Segist ekki hafa komið að málum tengdum Baugi 14. janúar 2009 14:30 Tryggvi Jónsson
Tryggvi Jónsson fyrrum forstjóri Baugs og starfsmaður Landsbankans segist í yfirlýsingu sem hann sendir fjölmiðlum ekki hafa komið nálægt málum hjá bankanum sem tengjast Baugi. Yfirlýsinguna sendir hann í kjölfar frétta um störf Tryggva hjá Landsbankanum sem tengist sölu eigna Árdegis til Senu annarsvegar og þrotabús Árdegis til Haga hins vegar. Hann vill koma eftirfarandi á framfæri: • Ég kom að málum Árdegis að beiðni Fyrirtækjasviðs Landsbankans. Á þeim tíma lá ekkert fyrir um að eignir félagsins yrðu seldar. • Í lok október sl. var fyrirsjáanlegt að ekki yrði hægt að forða Árdegi frá gjaldþroti. Árdegi átti á þessum tíma fundi með Fyrirtækjasviði og var ég beðinn um að koma þar að. Á fundinum lýsti forstjóri Árdegis yfir áhyggjum af því að geta ekki greitt starfsmönnum sínum laun vegna októbermánaðar. Sala á einingum frá félaginu til að eiga fyrir launum var rædd. • Forstjóri Árdegis sagði aðspurður að Sena væri líklegasti kaupandinn að Skífunni og Hagar eða Max Raftæki kaupendur að BT tölvum. Ég spurði hann hvort hann vildi að ég hringdi í stjórnendur þessara fyrirtækja til að koma á sambandi og vildi hann það. • Ég sat einn fund ásamt viðskiptastjóra og lögfræðingi bankans þar sem forsvarsmenn Senu og Skífunnar ræddu m.a. mögulegt söluverð. Ég kom ekki að því að semja um söluverð eða fjármögnun á kaupum Senu á Skífunni. • Árdegi var í viðræðum við fleiri aðila um hugsanleg kaup á Skífunni. Árdegi hafði því fleiri valkosti en Senu sem kaupanda. Af hverju samningur varð á milli Senu og Skífunnar geta samningsaðilar einir upplýst. Það þekki ég ekki. • Ég sat einn fund ásamt viðskiptastjóra og lögfræðingi bankans þar sem hugsanleg sala milli Árdegis og Haga á BT var rædd. Eins og kunnugt er varð ekki af þeim viðskiptum, heldur keyptu Hagar BT af bústjóra nokkrum vikum síðar. • Ég hafði ekki frekari afskipti af málefnum Árdegis. Ég ræddi ekki við bústjóra, né aðra aðila, og þekki ekki þau samskipti sem þar áttu sér stað. • Í viðtali sem birtist við mig á mbl.is 16. desember sl. sagðist ég ekki koma nálægt málum sem tengdust Baugi. Við það stend ég. Í þeim tilvikum sem hér um ræðir var ég að vinna að málefnum Árdegis. Fyrir utan að koma á fundum að beiðni Árdegismanna, sbr. lýsingar hér að framan, hafði ég ekki frekari afskipti af þeim viðskiptum. Það, að ég hafi hér verið að sinna Baugstengdum verkefnum, er útúrsnúningur. Það er augljóst að það hentar einhverjum að gera störf mín fyrir Landsbankann ótrúverðug. Við því er ekkert að segja annað en það að ég vann fyrir Landsbankann alla tíð af fullum heilindum og gætti ekki neinna annarra hagsmuna. Eftir á að hyggja kann að vera að ég hefði ekki átt að koma á sambandi milli semjenda, eða neita að mæta á þá fundi sem ég var beðinn um. Ísland er hins vegar lítið land og margir þekkja marga. Vera kann einnig að áhugi Árdegismanna á að selja svokölluðum Baugsfyrirtækjum rekstur sinn hafi líka átt rætur að rekja til þess að bróðir eiganda Árdegis vann hjá Baugi í allmörg ár eða til tengsla stjórnarmanns Árdegis við Baug. Fyrir einstaklinga er erfitt að verjast snjöllum meisturum samsæriskenninga, ekki síst þegar fjölmiðlar láta glepjast og smitast af því andrúmslofti sem einkennir umræðu um íslenskt viðskiptalíf. Það er líkt og reglan sé orðin sú að hafa skal það sem betur hljómar, en það sem satt reynist. Og þegar sönnunarbyrði er snúið við, þar sem sakleysi skal sannað, falla flestar varnir þeirra sem ekkert hafa til sakar unnið. Í störfum mínum fyrir Landsbankann hafði ég aðeins eitt markmið: Að gæta hagsmuna bankans af trúmennsku og festu. Með engum hætti hef ég gengið erinda annarra.
Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Íslenska þjóðin getur ekki átt fiskveiðiheimildir að mati Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Elskar kaffi að ítölskum sið og línulega dagskrá Atvinnulíf Nýttu símenntun til að styrkja stöðu þína Samstarf Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Sjá meira