GAMMA: Vaxtakostnaður dýrkeyptur fyrir ríkissjóð 29. október 2010 13:08 Vaxtaákvarðanir eru í höndum Peningastefnunefndar Seðlabankans. „
Að okkar mati leiða háir vextir Seðlabankansbankans til aukins þrýstings á krónuna þar sem útlendingar hafa haldið á bilinu 400-600 milljörðum kr. í skammtímaeignum í krónum sem hafa hlaðið upp á sig vöxtum og þar með ýtt undir vandann við að losa gjaldeyrishöftin." Þetta kemur fram í nýju áliti frá fjármálafyrirtækinu GAMMA en þar segir að það fari lítið fyrir umræðu um það hvort háir vextir seðlabankans séu ástæða styrkingar krónunnar á árinu. Það mátti vera ljóst um leið og hagkefið hrundi að hér þyrftu raunvextir að vera lágir, mjög lágir, en niðurstaðan er hins vegar þveröfug. Afleiðingarnar hafa verið miklar og dýrkeyptar og má þá einkum nefna: „ Eignir útlendinga hafa hlaðið á sig tugum milljarða af vöxtum í boði ríkis og seðlabankans, og þá skattgreiðenda á endanum, algerlega að óþörfu. Ríkissjóður hefur gefið út um 740 milljarða kr. af skuldabréfum í krónum eftir hrun, innlendar skuldir ríkissjóðs fóru úr 180 milljarða kr. í 920 milljarða kr. Þótt erfiðara sé að mæla raunkostnað ríkis við að fjármagna löng bréf á of háum vöxtum en styttri, ætti umfram kostnaður ríkisins vegna vaxtastigs Seðlabankans eftir hrun að hlaupa á bilinu 70-80 milljarða kr. samkvæmt okkar útreikningum, miðað við að raunvextir bankans hefðu verið núll. Auk þess er ríkissjóður að fjármagna í dag um 390 milljarða kr. í víxlum og ríkisbréfum með líftíma styttri en hálft ár. Hvert prósent í lægri vöxtum Seðlabankans minnkar því halla ríkissjóðs beint um 4 milljarða kr. á ári horft fram á veginn, svo ekki sé talað um jákvæð veltuáhrif á hagkerfið," segir í áliti GAMMA. „Seðlabankinn er í dag rekinn með miklum undirliggjandi halla í krónum. Seðlabankinn greiðir innlánsvexti og innistæðubréfavexti á um 140 milljarða kr. eign fjármálafyrirtækja, auk þess að greiða ríkissjóði vexti á um 160 milljarða kr. eign hans í Seðlabankanum. Á móti eru eignir Seðlabankans í krónum sem eru fyrst og fremst skuldabréf útgefið af ríkissjóði að upphæð 160 milljarða kr. á 2,5% verðtryggðum vöxtum og aðrar kröfur sem bankinn tók yfir og er eftir atvikum að fá vexti á, verðtryggða og óverðtryggða. Á seinasta ári leit þetta vel út þegar verðbólga var 7,5% en í ár stefnir í að verðbólga verði um 2% og því tap af rekstri Seðlabankans." Þá segir að ástæðan sé að Seðlabankinn lánar út veðlán á talsvert hærri vöxtum en en hann greiðir í formi innlánsvaxta. Eftir hrun hafa umsvif veðlána dregist mikið saman og því hefur Seðlabankinn einfaldlega ekki efni á að greiða þessa háu vexti þegar verðbólga hefur hjaðnað. Ef undirliggjandi taprekstur Seðlabankans verður langvinnur gæti afleiðingin verið sú að traust á bankanum þverri. „Aðrar afleiðingar munu verða skýrari á næstu misserum þegar erlend lán verða í auknum mæli færð yfir í íslenskar krónur, beintengdar við vexti Seðlabankans. Greiðslubyrði heimila og fyrirtækja með slík lán mun að óþörfu verða hærri en nauðsyn ber til og leiða til enn frekari samdráttar og uppsagna. Mesta lækkun væntingavísitölunnar frá hruni í s.l. mánuði slær vonandi á væntingar Seðlabankans um að jafnvægi sé að nást og að marktækur hagvöxtur sé að hefjast, því myndin sem gæti blasað við eftir áramót gæti sagt talsvert aðra sögu," segir í álitinu.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira