkunnina. Ríkisútvarpið sagði frá niðurstöðunum í gær.

Hækkanir og lækkanir á mörkuðum

Hlutabréfavísitölur hækkuðu í Bandaríkjunum í dag á meðan þær lækkuðu víðast hvar í Evrópu. Þannig hækkaði Nasdaq vísitalan vestanhafs um 0,81 prósent á meðan DAX vísitalan í Evrópu lækkaði um 0,5 prósent. Hér á Íslandi var lítil hreyfing á gengi bréfa í skráðum félögum, en gengi bréfa í Högum hækkuðu þó lítillega, eða um 0,29 prósent og er gengið nú 17,2.

Fyrsti olíufundur í sögu þjóðarinnar

Olía er fundin í lögsögu Íslands og er fyrsti olíufundur í sögu þjóðarinnar nú staðreynd. Tvö olíuleitarfélög, norskt og breskt, hafa staðfest olíufund á Drekasvæðinu í hlíðum neðansjávarfjalls sem nefnt er eftir Sigurði Fáfnisbana, rétt innan við lögsögumörkin við Jan Mayen.

Fær frest til þriðjudags til að bregðast við uppsögn

Gunnari Þ. Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, hefur verið veittur viðbótarfrestur til klukkan fjögur á þriðjudaginn í næstu viku til þess að gera athugasemdir við fyrirætlanir um uppsögn hans í starfi. Þetta staðfestir Aðalsteinn Leifsson, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, í samtali við Vísi.

Apple fær að selja iPad í Sjanghæ - í bili

Tölvurisinn Apple fær að halda áfram að selja iPad spjaldtölvurnar í Kína eftir að tímabundið hlé var gert á dómsmáli þar sem fjallað var um lögmæti "iPad“ vörumerkisins.

Marel greiðir rúman milljarð í arð

Stjórn Marels hyggjast greiða um 6,9 milljónir evra, eða um 1,1 milljarð króna, út í arð fyrir árið 2011. Tillaga þessa efnis verður lögð fram á aðalfundi félagsins í mars. Upphæðin nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að arðgreiðslutillagan er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu sem kynnt var á aðalfundi félagsins 2011.

Líkur á að Tchenguizmálið muni klúðrast

Líkur eru taldar á að rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar á viðskiptum Tchenguizbræðra við Kaupþing muni klúðrast. Þetta fullyrðir breska blaðið Daily Telegraph á vef sínum.

Bónust oftast með lægsta verðið

Allt að 25% verðmunur var á hæsta og lægsta verði þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverslunum og stórmörkuðum. Þá var Bónus oftast með lægsta verðið á meðan hæsta verðið var oftast að finna í verslunum hjá Samkaupum-Úrvali.

Átak sem á skila 1.500 störfum

Áætlun stjórnvalda, atvinnurekenda, stéttarfélaga og sveitarfélaga í atvinnumálum gerir ráð fyrir að 1.500 manns sem nú eru á atvinnuleysisskrá fái vinnu. Áætlunin er liður í sameiginlegu átaki gegn langtímaatvinnuleysi.

Starfsmaður Foxconn sá iPad í fyrsta sinn

Umfjöllun ABC fréttastofunnar um vinnuaðstæður í verksmiðjum Foxconn í Kína var frumsýnd á mánudaginn. Í yfirlýsingu frá Apple eru frásagnir starfsmanna í verksmiðjunum dregnar í efa.

Olía aldrei dýrari fyrir Íslendinga

Olíuverð á heimsmarkaði hefur ekki verið hærra í krónum talið en það er um þessar mundir. Olíuverð hefur hækkað nokkuð það sem af er morgni. Tunna af Brent-olíu kostaði tæpa nú 124 dali klukkan níu í morgun og hefur ekki verið dýrari í tæpa 10 mánuði, eftir því sem kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Greining segir að vaxandi spenna á milli Írans og vesturveldanna sem hækki olíuverð að þessu sinni, sem aftur megi rekja til þeirrar ákvörðunar Evrópusambandsins seint í janúar síðastliðnum að leggja bann á innflutning á olíu frá Íran frá og með næsta sumri. Tunnan af Brent-olíu hafi hækkað um 14% frá þeim tíma. Aðrir stórir kaupendur olíu frá Íran, t.d. Japan og Kína, hafi einnig áform um að snúa sér annað með hluta olíukaupa sinna, sem auki við verðþrýstinginn á Brent-olíuna.

SFO biður Tchenguiz afsökunar

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, hefur beðið fjárfestinn Vincent Tchenguiz afsökunar á mistökum sem stofnunin gerði þegar óskað var eftir húsleitarheimildum í tengslum við viðskipti Tchenguiz við Kaupþing banka. Tchenguiz hefur stefnt SFO og krefst 100 milljóna sterlingspunda bóta, um 19,5 milljarða króna, vegna ærumeiðinga. Serious Fraud Office segir að starfsmenn stofnunarinnar hafi verið undir miklu álagi og því hafi þeir ekki unnið úr gögnum sem skiptu máli varðandi málið gegn Tchenguiz. Í mars á síðasta ári fóru starfsmenn Serious Fraud Office inn í fyrirtæki Tchenguz og á heimili hans vegna rannsóknar á 100 milljóna sterlingspunda lánasamningi sem Tchenguizfjölskyldusjóðurinn gerði við Kaupþing.

Skuldabréfaáætlun Arion banka upp á einn milljarð evra

Rammaáætlun Arion banka um útgáfu á sértryggðum skuldabréfum, sem bankinn vann með Barclays Capital, er upp á einn milljarð evra, að því er fram kemur í Financial Times (FT) í dag. Þetta þýðir ekki að bankinn ætli sér að gefa út sértryggð skuldabréf upp á fyrrnefnda upphæð, heldur er nú rammaáætlun fyrir hendi sem auðveldar bankanum að taka frekari skref þegar kemur að skuldabréfaútgáfu.

0,3% samdráttur á evrusvæðinu

Samdrátturinn í hagkerfinu á evrusvæðinu verður 0,3% á þessu ári, samkvæmt spá framkvæmdastjórnar Evrópusambands Íslands. Fyrri spá gerðu ráð fyrir að hagvöxtur yrði 0,5%. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tekur skýrt fram að þarna sé um að ræða einungis lítilsháttar samdrátt og að merkja mætti stöðugleika i nálægri framtíð. Eins og við er að búast er það Grikkland sem mun hamla mest vexti á evrusvæðinu.

Segir almennar afskriftir afar ómarkvissar

Almenn skuldaniðurfelling til allra er afar ómarkviss aðgerð þar stór hluti hennar myndi helst nýtast þeim sem þurfa lítið á henni að halda. Þetta segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Ólafur gat grætt á kaupunum

Embætti sérstaks saksóknara segir að ef kaup Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani í Kaupþingi í september 2008 hefðu skilað hagnaði hefði Ólafur Ólafsson, þá einn stærsti eigandi bankans, hagnast á því.

Miðaldaréttarfar verður aldrei liðið

Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), áskilur sér rétt til að láta reyna á málatilbúnað stjórnar FME við ætlaða brottvikningu hans úr starfi með stjórnsýslukæru. Þetta kemur fram í bréfi sem Skúli Bjarnason, lögmaður hans sendi stjórnarformanni FME í gær.

4G-farsímar valda truflun

Koma þarf tæknibúnaði fyrir í hátt í milljón breskra heimila til að koma í veg fyrir að bylgjur úr 4G-farsímum trufli ekki sjónvarpsútsendingar. Þessi aðgerð mun kosta rúma tuttugu milljarða króna, samkvæmt frétt BBC.

Tveir nefndarmenn af þremur vildu hækka stýrivexti

Tveir nefndarmanna í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lögðust gegn tillögu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra, um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 4,75 prósentum, á síðasta fundi peningastefnunefndar. Samtals studdu þrír tillöguna og voru vextirnir þess vegna óbreyttir. Þessir tveir nefndarmenn, sem ekki eru nafngreindir í takt við venju þar um, vildu hækka vextina um 0,25 prósentur þar sem verðbólguhorfur hefðu versnað. Þetta kemur fram í fundargerð peningastefnunefndar, frá síðustu fundum nefndarinnar 6. og 7. febrúar, en hún var birt á vef Seðlabankans í dag.

Hvað eru umboðssvik og hvað fellur undir markaðsmisnotkun?

Brotin sem þrír fyrrverandi stjórnendur Kaupþings og einn fyrrverandi hluthafi bankans eru ákærðir fyrir geta varðað allt að sex ára fangelsi ef sakir eru miklar. Þá geta þau tæknilega leitt til allt að níu ára fangelsis, verði þeir sakfelldir fyrir bæði umboðssvik og markaðsmisnotkun, en í almennum hegningarlögum er sérstökum hemild dómara til að bæta við helmingi refsingar ef mál er þannig vaxið að það mæli með því. Það gerist þó sjaldan.

Gætu fengið sex ára fangelsi - ákæran í heild sinni

Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Ólafur Ólafsson og Magnús Guðmundsson gætu átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi verði þeir fundnir sekir um umboðssvik og markaðsmisnotkun en þeir hafa verið ákærðir af sérstökum saksóknara í Al-Thani málinu.

Valitor semur við Advania

Valitor hefur samið við Advania um hýsingu, netkerfi, tengdan vélbúnað og öryggislausnir fyrir upplýsingakerfi fyrirtækisins. Í tilkynningu frá Advania segir að í samningnum felist meðal annars tvöföldun Valitor á eigin netkerfi og hýsing hjá Advania með öruggu gagnasambandi við rammgerða vélasali á háhraðaneti. Hýsingin á búnaði Valitor verður staðsett hjá gagnaverinu Thor Data Center, sem er í eigu Advania.

Segir málsmeðferð í máli Gunnars bera keim af sýndarréttarhöldum

Skúli Bjarnason, lögmaður Gunnars Þ. Andersen, telur að málsmeðferð FME í máli umbjóðanda hans beri keim af sýndarréttarhöldum. Hann telur að stjórn FME hafi ekki nema að litlu leyti svarað spurningum sem hann lagði fram fyrir hönd Gunnars og áréttar ósk um á hvaða nýju gögnum ákvörðun stjórnarinnar sé byggð.

Evrópudómstóll fjallar um ACTA

Evrópudómstóll hefur verið beðinn um að fjalla um lögmæti viðskiptasamningsins ACTA. Samningurinn felur í sér úrbætur á viðurlögum og eignaupptöku í tilfellum höfundarlagabrota á internetinu.

"Kynnt sú fyrirætlan stjórnar FME að segja þér upp störfum"

Í bréfi frá stjórn Fjármálaeftirlitsins sem Gunnar Þ. Andersen forstjóri stofnunarinnar fékk boðsent til sín sl. föstudag segir: "(E)r þér með þessu bréfi kynnt sú fyrirætlan stjórnar FME að segja þér upp störfum sem forstjora stofnunarinnar. Uppsögnin er með sex mánaða fyrirvara frá næstu mánaðamótum.“

Sjá næstu 50 fréttir