Viðskipti innlent

Stjórn Glitnis mun auglýsa stöðu bankastjóra

Valur Valsson formaður stjórnar Glitnis segir að stjórnin muni á næstunni ræða um hvenær og með havða hætti staða bankastjóra bankans verði auglýst. Valur ræddi málið við fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra í dag.

Eftir fundinn sendi Valur Valsson frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

,,Ég átti í dag fund með fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra að þeirra ósk. Þar skýrðu þeir frá því að það væri vilji ríkisstjórnarinnar, og þar með eina hluthafans í bankanum, að staða bankastjóra yrði auglýst. Jafnframt kom fram að það væri á verksviði stjórnar bankans að ákveða hvenær og hvernig staðan verði auglýst. Stjórnin mun fjalla um þetta mál á næstu dögum og ræða við bankastjórann og taka ákvörðun um hvenær og með hvaða hætti staðan verður auglýst."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×