Óvíst hvort gengisfrumvarp hjálpi fólkinu á Selfossi Sigríður Mogensen skrifar 31. október 2010 11:56 Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir erfitt að átta sig á því hvort það frumvarp geti haft áhrif á mál fólksins á Selfossi, og önnur sambærileg mál.
Óvíst er hvort nýtt frumvarp efnahags - og viðskiptaráðherra um að öll gengislán verði sett í sama flokk hafi þýðingu fyrir þá sem hafa verið dæmdir til að greiða að fullu erlend lán. Sambýlisfólk á Selfossi var á föstudaginn dæmt til að greiða að fullu erlent lán sem þau tóku hjá Glitni árið 2007. Dómari við Héraðsdóm Suðurlands taldi óumdeilt að lánið hafi verið í erlendri mynt. Við aðalmeðferð málsins lýsti lögmaður stefndu því yfir að ekki væri lengur byggt á upphaflegum rökum stefndu um að lánið væri íslenskt. Þannig viðurkenndu stefndu að um væri að ræða lán í erlendri mynt, en ekki íslenskum krónum. Vörn fólksins byggði fyrst og fremst á því að forsendur lánsins væru brostnar. Greiðslur vegna lánsins hafi hækkað um hátt í 200% frá fyrsta gjalddaga til loka nóvember 2008 þegar síðasta greiðsla var innt af hendi. Lögmaður stefndu vildi að bankahruninu haustið 2008 og afleiðingum þess yrði jafnað við náttúruhamfarir og þar með séu forsendur brostnar. Dómarinn féllst ekki á þetta. Í dómnum segir að svokallað bankahrun hafi ekki orðið vegna óviðráðanlegra ytri aðstæðna heldur vegna manngerðra aðstæðna í efnahagslífi landsins. Til að mynda sé ekki hægt að líkja bankahruninu á nokkurn hátt við eldgosið á Heimaey árið 1973. Telur dómarinn þannig að bankahrunið geti ekki leyst skuldara undan skyldu sinni til að efna samninga. Fréttastofa leitaði viðbragða við dómnum hjá Íslandsbanka í gær. Þau svör fengust að bankinn myndi bíða og sjá hvort dómnum yrði áfrýjað. Íslandsbanki muni þó þrátt fyrir þessa niðurstöðu halda áfram að vinna með stjórnvöldum í að finna lausnir á skuldavanda heimilanna. Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um að niðurstaða Hæstaréttar frá því í september um ólögmæti gengistryggðra lána skuli ná yfir öll bíla og húsnæðislán með gengisviðmiði hefur ekki verið lagt fram á þingi, en það hefur verið kynnt í ríkisstjórn. Búast má við að frumvarpið verði lagt fyrir þingið á næstunni. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir erfitt að átta sig á því hvort það frumvarp geti haft áhrif á mál fólksins á Selfossi, og önnur sambærileg mál. „Ég hef ekki alveg áttað mig nógu vel á því, en ég hef hins vegar fengið samráð í ráðuneytinu um drög að þessu frumvarpi og átti ágætis viðræður við sérfræðingana þar og mér skilst að það sé ekki komið í endanlega mynd. Og þess vegna get ég ekki svarað þessu skýrt," segir Gísli
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira