Viðskipti innlent

Atvinnulífið gríðarlega svartsýnt

Yfirgnæfandi meirihluti stjórnenda fyrirtækja telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar samkvæmt nýrri könnun Capacent meðal stærstu fyrirtækja landsins fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann og birtist á vef samtakanna.

Samkvæmt könnuninni telja 72% stjórnenda aðstæður vera slæmar, 26% að þær séu hvorki góðar né slæmar en 2% að þær séu góðar.

Fleiri stjórnendur telja að ástandið versni en batni á næstunni, þótt flestir telji að þær breytist ekki. Meiri svartsýni ríkir á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu í þessu efni og meiri svartsýni gætir í iðnaði og sjávarútvegi en í öðrum atvinnugreinum.

Hægt er að kynna sér niðurstöður Samtaka atvinnulífsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×