Viðskipti innlent

Fjöldi gjaldþrota tvöfaldast milli ára í október

Í október síðastliðnum voru 190 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 96 fyrirtæki í október í fyrra.  Fjöldinn hefur því nær tvöfaldast milli ára í október.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Fyrstu 10 mánuði ársins í ár er fjöldi gjaldþrota 1.312 sem er um 69% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 776 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Í október  voru skráð 144 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 133 einkahlutafélög í október í fyrra. Eftir atvinnugreinum voru flest einkahlutafélög skráð í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 1.365 fyrstu 10 mánuði ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×