Sameining Íslandsbanka og Byrs samþykkt 24. nóvember 2011 10:51
Alþingi hefur samþykkt sölu á hlut ríkisins í Byr hf. til Íslandsbanka og allri samningagerð er nú lokið. Með því er ljóst að Íslandsbanki og Byr munu sameinast, en áður höfðu Fjármálaeftirlit, Samkeppniseftirlitið og Eftirlitsstofnun EFTA veitt samþykki sitt fyrir kaupunum. Íslandsbanki kaupir 11,8% hlut íslenska ríkisins og 88,2% hlut skilanefndar Byrs á 6,6 milljarða króna. Í tilkynningu segir að bankarnir tveir munu nú sameinast undir merkjum Íslandsbanka og mynda öflugt fjármálafyrirtæki þar sem áhersla er lögð á framúrskarandi og persónulega þjónustu. Efnahagsreikningur sameinaðs banka verður um 814 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall bankans, miðað við samrunareikning, er vel yfir 20% en núverandi lágmarkskrafa Fjármálaeftirlitsins er nú 16%. Útibú bankans verða rekin áfram með óbreyttu sniði fyrst um sinn en gera má ráð fyrir að fyrsta sameining útibúa fari fram eftir áramót. Viðskiptavinir Byrs hf. geta áfram notað alla innlánsreikninga, greiðslukort og heimabanka eins og áður, sem og aðra þjónustu. „Ég fagna þessum tímamótum um leið og ég býð nýja viðskiptavini og starfsfólk velkomið í sameinaðan banka. Sameining Íslandsbanka og Byrs þýðir að við erum orðin eitt öflugasta fjármálafyrirtæki á Íslandi. Í krafti stærðarinnar vonast ég eftir að við getum veitt viðskiptavinum okkar enn betri fjármálaþjónustu. Sameiningin hefur auk þess í för með sér ákveðna hagræðingu sem er afar mikilvægt skref í enduruppbyggingu íslenska fjármálakerfisins. Fyrirtækin eiga sér merka sögu, sterk gildi og fyrirtækjamenning þeirra er mjög áþekk. Við munum leggja áherslu á að taka það besta úr hvorum banka og mynda eina öfluga heild,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.„Óvissutíma um framtíð Byrs er nú lokið og nú skapast því tækifæri til að horfa til framtíðar og byggja upp sterkt og traust fjármálafyrirtæki. Bankarnir falla vel hver að öðrum, bæði hvað varðar góða þjónustu og staðsetningu útibúa. Síðastliðin þrjú ár hafa verið óvissutími fyrir starfsmenn og viðskiptavini Byrs. Ég vil þakka þeim fyrir þá tryggð sem þeir hafa sýnt bankanum á þessum tíma,“ segir Jón Finnbogason, forstjóri Byrs.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira