Tæplega 40 félög vilja gera upp í erlendum gjaldmiðli 15. janúar 2009 13:07
Samkvæmt upplýsingum frá ársreikningaskrá hafa 39 félög nýtt sér ákvæði laga um að fá að gera upp í erlendum gjaldmiðli. Hafa þau sótt um heimild ársreikningaskrár til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli vegna reikningsársins 2008. Í yfirgnæfandi tilvika er hinn erlendi gjaldmiðill sem sótt er um evra. Á vegum ársreikningaskrár er nú unnið að því að yfirfara og afgreiða umræddar umsóknir. Fjallað er um málið í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar segir að með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 18. desember sl. var opnað fyrir það að félög gætu, fyrir 30. desember 2008, sótt um heimild ársreikningaskrár til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli, annars vegar vegna reikningsárs sem hófst 1. janúar 2008 eða síðar á því ári og hins vegar vegna reikningsársins sem hófst 1. janúar 2009. Þessi tímabundna og afturvirka breyting var gerð í ljósi þess ástands sem ríkir í efnahagslífi landsins og þeirra breytinga sem áttu sér stað á gengi íslensku krónunnar á árinu 2008 en talið var að sú þróun kynni í sumum tilfellum að vekja upp spurningar um hvaða starfrækslugjaldmiðill, í skilningi laga um ársreikninga, gefi í raun rétta mynd af afkomu og efnahag félaga á reikningsárinu 2008. Var breytingin hluti af aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar til að bregðast við vanda fyrirtækja í landinu. Viðkomandi fyrirtæki þurfa eftir sem áður að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í lögum um ársreikninga fyrir veitingu heimildar ársreikningaskrár.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Elskar kaffi að ítölskum sið og línulega dagskrá Atvinnulíf Nýttu símenntun til að styrkja stöðu þína Samstarf Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Íslenska þjóðin getur ekki átt fiskveiðiheimildir að mati Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka: Enn margt ógert í endurreisn landsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka: Enn margt ógert í endurreisn landsins Viðskipti innlent
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka: Enn margt ógert í endurreisn landsins Viðskipti innlent