Hlutur Íslandsbanka í Sjóklæðagerðinni til sölu 29. október 2010 12:00
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt og opið söluferli sem lýtur að mögulegri sölu á þriðjungshlut Íslandsbanka í Sjóklæðagerðinni hf., en fyrirtækið er að meirihluta í eigu EGUS Inc. Sjóklæðagerðin framleiðir m.a. 66 North fatnaðinn. Í tilkyningu segir að söluferlið hefjist formlega mánudaginn 1. nóvember kl. 12.00 með birtingu upplýsinga á vef Íslandsbanka á slóðinni www.islandsbanki.is/66north. Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem teljast fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti eða búa yfir fullnægjandi þekkingu og reynslu, og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 300 milljónir króna. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu vegna samkeppnissjónarmiða eða í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir kaupi verulegan eignarhlut í félaginu. Áhugasömum fjárfestum er bent á að fylla út trúnaðaryfirlýsingu sem hægt er að nálgast á heimasíðu Íslandsbanka (www.islandsbanki.is/66north2010) og skila henni til Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka. Sölugögn verða afhent á tímabilinu 3.-12. nóvember með rafrænum hætti á netfang sem fjárfestar tilgreina í trúnaðaryfirlýsingu. Síðasti frestur til að skila inn trúnaðaryfirlýsingu vegna þátttöku í söluferlinu er föstudagurinn 12. nóvember kl. 14.00. Óskuldbindandi tilboðum skal skilað til Íslandsbanka, Kirkjusandi, 155 Reykjavík, mánudaginn 15. nóvember 2010, fyrir kl. 14:00, í lokuðu umslagi merkt „Fyrirtækjaráðgjöf/66north2010". Þeim fjárfestum sem leggja fram hæstu tilboðin verður boðið til áframhaldandi þátttöku í söluferlinu.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira