Commerzbank eignast hluta af hjarta Reykjavíkur 14. janúar 2009 18:35 Vinningstillaga Listaháskólans.
Þýski bankinn Commerzbank mun eignast hluta af hjarta miðborgarinnar. Bankinn tekur hann upp í kröfur sem hann á hendur Samson eignarhaldsfélagi. Samson seldi Samson Properties ehf á fyrstu mánuðum ársins 2008. Söluverðið nam rúmum 11 og hálfum milljarði og fékk Samson meðal annars greitt í hlutabréfum í Novator Properties. Novator Properties er í 70% eigu Samson, sem er í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Restin er í eigu innlendra og erlendra fjárfesta. Um 80% eigna Novator Properties eru utan Íslands, t.a.m. í Danmörku, Finnlandi, Búlgaríu og Króatíu. Samson Properties varð við söluna dótturfélag Novators og sá alfarið um rekstur verkefna félagsins á Íslandi. Um er að ræða 2 stór verkefni, annars vegar uppbygging Listaháskóla Íslands í miðborginni og þróun verslunar- og þjónustukjarna á efri hluta Laugavegar, hinum svo kallaða Barónsreit. Barónsreitur telur húseignir við Laugaveg, Frakkastíg, Hverfisgötu og Skúlagötu. Commerzbank á rúmlega 23 milljarða kröfu á Samson eignarhaldsfélag og fór bankinn fram á synjun á áframhaldandi greiðslustöðvun Samson. Frestur til að lýsa kröfu í þrotabúið er til 20. Janúar 2009 og verður skiptafundur haldinn mánuði síðar. Við það mun Commerzbank ásamt öðrum kröfuhöfum eignast hlut Samsonar í Novator Properties, alls 69%. Commerzbank er þar stærsti kröfuhafinn. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga staðfesti þetta í samtali við fréttastofu. Sveinn Björnsson, forstjóri Novator Properties, sagði einnig í samtali við fréttastofu að bréf Commerzbank eru svokölluð B-bréf sem þýðir að bankinn munu ekki hafa áhrif rekstur félagsins.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira