Fleiri fréttir

Atvinnulífið gríðarlega svartsýnt

Yfirgnæfandi meirihluti stjórnenda fyrirtækja telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar samkvæmt nýrri könnun Capacent meðal stærstu fyrirtækja landsins fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann og birtist á vef samtakanna.

Portúgal komið í ruslið

Matsfyrirtækið Fitch ákvað í dag að lækka lánshæfi ríkissjóðs Portúgals niður í ruslflokk. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Staða Portúgals er nú talin afar veik efnhagslega og er almennt álitið að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þurfi að aðstoða landið með frekari fjárframlögum.

Greiddu 3 prósent af raunvirði World Class

Dómkvaddur matsmaður sem var fenginn til að meta verðmæti World Class metur reksturinn á átta hundruð til eitt þúsund milljónir króna en Björn Leifsson og kona hans seldu sjálfum sér fyrirtækið á tuttugu og fimm milljónir.

Arcadia Group lokar 260 verslunum

Philip Green, forstjóri og stærsti eigandi Arcadia, tilkynnti um það í morgun að Arcadia hygðist loka 260 verslunum á næstu þremur árum. Ástæðan er minnkandi hagnaður. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC féll hagnaður Arcadia saman um 38% milli ára, niður í 133 milljónir punda.

Sameining Íslandsbanka og Byrs samþykkt

Alþingi hefur samþykkt sölu á hlut ríkisins í Byr hf. til Íslandsbanka og allri samningagerð er nú lokið. Með því er ljóst að Íslandsbanki og Byr munu sameinast, en áður höfðu Fjármálaeftirlit, Samkeppniseftirlitið og Eftirlitsstofnun EFTA veitt samþykki sitt fyrir kaupunum. Íslandsbanki kaupir 11,8% hlut íslenska ríkisins og 88,2% hlut skilanefndar Byrs á 6,6 milljarða króna.

Gera ráð fyrir 2,6% hagvexti á þessu ári

Gert er ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 2,6% á þessu ári og 2,4% 2012, samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Vöxt landsframleiðslu má rekja til aukinnar einkaneyslu og fjárfestingar.

Warren Buffett er ekki "sósíalisti"

Þátturinn The Young Turks gerði viðbrögð Fox News við hugmynd Warren Buffett, um hækkun skatta á þá ofurríku, að umtalsefni. "Þeir eru að kalla Warren Buffett sósíalista. Hvað næst?" segir Cenk Uygur, stjórnandi þáttarins.

Hvetur Íslendinga til að ryksuga ekki upp allar erlendar verslanir

Það virðist ekki vera hægt að gera stjórnmálamönnum grein fyrir þeim skaða sem vörugjöld gera verslun í landinu, segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu. Í samtali við Reykjavík síðdegis í dag ræddi Margrét hvernig stuðla mætti að því að Íslendingar versluðu sem mest innanlands.

Hagnaður Iceland talinn verða 46 milljarðar í ár

Talið er að hagnaður Iceland Foods verlsunarkeðjunnar í Bretlandi muni aukast verulega milli ára. Talið er að brúttóhagnaðurinn á yfirstandandi rekstrarári sem lýkur í mars næstkomandi muni nema nær 230 milljón punda eða tæplega 46 milljarða króna.

S&P hækkar lánshæfismat á Landsvirkjun

Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt horfum á lánshæfismati Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugar. Mat fyrirtækisins á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar, BB, helst óbreytt. Tilkynning Standard & Poor's kemur í kjölfar samskonar breytingar sem fyrirtækið hefur gert fyrir lánshæfismat ríkissjóðs og var tilkynnt í gær.

Vísar því á bug að World Class hafi verið keypt fyrir slikk

Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, segir af og frá að kaupverð Lauga ehf., sem er í eigu Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur, á rekstri World Class af félagi sem var í þeirra eigu hafi aðeins verið 3 prósent af verðmati dómkvaddra matsmanna.

Kína orðinn stærsti snjallsímamarkaður heims

Kína er orðinn stærsti markaður heims fyrir snjallsíma með um 24 milljónir pantana inn á markað á þriðja ársfjóðungi, á meðan Bandaríkin voru á sama tíma með 23 milljónir. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í kvöld.

Segir Íra geta hjálpað Íslendingum í erfiðustu köflunum

Komið yrði fram við Íslendinga eins og jafningja í Evrópusambandinu og íslenska ríkið yrði leiðandi þjóð í sjávarútvegsmálum í sambandinu. Þetta segir Evrópumálaráðherra Írlands. Þá muni forsæti Íra í sambandinu árið 2013 aðstoða við að ljúka viðræðum um erfiðustu kaflana eins og sjávarútveg.

Eiga hlut sem er 170 milljóna króna virði

Stjórnendur Haga fengu ekki hlut frá Arion banka í Högum upp á ríflega 300 milljónir, eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, heldur nemur hluturinn samtals um 170 milljónum. Til viðbótar við þennan 170 milljóna hlut fengu stjórnendurnir hins vegar peningagreiðslu upp á 170 milljónir til viðbótar, og þurfa þeir að standa skil á skatti af heildarvirði þessa samkomulags, virði ríflega 340 milljóna, samkvæmt upplýsingum frá Haraldi Guðna Eiðssyni, hjá samskiptasviði Arion banka.

Eru Írar betur settir en Íslendingar?

Það var bókstaflega allt í steik hjá Írum eftir hrunið því írska þingið setti lög um að írska ríkið ábyrgðist skuldir alls bankakerfisins. Írar fóru semsagt allt aðra leið en Íslendingar því bankarnir voru þjóðnýttir að fullu. Lucinda Creighton, Evrópumálaráðherra Íra, er yngsti ráðherrann í ríkisstjórn Írlands, aðeins 31 árs. Hún segir að það hafi reynst rétt hjá Írum að ábyrgjast skuldir bankakerfisins þar í landi. Þá segir hún ekki hægt að svara því hvort Íslendingar hefðu getað sett neyðarlög hefðu þeir haft evru því aðstæður hér hefðu líklega verið allt aðrar.

Samsung gerir grín að iPhone notendum

Ný sjónvarpsauglýsing Samsung gerir stólpagrín að notendum iPhone snjallsímans sem hannaður er af Apple. Tæknifyrirtækin hafa staðið hatrammri baráttu um yfirráð á snjallsímamarkaðnum.

S&P hækkar lánshæfismats ríkissjóðs

Matsfyrirtækið Standars & Poor's breytti í dag horfum á lánshæfismati ríkissjóðs í stöðugar úr neikvæðum þar sem hagvöxtur hefur tekið við sér á ný. BBB-/A-3 lánshæfiseinkunnir staðfestar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Sautján þúsund missa vinnuna

Nokia Simens símafyrirtækið ætlar að fækka starfsmönnum um 17 þúsund. Um er að ræða 23% af vinnuafli hjá fyrirtækinu.

Fá að kaupa í Högum á genginu 11-13,5

Almenningi og fagfjárfestum gefst tækifæri á að kaupa í 20-30% af útgefnum hlutum í Högum hf á genginu 11-13,5 krónur á hlut. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Arion banki sendi frá sér í dag. Hluturinn er í eigu Eignarbjargs, sem er dótturfélag Arion banka.

Sementsverksmiðjunni lokað ef aðstæður breytast ekki

Vegna gríðarlegs samdráttar í sölu sements síðustu ár og mikillar óvissu um stöðu byggingariðnaðarins næstu misseri hefur Sementsverksmiðjan á Akranesi ákveðið að hætta sementsframleiðslu ef aðstæður breytast ekki verulega á næsta ári.

Larry Page: Ég er að "springa" úr stolti

Larry Page, annar stofnenda Google og einn stærsti eigandi fyrirtækisins, flutti ræðu fyrir útskriftarnema á heimasvæði sínu í Michigan vorið 2009. Hann fer þar yfir sögu sína og hvernig hún tengist University of Michigan, en foreldrar hans kynntust þar. Ræðan þykir sú besta sem hann hefur flutt, en hann gerir það sjaldan.

Portúgal þarf frekari neyðaraðstoð

Portúgal mun sennilega þurfa meiri neyðaraðstoð en þær 78 milljarðar evra sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið hafa lofað að veita landinu.

Jarðir í nauðungarsölu

Landsbankinn hefur farið fram á að fimm jarðir í eigu Lífsvals ehf. verði settar á nauðungaruppboð. Þetta kemur fram í Lögbirtingarblaðinu og hefur bankinn þá farið fram á að alls tíu jarðir í eigu félagsins verði settar á nauðungarsölu.

Fréttaskýring: Allt á suðupunkti í Suður-Evrópu

Staða efnahagsmála í nær öllum ríkjum í Suður-Evrópu er fjárfestum mikið áhyggjuefni í augnablikinu, samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins BBC og Wall Street Journal í dag. Þetta hefur enduspeglast í sífellt hækkandi skuldatryggingaálagi á tíu ára ríkisskuldabréf ríkjanna. Álagið á undanförnum vikum hefur hækkað snarlega og er nú á bilinu 5 til rúmlega 7 prósent.

Facebook hannar snjallsíma

Samskiptasíðan Facebook hefur nú hafið þróun á sérhönnuðum snjallsíma. Talið er að samskiptasíðan sé nú þegar komin í samstarf við farsímaframleiðandann HTC.

Samkeppnishæfni Íslands hverfur með kolefnisgjaldi

Forsendur fyrir rekstri járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga bresta ef fyrirhugað kolefnisgjald verður lagt á segir forstjóri Elkem á Íslandi. Hann segir samkeppnishæfni Íslands í iðnaðinum hverfa því hráefni verða skattlögð sem ekki er gert í öðrum löndum.

Rauðar tölur á hlutabréfamörkuðum í Evrópu

Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa lækkað í dag um tæplega 1% að meðaltali. Áhyggjur vegna vaxandi skuldavanda Evrópuríkja eru sagðar ástæður fyrir lækkunum, að því er fram kemur á vefsíðu Wall Street Journal.

Sjá næstu 50 fréttir