Fleiri fréttir

Tölvur og sjónvörp hafa lækkað í verði

Á sama tíma og tóbak hefur margfaldast í verði á síðustu árum eru tölvur og sjónvörp ódýrari í dag en fyrir áratug. Vísitala neysluverðs sem mælir verðbólgu hefur hækkað um 3,3% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 1% sem jafngildir 4% verðbólgu á ári.

Starfsmannastjórar sérfræðingar í innflytjendalöggjöf

Á sumum sviðum í íslensku atvinnulífi er svo mikill skortur á starfsfólki að starfsmannastjórar eru orðnir sérfræðingar í innflytjendalöggjöf og að taka á móti fólki inn í landið. Þetta segir Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Allt að 600 tonn af kjöti til Japan

Hvalur hf. hefur flutt á milli 500 - 600 tonn af langreyðakjöti til Japan það sem af er þessu ári. Þetta fullyrðir japanska fréttastofan Kyodo News. Þar er fullyrt að árlega sé markaðssett um 4000 tonn af hrefnukjöti á ári. Langreyðakjötið frá Íslandi komi til með að hafa áhrif á verðlagið á hvalkjöti á markaðnum.

Tapið gæti orðið enn meira

Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir að sjóðirnir geti nýtt skuldajöfnun til að gera upp skuld vegna gjaldeyrisvarnarsamninga. Nettótap verði um 30 milljarðar. Hann neitar því alfarið að sjóðirnir hafi verið í braski.

Á sjöunda tug misstu vinnuna

Alls var 64 sagt upp hjá tveimur fyrirtækjum á Vestfjörðum í gær. Fiskvinnslu­fyrirtækið Eyraroddi á Flateyri sagði upp öllum 42 starfsmönnum fyrirtækisins, og 22 til viðbótar var sagt upp hjá jarðverktakafyrirtækinu Ósafli í Bolungarvík.

Meira flutt bæði inn og út

Vöruskipti voru hagstæð um 10,6 milljarða króna í september. Fluttar voru út vörur fyrir 49,7 milljarða og inn fyrir rúma 39 milljarða. Sama mánuð í fyrra voru vöruskipti hagstæð um tæpa 9,5 milljarða á sama gengi.

Freista þess að aflétta gjaldeyrishöftum

Seðlabankinn og Samtök iðnaðarins hafa sett af stað prófverkefni til að aflétta gjaldeyrishöftunum og verður milljörðum í aflandskrónum hleypt í fjárfestingu á Íslandi. Viðskiptaráðherra segir þetta skref í átt að varanlegu afnámi haftanna.

Aðstæður kalla á lækkun stýrivaxta

Efnahagsaðstæður kalla á 0,75 prósentustiga lækkun stýrivaxta, að mati Landsbankans. Peningastefnunefnd Seðlabankans tekur ákvörðun um stýrivexti næstkomandi miðvikudag.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar gagnrýnd

„RES Orkuskóli hefur ýmislegt við skýrslu Ríkisendurskoðunar um RES Orkuskólann að athuga,“ segir í Guðjón Guðjón Steindórsson, framkvæmdarstjóri skólans í tilkynningu. Hann segir starfi RES Orkuskólans stefnt í tvísýnu en óvissa ríkir um fjárhagslegan og faglegan rekstrargrundvöll skólans.

Hagar högnuðust um 470 milljónir

Hagnaður Haga á tímabilinu mars - ágúst á þessu ári nam 470 milljónum króna, samkvæmt árshlutauppgjöri sem barst fjölmiðlum nú siðdegis. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skattanam 2.416 milljónum króna. Heildareignir samstæðunnar námu 24.324 milljónum króna í lok tímabilsins og eru 10-11 verslanirnar ekki inni í þeirri tölu.

Enn fleiri uppsagnir á Vestfjörðum

Jarðverktakafyrirtækið Ósafl tilkynnti á starfsmannafundi í hádeginu í dag að öllu starfsfólki fyrirtækisins yrði sagt upp störfum frá og með 1.nóvember næst komandi. Eins og greint var frá á Vísi í dag sagði fiskvinnslan Eyraroddi líka upp 42 mönnum. Því hefur rúymlega sextíu manns á Vestfjörðum verið sagt upp störfum í dag.

Rúmlega 9 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,5% í dag í 9,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,5% í 3,4 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,6% í 5,5 ma. viðskiptum. Samtals hækkaði GAMMA: GBI um 0,3% í vikunni, GAMMAi: Verðtryggt um 0,5% en GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um -0,2%. Meðal dagsvelta í vikunni var 12,6 ma., þar af 4,7 ma. með verðtryggt og 7,9 ma. með óverðtryggt.

Öllu starfsfólki Eyrarodda sagt upp

Öllu starfsfólki fiskvinnslufyrirtækisins Eyrarodda hf., á Flateyri var sagt upp störfum í dag. Um er að ræða 42 starfsmenn. Uppsagnirnar taka gildi nú um mánaðarmótin. Ástæða uppsagnanna er fyrst og fremst viðvarandi hráefnisskortur og erfiðleikar í rekstri sem af þeim skorti leiðir, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu sem vísað er til á fréttavefnum BB.is.

GAMMA: Vaxtakostnaður dýrkeyptur fyrir ríkissjóð

„Að okkar mati leiða háir vextir Seðlabankansbankans til aukins þrýstings á krónuna þar sem útlendingar hafa haldið á bilinu 400-600 milljörðum kr. í skammtímaeignum í krónum sem hafa hlaðið upp á sig vöxtum og þar með ýtt undir vandann við að losa gjaldeyrishöftin.“

Rólegt á fasteignamarkaði í borginni

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 22. október til og með 28. október 2010 var 55. Þar af voru 42 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.392 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,3 milljónir króna.

Hlutur Íslandsbanka í Sjóklæðagerðinni til sölu

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt og opið söluferli sem lýtur að mögulegri sölu á þriðjungshlut Íslandsbanka í Sjóklæðagerðinni hf., en fyrirtækið er að meirihluta í eigu EGUS Inc. Sjóklæðagerðin framleiðir m.a. 66 North fatnaðinn.

Skuldatryggingaálag Íslands helst stöðugt

Skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands til 5 ára hefur haldist undir 300 punktum frá því um miðjan október. Í lok dags í gær stóð álagið í 280 punktum (2,80%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-fréttaveitunni.

Icesave-skuldin fer líklega ekki yfir 75 milljarða

Nýjustu upplýsingar benda til að heildarupphæð sem ríkissjóður þarf að greiða vegna Icesave-reikninga Landsbankans verði 5 prósent af landsframleiðslunni eða 75 milljarðar króna. Þetta kom fram í máli seðlabankastjóra í gær. Engir samningar hafa enn litið dagsins ljós.

Ríkið hætti stuðningi við RES Orkuskóla eða yfirtaki hann

Óvissa ríkir um fjárhagslegan og faglegan rekstrargrundvöll RES Orkuskólans. Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld eigi um tvennt að velja: Annaðhvort að hætta stuðningi við skólann eða yfirtaka starfsemina. Brýnt er að ákvörðun verði tekin sem fyrst. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunnar sem birt er á vefsíðu hennar.

Mikið magn af vopnum fannst á hafnarsvæði Mærsk í Lagos

Tollverðir í Lagos í Nígeríu hafa fundið mikið magn af vopnum á hafnarsvæði danska skipafélagsins A.P. Möller-Mærsk í borginni. Um er að ræða 13 gáma sem fullir eru af sprengjuvörpum, handsprengjum og skotfærum.

Vill leggja sæstreng fyrir 450 milljarða

Heiðar Már Guðjónsson segist hafa setið fund með Landsvirkjun þar sem hann tjáði forsvarsmönnum fyrirtækisins að hann væri í sambandi við tvo aðila sem væru áhugasamir um lagningu sæstrengs fyrir Landsvirkjun.

Afgangur af vöruskiptum eykst um 26 milljarða

Vöruskiptajöfnuður var jákvæður um 10,6 milljarða króna í september. Fluttar voru út vörur fyrir 49,7 milljarða króna en fluttar voru inn vörur fyrir tæpa 39,1 milljarð. Í september í fyrra voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 9,5 milljarða króna.

Aflaverðmætið hefur aukist um 18,8% milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 79 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 67 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 12,5 milljarða eða 18,8% á milli ára.

Bandaríkin eru á leið í fjárhagslegt járnbrautarslys

Hagfræðingurinn Nouriel Roubini segir að hagkerfi Bandaríkjanna sé á leiðinni í fjárhagslegt járnbrautarslys. Þetta kemur fram í grein sem Roubini skrifar í Financial Times í dag. Hagfræðingurinn er þekktur undir viðurnefninu dr. Doom en hann sá m.a. fyrir fjármálakreppuna árið 2007.

Windows og Office mala gull fyrir Microsoft

Hagnaður Microsoft jókst um 51% á þriðja ársfjórðungi ársins einkum vegna aukinnar sölu á Windows og Office. Þessi forrit hafa löngum malað gull fyrir tölvurisann á undanförnum árum.

Leiðtogar ESB samþykkja harðari evru-reglur

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komið sér saman um að setja harðar reglur sem miða að því að styrkja evrusvæðið og minnka líkurnar á frekari fjármálakreppum.

Ólíklegt að brotleg lönd verði svipt atkvæðisrétti

Fulltrúar Þýskalands og Frakklands reyna að fá fulltrúa annarra ríkja Evrópusambandsins (ESB) til að styðja nýjar reglur um ríkisútgjöld sem nauðsynlegar séu til að forða annarri skuldakreppu í Evrópu.

Meiri loðna margra milljarða búbót

Þjóðarbúið gæti átt von á átta milljarða króna búbót með næstu loðnuvertíð eftir að mælingar sýndu betra ástand loðnustofnsins en verið hefur undanfarin ár.

Um 7 milljarða viðskipti með Gamma

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 7,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,2% í 0,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,5% í 5,7 ma. viðskiptum.

Reiknar með stöðugri krónu fram að áramótum

Gjaldeyrishöftin og talsverður afgangur af vöruskiptum við útlönd eru meðal þeirra þátta sem valda því að greining Íslandsbanka reiknar með tiltölulega stöðugri krónu það sem eftir lifir árs.

Tækifæri fyrir Íslendinga í jarðhitageira Bandaríkjanna

Árni Magnússon, forstöðumaður Orkuteymis Íslandsbanka, segir tækifæri fyrir íslensk ráðgjafar- og verkfræðifyrirtæki í jarðhitageiranum á Bandaríkjamarkaði. Það sé vöxtur framundan í greininni vestanhafs og mikilvægt að íslenskir aðilar nýti sér það og flytji út sérfræðiþekkingu sína og ráðgjöf. Hann segir ennfremur mikilvægt að hlúa að geiranum hér á landi svo að Ísland missi ekki forystustöðu sína í greininni.

Enn er vart búið að ná botninum á íbúðamarkaði

Greining Íslandsbanka segir að samkvæmt niðurstöðum mælinga er ljóst að verulega hefur hægt á verðlækkunum á íbúðamarkaði. Hinsvegar er enn of snemmt að segja að botninum sé náð á íbúðamarkaði þar sem að miklar sveiflur eru á milli mánaða í þessum mælingum og enn ekki útséð með að verðlækkanirnar séu að baki endanlega.

Heiðar Már: Aldrei með skortstöðu og ætlar í mál

Heiðar Már Guðjónsson segist á engum tímapunkti hafa verið með skortstöðu á krónuna. Þá varaði hann við hruninu og fékk fjölmarga erlenda sérfræðinga til landsins til að veita stjórnvöldum ráðgjöf. Hann ætlar í meiðyrðamál við DV.

Rekstur Reykjanesbæjar neikvæður um 200 milljónir í ár

Endurskoðuð fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2010 var lögð fyrir bæjarráð í dag, 28. október. Samkvæmt henni er reiknað með að rekstarniðurstaða bæjarsjóðs verði neikvæð um tæpar 200 milljónir kr.

Skilanefndir reyna að kyrrsetja eignir Sunds/IceCapital

Sund, sem nú heitir IceCapital, skuldaði íslensku bönkunum um 64 milljarða króna við bankahrun. Helstu eignir félagsins voru hlutabréf í bönkunum sjálfum. Því hefur verið stefnt vegna vanefnda á lánasamningum og er grunað um að vera þátttakandi í markaðsmisnotkun föllnu bankanna.

Lilja spyr um ábyrgð á efnahafsstefnunni eftir AGS-fund

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, spyr hver beri ábyrgð á efnahagsstefnunni eftir að hún átti fund með Julie Kozack nýjum yfirmanni sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Mark Flanagan í höfuðstöðvum AGS.

Sjá næstu 50 fréttir