Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gjaldskrárhækkun skilar 4 milljörðum Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag fjölþættar ráðstafanir sem ætlað er að styrkja rekstur fyrirtækisins. Í Fjárhagsáætlun fyrir árin 2012 til 216 segir að gera eigi fyrirtækinu mögulegt að standa við skuldbendingar gagnvart lánadrottnum og tryggja jafnframt áframhaldandi trausta og góða þjónustu við viðskipta vini. 27.10.2010 17:25
Minnsta atvinnuleysi í Þýskalandi í 19 ár Atvinnuleysi hefur ekki verið minna í Þýskaland síðan árið 1991. Tölurnar um atvinnuleysi í Þýskalandi verða gerðar opinberar á morgun. Ursula von der Leyen atvinnumálaráðherra landsins er hinsvegar svo ánægð með stöðuna að hún greindi frá tölunum á blaðamannafundi í dag. 27.10.2010 15:33
SA vill að breyting á tekjuskattslögum falli niður Samtök atvinnulífsins(SA) vilja að breyting á tekjuskattslögum sem gerðar voru í árslok í fyrra verði felldar niður. SA segir að breyting hafi óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs en mun án efa draga úr vilja erlendra aðila til þess að koma með fjármagn til Íslands. 27.10.2010 13:59
Síminn segir upp 29 starfsmönnum Alls hefur 29 starfsmönnum Símans verið sagt upp. Forsvarsmenn Símans kynntu fyrr í dag nýtt skipulag fyrirtækisins á fundi með starfsfólki. Deildir eru sameinaðar og stjórnendum og starfsfólki fækkar en áhersla er lögð á að þjónusta við viðskiptavini skerðist ekki við þessar breytingar. 27.10.2010 12:54
GlaxoSmithKline fær risasekt vegna sölu gallaðra lyfja Breski lyfjarisinn GlaxoSmithKline hefur fengið á sig samtals 750 milljón dollara, eða 84 milljarða kr. sekt og skaðabætur í Bandaríkjunum vegna sölu á m.a. menguðu barnakremi og óvirku þunglyndislyfi. Salan á þessum lyfjum stóð árum saman þótt yfirstjórn GlaxoSmithKline væri kunnugt um vandamálin tengd þeim. 27.10.2010 12:50
Ekkert formlegt tilboð komið í Iceland, margir áhugasamir Erlendur fjárfestingarsjóður sem lýst hafði yfir áhuga á að greiða jafnvirði 249 milljarða króna fyrir Iceland Foods verslanakeðjuna, hefur ekki gert formlegt tilboð ennþá. Það hefði þýtt tæplega 167 milljarða króna fyrir hlut skilanefndar Landsbankans í fyrirtækinu. 27.10.2010 12:16
Segir verðbólguhorfur að mestu óbreyttar Greining Íslandsbanka segir að verðbólgumæling Hagstofunnar í morgun breyti ekki í stórum dráttum sýn greiningarinnar á verðbólguþróun næstu mánuðina. Nokkur hækkun mun verða á vísitölunni fram til áramóta vegna frekari áhrifa af hækkun veitufyrirtækja og verðhækkunum á landbúnaðarhrávörum erlendis. 27.10.2010 12:12
Fjörkippur í sölu atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu Í september 2010 var 47 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 50 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 1.955 milljónir króna en 566 milljónir króna utan þess. Um er að ræða um 50% aukningu frá fyrri mánuði hvað fjölda skjala varðar á höfuðborgarsvæðinu en um 30% hvað fasteignmat varðar. 27.10.2010 11:25
Samið um fjármálin við gerð myndarinnar Hobbitinn Stjórnvöld á Nýja Sjálandi og Warner Bros. hafa náð samkomulagi um fjármálin við gerð myndarinnar Hobbitinn eftir sögu J. R. R. Tolkien. Þar með er tryggt að myndin verður tekin upp á Nýja Sjálandi og endi er bundinn á tveggja mánaða óvissu í málinu. 27.10.2010 11:02
Kínverjar í viðræðum um kaup á Elkem Ríkisrekna kínverska efnagerðin China National BlueStar á nú í viðræðum við Orkla í Noregi um möguleg kaup á Elkem sem m.a. rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Blackstone Group mun styðja við bakið á Kínverjunum. 27.10.2010 10:11
Ársverðbólgan minnkar í 3,3% Ársverðbólgan mælist 3,3% í október og lækkar um 0,4 prósentustig milli mánaða. Verðbólgan mældist 3,7% í september. Lækkunin nú er nokkuð minni en sérfræðingar höfðu spáð fyrir um. 27.10.2010 09:03
Innflutningur á nautakjöti eykst töluvert milli ára Samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum Sláturleyfishafa hefur innflutningur á nautakjöti til og með ágúst á þessu ári numið 95 tonnum, en á sama tíma árið 2009 var innflutningur nautakjöts kominn í 74 tonn. Er þetta aukning um 27% á milli ára. 27.10.2010 08:44
Múrbúðin eykur umsvif sín Múrbúðin hefur að undanförnu stóraukið þjónustu sína við byggingamarkaðinn. Deild fyrir grófvörur hefur verið opnuð í Kópavogi og jafnframt hefur Múrbúðin tekið til starfa í Vestmannaeyjum. 27.10.2010 08:41
Móðurfélag Norðuráls tapaði 1,9 milljarði á þriðja ársfjórðungi Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls, skilaði tapi upp á 16,8 milljónir dollara eða um 1,9 milljörðum kr. á þriðja ársfjórðungi ársins. Til samanburðar varð rúmlega 40 milljóna dollara hagnaður af starfsemi félagsins á sama tímabili í fyrra. 27.10.2010 08:27
Nordea hagnast vel á Pandóru Nordea bankinn skilaði ágætu uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung ársins. Nordea hagnaðist vel á markaðsskráningu skartgripaframleiðandans Pandóru en 30% af tekjum bankans í Danmörku stafa af hagnaðinum frá Pandóru. 27.10.2010 08:08
Lífeyrissjóðir töpuðu 70 milljörðum króna á gjaldeyrisvörnum Rúmlega 70 milljarða króna tap lífeyrissjóða landsins vegna gjaldeyrisvarna miðast við að sáttatilboð Landssamtaka lífeyrissjóða verði samþykkt af skilanefndum bankanna. Tapið gæti því orðið mun meira. 26.10.2010 18:30
Pálmi Haralds: Markmið Svavars virðist að sverta æru mína Pálmi Haraldsson segir í yfirlýsingu að hann sé stoltur af aðkomu sinni að kaupum bresku verslunarkeðjunnar Iceland 2005. Hann segir framsetningu Svavars Halldórssonar fréttamanns RÚV í frétt sinni í gær virðast ekki hafa annað að markmiði en að sverta æru sína. 26.10.2010 17:41
Lyfjakostnaður ríkisins lækkaði um hátt í þrjá milljarða Breytingar sem gerðar hafa verið á greiðsluþátttöku ríkisins í lyfjakostnaði og fleiri aðgerðir hafa sparað þjóðarbúinu hátt á þriðja milljarð króna á ársgrundvelli. 26.10.2010 15:13
Þrotabú Baugs vill rifta 100 milljón króna gjörningi Héraðsdómur Reykjavíkur þingfesti í dag riftunarmáli þrotabús Baugs gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) þar sem krafist er riftunar á hundrað milljón króna greiðslu til dótturfélags SPRON. 26.10.2010 14:42
Icelandic Group hefur vottunarferli í þorsk- og ýsuveiðum Icelandic Group hefur hafið vottunarferli í öllum þorsk- og ýsuveiðum við Ísland samkvæmt vottunarstaðli Marine Stewardship Council (MSC). Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að MSC - staðallinn sé sá víðtækasti og virtasti í heiminum yfir sjálfbærar fiskveiðar sem byggja á vísindalegri ráðgjöf. 26.10.2010 17:27
Ríkisendurskoðun gagnrýnir verklag Alþingis Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér sjálfstæða ábendingu þar sem skrifstofa Alþingis er hvött til að endurskoða verklag sitt við verðfyrirspurnir og útboð. 26.10.2010 14:32
Auðvelt að hakka Facebooksíður með nýju forriti Með nýju forriti er mjög auðvelt að hakka sig inn á Facebooksíður, Twitter eða Google. Þetta kemur fram í Ekstra Bladet. Um er að ræða forritið Firesheep en hægt er að keyra það á Firefox. 26.10.2010 14:18
Gullspákaupmenn hegða sér eins og merðir á spítti Gulleignir fjárfesta og spákaupmanna eru orðnar á stærð við gullforða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Peter Warren forstjóri fjárfestingarsjóðsins Warren Capital segir að þetta sé staða sem geti skapað mikinn óróleika á markaðinum þar sem margir af spákaupmönnunum hegði sér eins og merðir á spítti. 26.10.2010 13:37
Íslenskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni í rúmt ár Íslenskir neytendur hafa nú ekki verið svartsýnni í rúmt ár samkvæmt Væntingavísitölu Gallup í október sem birt var nú í morgun. Þannig hrapaði vísitalan um heil 35,7 stig milli mánaða og mælist nú 32 stig. Aðeins einu sinni áður hefur vísitalan lækkað svona mikið milli mánáða en það var í bankahruninu í nóvember árið 2008. 26.10.2010 12:28
Efast um að gengisvarnir hafi verið eðlileg fjármálastjórnun Hagfræðingur sem starfaði fyrir rannsóknarnefnd Alþingis dregur í efa að gengisvarnir lífeyrissjóðanna fyrir hrun hafi verið eðlileg fjármálastjórnun. 26.10.2010 12:07
IFS greining spáir góðu uppgjöri hjá Marel IFS greining spáir góðum þriðja fjórðungi hjá Marel en uppgjörið verður birt á morgun, miðvikudag. Samkvæmt spánni verður salan á fjórðungnum um 18% meiri en á sama fjórðungi í fyrra. 26.10.2010 12:00
Pólitískur skotgrafarhernaður á Alþingi til umræðu hjá VÍ „Í stað heildarsamstarfs um lausnir á erfiðri stöðu heimila og atvinnulífs hefur pólitískur skotgrafarhernaður því miður í of mörgum tilvikum orðið ofan á. Þá skortir ríkisstjórninni forystu og getu til að koma brýnum verkefnum í framkvæmd hjálparlaust.“ 26.10.2010 11:53
Rúmlega 7% heimila í vanskilum með húsnæðislán 2009 Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar 2009 höfðu 7,1% heimila lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu á undanförnum 12 mánuðum og 10,3% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili. 26.10.2010 11:14
Látnar stjörnur moka inn seðlum Sænski rithöfundurinn Stieg Larsson er nýtt nafn á topp tíu lista Forbes í ár yfir þær látnu stjörnur sem haldið hafa áfram að moka inn hvað mestum seðlum eftir andlát sitt. Michael Jackson heldur toppsætinu á þessum lista eins og raunar flestir áttu von á. 26.10.2010 11:05
SA: Fyrirtækjum gert auðveldara að afla verkefna erlendis Samtök atvinnulífsins (SA) vilja að fyrirtækjum í verktakagreininni og starfsmönnum þeirra verði gert auðveldara að afla sér verkefna erlendis. Þetta sé nauðsynlegt til að koma í veg fyrir verkefnaskort og atvinnuleysi meðal verktaka og að greinin leggist ekki af í bókstaflegri merkingu. 26.10.2010 10:31
IBM kynnir öflugasta örgjörvan á ráðstefnu Nýherja IBM mun kynna heimsins öflugasta örgjörva fyrir zEnterprise, nýja gerð af IBM stórtölvum, á ráðstefnu Nýherja á morgun. 26.10.2010 10:15
Íslendingar í viðræðum við Rússa um stórt orkuver Íslendingar og Rússar eiga nú í viðræðum um jarðvarmaorkuver á Kamstjaka í austasta hluta Rússlands. Þetta kom fram í máli Sergei Shmatko orkumálaráðherra Rússlands á ríkisstjórnarfundi þar í landi í gærdag. 26.10.2010 10:02
Samkeppniseftirlitið í Sviss rannsakar BMW Samkeppniseftirlitið í Sviss hefur hafið rannsókn á bílaframleiðandanum BMW. Eftirlitið telur að BMW hafi komið í veg fyrir sölu á BMW bifreiðum til svissneskra ríkisborgara sem búsettir eru á EES svæðinu þar með talið Íslandi. 26.10.2010 09:27
Starfandi fólki fækkaði um 1.300 á þriðja ársfjórðungi Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2010 var 170.200 manns og fækkaði um 1.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 181.900 manns sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 84,1% og kvenna 78,6%. 26.10.2010 09:05
Atvinnuleysið var 6,4% á þriðja ársfjórðungi Á þriðja ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 11.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6,4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 6,1% hjá körlum og 6,8% hjá konum. Frá þriðja ársfjórðungi 2009 til þriðja ársfjórðungs 2010 fjölgaði atvinnulausum um 800 manns. 26.10.2010 09:03
Þúsundir milljarða á dauðum reikningum í Danmörku Danskar lífeyriskrónur gufa upp á reikningum sem hvorki er borgað inn á eða út af. Reiknað er með að um 500 milljarðar danskra kr. eða um 10.000 milljarðar kr. liggi inni á þessum „dauðu“ lífeyrissjóðsreikningum eins og það er orðað í dönskum fjölmiðlum í morgun. 26.10.2010 08:14
Uppgjör Össurar veldur smávægilegum vonbrigðum Viðskiptablaðið Börsen segir að uppgjör Össurar hf. fyrir þriðja ársfjórðung hafi valdið smávægilegum vonbrigðum, eða "skuffer en smule" eins og það er orðað í blaðinu. 26.10.2010 07:58
Eignir innlánsstofnana lækkuðu um 60 milljarða Heildareignir innlánsstofnana námu 2.861 milljörðum kr. í lok september 2010 og lækkuðu um 59,8 milljarða kr. frá fyrri mánuði. Innlendar eignir lækkuðu um 76,8 milljarða kr en erlendar eignir hækkuðu um 17 milljarða kr. 26.10.2010 07:45
Jón Ásgeir hafnar frétt RÚV Fréttastofu barst rétt í þessu athugasemd frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni þar sem hann hafnar framsetningu Svavars Halldórssonar fréttamanns í frétt um bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods fyrr í kvöld. 25.10.2010 21:47
Hagnaður Össurar hf. 444 milljónir á þriðja ársfjórðungi Össur hf. hagnaðist um 444 milljónir kr. á þriðja ársfjórðungi ársins. Þetta er 111 milljón kr. minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Stjórn Össurar er samt ánægð með árangurinn. 25.10.2010 19:24
Hrintu ekki áætlun Heiðars Más í framkvæmd Félög Björgólfs Thors Björgólfssonar fóru ekki nema að litlu leyti að ráðum Heiðars Más Guðjónssonar um að byggja upp skortstöður á gjaldeyris- og hlutabréfamarkaði árið 2006. Þetta fullyrðir talsmaður Novators. 25.10.2010 18:32
Seðlabankinn líklega sáttur við núverandi stöðu krónunnar Líklegt er að seðlabankinn sé nokkuð sáttur við núverandi stöðu krónunnar, að hún sveiflist á þröngu bili á gildum sem tryggja góðan afgang af viðskiptum með vörur og þjónustu við útlönd. 25.10.2010 15:38
Spáði að bankahrun yrði 2007 Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri Novators spáði fyrir um það árið 2006 að bankarnir gætu ekki fjármagnað sig árið 2007. 25.10.2010 15:11
Heiðar Már: Viðskiptavinirnir grunlausir um áhættu Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri Novators, segir í minnisblaði sem hann kynnti fyrir bankaráði Landsbankans og Björgólfi Thor Björgólfssyni í ársbyrjun 2006 að viðskiptavinir bankanna séu almennt grunlausir og hafi lítið hugsað út í áhættuna sem fylgi því að krónan veikist. 25.10.2010 13:52
Kína í stríði við Evrópu og Japan um sjaldgæfa málma Evrópubandalagið og Japan íhuga nú að kæra Kínverja til WTO vegna útflutningstakmarkana Kínverja á sjaldgæfum málmum. Þegar er farið að bera á skorti á þessum málmum á mörkuðum í Evrópu. 25.10.2010 13:24