Drægnitölurnar komu út í plús BL og Ragnheiður Tryggvadóttir 23. júlí 2026 08:00 Smárafbíllinn Hyundai Inster vekur athygli á götum fyrir skondið útlit. Hann státar hinsvegar af glæsilegri ferilskrá en margur keppinauturinn. Smárafbíllinn Hyundai Inster er dálítið fyndinn, kubbslegur og stuttur, eins og hann hafi keyrt út úr teiknimynd eða tölvuleik og skoppað út á götu. Pixel ljósin ýta undir tölvuleikjalúkkið og hringlaga dagljósin eru eins og galopin augu. Mér finnst hann varla vera fullorðins bíll svona appelsínugulur og stubbalegur. En, áður en við dæmum hann eftir útlitinu er rétt að líta aðeins yfir ferilskrána.
Hyundai Inster var nefnilega valinn Rafbíll ársins 2025 á World Car Awards. Þá fékk hann titilinn Supermini ársins 2026 hjá Top Gear og hlaut Gullna Stýrið 2025, ein virtustu bílaverðlaun Evrópu. Og ekki er allt upp talið enn því Inster stóð sig einna best í raundrægniprófi El Prix 2026 þar sem hann komst 373 km, 13 kílómetrum lengra en uppgefin WLTP sem er 360km. Hann virðist ekki heldur kippa sér upp við frost en við -32°C tapaði Inster einungis um 29% orku í vetrarprófi NAF en meðaltap allra bílanna var um 38% miðað við WLTP. Inster hefur hlotið frábærar viðtökur í Evrópu og var meðal annars söluhæsti smárafbíllinn í Þýskalandi í fyrra. Ég ákvað að prófa áður en ég afskrifaði hann sem „dótabíl“. Það er þó ekki annað hægt en að minnast á stærðina. Inster er 10 til 15 sentimetrum mjórri en margir aðrir smábílar eða aðeins 1.61 m breiður en svo er hann 8 til 15 sm hærri en margir bílar í hans flokki eða 1.575 m á hæð, sem gerir hann fyndinn. Hann er líka styttri en margir keppinautar hans eða 3,8 m. Þessi mál þýða þó að Inster fer létt í öll bílastæði sem er auðvitað stór plús í borginni. Skondin hönnunin hefur tilgang Hann kemur mér síðan rækilega á óvart þegar ég sest inn því hann er virkilega rúmgóður þó lítill sé. Kassalaga og há yfirbyggingin, nánast lóðréttur afturhlerinn og hjólhafið, sem er 2.580 m, gera bílinn miklu plássmeiri að innan en ég reiknaði með. Þessi kantaða teiknimyndalega hönnun hefur semsagt tilgang, að búa til pláss og það hefur tekist. Ég kom þremur farþegum léttilega fyrir í bílnum og tveir þeirra eru meira að segja yfir 1.80 sm á hæð. Bíllinn er líka með topplúgu sem gerir innra rýmið bjart og opið. Farangursrýmið er kannski frekar nett ef ferðatöskurnar eru fleiri en ein en hægt er að leggja aftursætin alveg flöt fram. Ef við leggjum líka niður framsætin gæti fullorðinn einstaklingur sofið í bílnum. Og fyrst við erum farin að tala um að sofa í bílnum í sumarfríinu þá er hægt að nota hann eins og hleðslubanka, það fylgir honum millistykki til að knýja allskonar rafmagnstæki, til dæmis kaffivél! Inster kemur með 42 eða 49 kwh rafhlöðu og er 30 mínútur að hlaða frá 10 upp í 80% á hraðhleðslustöð. Lipur að leggja í þröng stæði Svona lítill bíll er hentugur í innanbæjarakstri og Insterinn er engin undantekning. Það er lítið mál að smeygja honum í þröng stæðin við Kringluna og niðri í bæ er hann eins og heima hjá sér. Hann er ágætlega lipur í akstri og ég gat auðveldlega tekið U-beygjur ef ég skipti skyndilegum skoðun. Ég ákvað að hendast út fyrir borgarmörkin og reyna hann á þjóðveginum. Caligraphy útgáfan sem ég ók er 115 hestöfl, með 147 Nm tog. Á blaði virkar Inster ekkert svakalega snöggur eða 10,6 sekúndur frá 0 og upp í 100 og hæst kemst hann í 150 km hraða. Þetta skipti mig engu máli í innanbæjarakstrinum, á þjóðveginum var ég mögulega ekki að fara að vinna neinn kappakstur. Enda erum við að tala um 90 km hámarkshraða og hver þarf að flýta sér á sunnudegi. Á þjóðveginum fannst mér ég verða dálítið vör við vegahljóð en hækkaði þá bara í útvarpinu. Sport stillingin uppáhalds Hann er búinn akstursstillingum, Normal, Sport, Eco og Snow, auk þess sem hægt er að stilla viðnámið eða endurgjöfina. Ég fann mína uppáhalds stillingar, Sport-mode og viðnámið alveg niður í E-pedal. Þannig fannst mér krafturinn og viðbragðið eins og ég vildi hafa það. Snow stillingin hljómar líka vel í eyrum þeirra sem búa á Íslandi en með Snow stillinguna leyfir bíllinn ekki fullt tog strax svo minni líkur eru á að dekkin fari að spóla. Hann er búinn ýmsum akstursaðstoðar- og öryggiskerfum að staðalbúnaði. Meðal annars akgreinastýringu og línuviðvörun, blindsvæðisvörn, fjarlægðarskynjurum að aftan og árekstrarvörn. Calligraphy útfærslan sem ég ók er auk þess með fjarlægðarskynjurum að framan, 360° myndavél og blindsvæðismyndavélum. Einfalt innra rými Innréttingin er mjög aðgengileg og gott að sjá að flestar skipanir er hægt að framkvæma með alvöru tökkum. Það finnst mér plús. Það var líka gaman að sjá „gamaldags“ mæla í skjánum sem breytast síðan í „hliðarspegla“ þegar stefnuljósið smellur á. Ekki verið að ýkja drægnitölurnar Ég verð að hrósa drægnitölunum. Rigning og rennblautar götur virtust ekkert hafa að segja fyrir Inster. Ég lagði af stað með 328 km inni, ók 180 km, oftast í Normal Mode en stundum í Sport, aldrei í Eco. Ég fór fram og aftur yfir Hellisheiðina og eftir rennblautum götum Reykjavíkur í rigningu en þegar ég skilaði bílnum stóð mælirinn í 153 km. Og athugið að (328 – 180 = 148) Ég kom út í plús! Gæti róað taugar foreldra ungra ökumanna Inster er frábær fyrsti bíll fyrir nýbakað bílpróf. Svo nettur í stæði og með 360 gráðu myndavél, einfaldur í notkun, allir takkar á sínum stað, ekki of hraðskreiður sem er gott fyrir taugatrekkta foreldra bílprófsunglinga. Hann er líka prýðilegur aukabíll til að snúast á innanbæjar og í skreppitúra út fyrir bæjarmörkin Og gerir útlitið Insterinn ekki bara eftirminnilegan, þegar margir þessara nýju bíla eru svo straumlínulagaðir að þeir þekkjast varla í sundur? Insterinn hverfur allavega ekki í fjöldann. Svo er hann á þægilegu verði eða frá 3.990.000 kr til 5.290.000 kr með bílastyrknum frá Orkuksjóði.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent