Viðskipti innlent

Tækifæri fyrir Íslendinga í jarðhitageira Bandaríkjanna

Árni Magnússon, forstöðumaður Orkuteymis Íslandsbanka, segir tækifæri fyrir íslensk ráðgjafar- og verkfræðifyrirtæki í jarðhitageiranum á Bandaríkjamarkaði. Það sé vöxtur framundan í greininni vestanhafs og mikilvægt að íslenskir aðilar nýti sér það og flytji út sérfræðiþekkingu sína og ráðgjöf. Hann segir ennfremur mikilvægt að hlúa að geiranum hér á landi svo að Ísland missi ekki forystustöðu sína í greininni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka en bankinn hefur gefið út fjórðu skýrsluna um jarðhitamarkaðinn í Bandaríkjunum. Í henni er einnig fjallað um jarðhitamarkaðinn í Kanada. Í skýrslunni er fjallað um áframhaldandi vöxt jarðhitamarkaðarins í Bandaríkjunum og þær áskoranir sem framundan eru á þeim markaði.

Alexander Richter, sérfræðingur í Orkuteymi Íslandsbanka, hélt fyrirlestur í vikunni fyrir hönd bankans við opnun jarðhitasýningarinnar Geothermal Energy Expo og ársfundi GRC í Sacramento í Bandaríkjunum og kynnti þar jarðhitaskýrsluna fyrir gesti sýningarinnar. Alexander, sem leiðir greiningarvinnu Orkuteymis Íslandsbanka, lagði áherslu í fyrirlestrinum á að þeir sem starfa innan jarðhitamarkaðarins ættu að undirbúa sig fyrir vöxt geirans á næstu misserum.

Í helstu niðurstöðum skýrslunnar er dregin fram sá aukni fjöldi verkefna sem er í geiranum, en í dag eru 152 jarðhitaverkefni í gangi í Bandaríkjunum, sem gefa möguleika á allt að 7.050 MW raforkuframleiðslu. Dregin er fram í skýrslunni sú aukna eftirspurn sem er fyrir borunum og fjármögnun þeirra. Fjármögnunarþörf í Bandaríkjunum einum er um 13 milljarðar dollara fyrir borun á næstu fjórum árum. Þessi mikla fjármögnunarþörf skapar miklar áskoranir fyrir geirann til að laða að nægjanlegt fjármagn, auk þess sem ljóst er að mikil þörf verður hæft starfsfólk og tækniþróun.

Einnig er í skýrslunni fjallað um löggjöf í Bandaríkjunum fyrir jarðvarmaiðnaðinn sem hefur hjálpað mikið við að auka áhuga á geiranum. Skattaívilnanir og styrkir fyrir jarðhitaverkefni auk lánstrygginga og rannsóknar og þróunarverkefna hafa haft jákvæð áhrif á iðnaðinn, en á móti er ástæða til að hafa áhyggjur af mögulegum breytingum í þeim efnum vegna nýrrar löggjafar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×