Eigið fé Eimskipafélagsins neikvætt um 25,5 milljarða 14. janúar 2009 18:46
Eimskipafélag Íslands hefur sent frá frá sér afkomuviðvörun en eigið fé félagsins verður neikvætt vegna aukinna afskrifta um 150 milljónir evra eða 25,5 milljarða króna. Í desember sendi Eimskipafélag Íslands frá sér afkomuviðvörun vegna fyrirséðrar gjaldfærslu á fjórða ársfjórðungi. Þar kom meðal annars fram að endurskoðun á virðisrýrnunarprófum félagsins væri ekki lokið og því óljóst hver heildargjaldfærsla vegna virðisrýrnunar myndi verða á fjórða ársfjórðungi. ,,Nú þegar vinna við endurskoðun er lengra komin er ljóst að þörf er á frekari niðurfærslu eigna þ.m.t. hluta af viðskiptavild. Aðrar eignir félagsins hafa auk þess verið endurmetnar og verðmæti þeirra fært niður í bókum félagsins," segir í tilkynningu. Viðskiptavild félagsins hefur vaxið mjög á síðustu árum í kjölfar mikilla fjárfestinga í fyrirtækjum, segir í tilkynningunni. ,,Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hafa verið framkvæmd virðisrýrnarpróf m.a. á viðskiptavild félagsins. Í ljósi aðstæðna á mörkuðum og vegna varfærnissjónarmiða þá þarf að færa niður viðskiptavild félagsins. Ofangreint leiðir til þess að eigið fé félagsins mun verða neikvætt í árslok 2008 um allt að 150 milljónir evra." Eimskipafélagið hefur undanfarna mánuði unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu með innlendum og erlendum ráðgjöfum. Félagið hefur þegar náð samkomulagi við mikinn meirihluta skuldabréfaeigenda um frestun vaxtagreiðslna og afborgana. ,,Félagið hefur einnig náð undirrituðu samkomulagi við hluta af öðrum innlendum og erlendum lánveitendum um frestum vaxtagreiðslna og afborgana. Félagið er jafnframt í viðræðum við aðra lánveitendur og hafa viðbrögð lánveitenda almennt verið jákvæð. Gert er ráð fyrir að sölu eigna í Norður-Ameríku ljúki í febrúar 2009 og mun salan létta verulega á skuldsetningu félagsins. Ekki er ljóst hvert söluverðmætið verður og því er enn óljóst hver áhrifin á sölunni verða endanlega. Eftir söluna á eignum félagsins í Norður-Ameríku verður farið í frekari viðræður við helstu lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu. Félagið hefur nú þegar hafið undirbúning að viðræðum við lánveitendur sem snúa að því að styrkja eiginfjárstöðu félagsins og tryggja framtíðarrekstur þess sem skipafélags."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira