Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Norskur sjávarútvegur vill tugi milljarða kr. í styrki Helstu samtök í norskum sjávarútvegi hafa sameiginlega farið fram á að stjórnvöld útvegi 5 milljarða norskra króna, jafnvirði 85 milljarða kr. til þess að tryggja eðlilegan útflutning sjávarafurða frá Noregi í fjármálakreppunni. 14.1.2009 10:23
Gengi Straums fellur eftir hækkun í vikunni Gengi hlutabréfa í fjárfestingabankanum Straumi féll um 4,03 prósent í dag eftir nokkra hækkun í vikunni. Á eftir fylgir gengi bréfa í Marel Food Systems, sem féll um 2,22 prósent, auk þess sem bréf Össurar lækkaði um 0,21 prósent. 14.1.2009 10:18
Vextir af krónubréfum 14 milljarðar kr. til loka febrúar Vextir af krónubréfum sem eru á gjalddaga fram til loka febrúar munu nema um 14 milljörðum kr.. Þetta kemur fram í veffréttabréfi Landsbankans í dag. 14.1.2009 10:14
Tíu prósent atvinnuleysi í aldurshópnum 16-24 ára Að meðaltali voru 7.400 manns, eða 4% vinnuaflsins , án vinnu og í atvinnuleit á fjórða ársfjórðungi 2008. Atvinnuleysi mældist 5,1% hjá körlum og 2,9% hjá konum. 14.1.2009 09:46
Aldrei meiri afgangur af vöruskiptum í desember Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember 2008 nam útflutningur 54,0 milljörðum króna og innflutningur 29,9 milljörðum króna. Vöruskiptin í desember,voru því hagstæð um 24,1 milljarð króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 14.1.2009 09:42
Hlutur Exista og Chris Ronnie í JJB Sports til Kaupþings Hlutur Exista og Chris Ronnie í sportvörukeðjunni JJB Sports er kominn í eigu Kaupþings í því sem Financial Times kallar dularfull viðskipti. Í breska blaðinu Times er hinsvegar sagt að um einfalt veðkall hafi verið að ræða. 14.1.2009 09:06
Asísk bréf hækka í fyrsta sinn í fimm daga Hækkun varð á asískum hlutabréfum í fyrsta sinn í fimm daga þegar bréf orkuframleiðenda og hátæknifyrirtækja tóku sveiflu upp á við. 14.1.2009 08:16
Guðjón stofnar Hugmyndaráðuneyti „Mér hefur fundist vanta vettvang fyrir fólk til að hittast í raunveruleikanum og mynda tengsl,“ segir Guðjón Már Guðjónsson, frumkvöðull og leiðbeinandi, löngum kenndur við Oz. 14.1.2009 00:01
FME lét rannsaka Fjármálaeftirlitið (FME) segist hafa fengið til liðs við sig sérstaka sérfræðinga í bókhaldsrannsóknum til að aðstoða sig. Slíkir sérfræðingar eru upp á ensku nefndir Forensic accountants og munu oft vera fengnir til að fara yfir stöðu fyrirtækja og sigta út allt úr bókum félaga sem vekur grunsemdir eða orkar tvímælis. 14.1.2009 00:01
Félagsleg lán eru ekki rót vandans Bandarísku fasteignalánasjóðirnir Fannie Mae og Freddie Mac hafa verið í brennipunkti fjármálakreppunnar. Spurningar hafa vaknað um ábyrgð þeirra á hruninu. Einnig hefur verið horft til laga sem skylduðu banka til að veita minnihlutahópum fasteignalán. 14.1.2009 00:01
Stoðir segjast ekki hafa tekið stöðu gegn krónunni Eignarhaldsfélagið Stoðir, sem áður hét FL Group, tók ekki stöðu gegn íslensku krónunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hefur sagt að komi það í ljós að grafið hafi verið grafið undan fjármálakerfinu þá hafi það átt stóran þátt í bankahruninu og það þurfi að rannsaka sérstaklega. 13.1.2009 19:51
Elín sækir ekki um sem bankastjóri í Nýja Landsbankanum Elín Sigfúsdóttir, núverandi bankastjóri Nýja Landsbankans, ætlar ekki að sækja um stöðuna sem bankaráð bankans ákvað í dag að auglýsa lausa til umsóknar. Auglýsingin mun birtast á næstu dögum en Elín mun gegna stöðunni þar til nýr bankastjóri hefur verið ráðinn. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 13.1.2009 18:18
Toyota mest seldi bíllinn nítjánda árið í röð Mest seldi bíllinn árið 2008 var Land Cruiser 120 en 485 bílar af þeirri gerð voru skráðir á síðasta ári. Í öðru sæti er Yaris með 478 nýskráningar. Af tíu vinsælustu fólksbílunum hér á landi á síðasta ári eru fimm frá Toyota. 13.1.2009 16:46
Hafnar athugasemdum um óeðlileg hagsmunatengsl Blaðamannafélagið vinnur að málum fyrrverandi starfsmanna Viðskiptablaðsins með sama hætti og unnið var að málum varðandi þrotabú gamla Fréttablaðsins, segir Arna Schram 13.1.2009 15:45
Styrktarsjóður Oxford háskóla tapar miklu á íslensku bönkunum Uppgjör fyrir síðasta ár hjá styrktarsjóði Oxford háskólans sýnir að sjóðurinn hefur minnkað um 14% á árinu. Er það einkum vegna taps sjóðsins á hruni íslensku bankana í haust sem kostaði Oxford um 30 milljón pund eða hátt í 6 milljarða kr. 13.1.2009 15:30
Seldi 100.000 flugmiða á einum degi Norska lágjaldflugfélagið Norwegian, fyrrum samstarfsaðili Sterling á Norðurlöndunum, seldi 100.000 flugmiða á einum degi nú eftir áramótin. Er þetta mesta flugmiðasala á einum degi í sex ára sögu félagsins. 13.1.2009 15:19
Jólaverslunin: Samdráttur í fyrsta sinn frá 2001 Velta í dagvöruverslun dróst saman um 10,4 prósent á föstu verðlagi í desember miðað við sama mánuð árið áður. Á breytilegu verðlagi jókst veltan um 18,2 prósent á sama tímabili. Þetta þýðir að jólaverslunin minnkaði að raunvirði þó neytendur hafi þurft að verja fleiri krónum til innkaupanna en árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 32 prósent á einu ári, frá desember 2007 til desember 2008, að því er fram kemur í smásöluvísitölu Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst. 13.1.2009 14:33
Sveitarstjórn var vöruð við Icesave í mars Sveitarstjórnin í Lincolnshire í norðausturhluta Englands var vöruð við Icesave og Singer & Friedlander reikningum sínum í mars á síðasta ári og aftur í maí. Þetta kemur fram á vefsíðu BBC. 13.1.2009 14:10
Nýr stjóri hjá dótturfyrirtæki Marel í Bretlandi Roy Mercer hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri AEW Delford Systems, dótturfyrirtækis Marel Food Systems í Bretlandi, frá og með 1. febrúar n.k. 13.1.2009 13:29
Vefur Kaupþings valinn með 10 bestu í heiminum Hið virta bandaríska fyrirtæki, Nielsen Norman Group sem sérhæfir sig í rannsóknum og ráðgjöf á sviði notendahæfis og notendaviðmóts vöru, þjónustu, hugbúnaðar og vefja, hefur valið innrivef Kaupþings sem einn af 10 bestu í heiminum árið 2009. 13.1.2009 13:01
Síðasti eigandi Nyhedsavisen er gjaldþrota Morten Lund, síðasti eigandi Nyhedsavisen í Danmörku, var lýstur gjaldþrota við Sjó- og kaupréttinn í Kaupmannahöfn í dag. 13.1.2009 12:43
Reikna með líflegri útgáfu ríkisbréfa Líklegt er að útgáfa ríkistryggðra skuldabréfa verði lífleg á árinu, en þó á ríkissjóður að öllum líkindum enn talsvert lausafé í handraðanum til að mæta ört vaxandi fjármögnunarþörf. 13.1.2009 12:26
Findus í þrot í Bretlandi vegna Landsbankans Enn berast fréttir af vandræðum erlendra fyrirtækja vegna íslenska bankahrunsins í haust. Nú hefur matvælafyrirtækið Findus í Newcastle í Bretlandi óskað eftir greiðslustöðvun og eru 430 störf þar á bæ í hættu. Landsbankinn var helsti lánveitandi fyrirtækisins. 13.1.2009 11:17
Krónubréf upp á 98 milljarða á gjalddaga fyrir lok febrúar Krónubréf að upphæð 98 milljarðar kr. eru á gjalddaga fyrir lok febrúar. Stærsti einstaki gjalddaginn er 28 janúar þegar 40 milljarðar eiga að greiðast en útgefandinn að þeim bréfum er Rabobank í Hollandi. 13.1.2009 10:46
Enn hækkar Straumur Gengi hlutabréfa í Straumi hafa haldið áfram að hækka í dag, annan daginn í röð. Hækkunin nú nemur 7,08 prósentum og er jafnframt eina hækkun dagsins. Gengi bréfa í fjárfestingabankanum hrundi um rúm 26 prósent á föstudag og fór til skamms tíma undir krónu á hlut. 13.1.2009 10:43
Iceland bætir við sig 2.500 starfsmönnum Breska matvörukeðjan Iceland hefur keypt 51 verslun, sem áður voru reknar af Woolworths verslanakeðjunni í Bretlandi. Reiknað er með, að við kaupin bæti Iceland við sig 2.500 nýjum starfsmönnum. 13.1.2009 09:48
Fitch Ratings hættir að meta gömlu bankana þrjá Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að það muni ekki birta frekari lánshæfiseinkunnir eða greiningar vegna gömlu bankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans. 13.1.2009 09:19
Alcoa greinir frá fyrsta tapi sínu í sex ár Alcoa, stærsti álframleiðandi Bandaríkjanna, hefur greint frá fyrsta tapi sínu í sex ár. Samkvæmt uppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung síðasta árs nam tap Alcoa 1,2 milljörðum dollara eða um 130 milljörðum kr.. Til samanburðar nam hagnaður Alcoa fyrir sama tímabil árið áður 632 milljónum dollara eða um 70 milljörðum kr.. 13.1.2009 09:05
Sjóður í eigu Milestone í London á leið í greiðslustöðvun Fjárfestingarsjóðurinn Kcaj í London, sem er í meirihlutaeigu Milestone, gæti farið í greiðslustöðvun í þessari viku. Þetta kemur fram í Financial Times í dag. 13.1.2009 08:53
Ekkert lát á lækkun hlutabréfa í Asíu Hlutabréf á Asíumörkuðum héldu áfram að lækka í verði í morgun og var lækkun sumra hlutabréfavísitalna sú mesta í einn mánuð. 13.1.2009 08:08
Olíuverð lækkar áfram á heimsmarkaði Olía heldur áfram að lækka á heimsmarkaði á ný, eftir að hafa verið komin upp undir 40 dollara á tunnuna. Nú er verðið komið niður í rúma 37 dollara vestanhafs. 13.1.2009 07:19
Hlustuðu ekki á viðvaranir um Icesave Bæjarstjórnin í Norðaustur Lincolnskíri í Bretlandi sem átti 7 milljónir breskra punda á Icesave reikningum Landsbankans hlustaði ekki á aðvaranir sem komu fram í vikulegum skýrslum sem bæjarstjórninni barst frá fjármálaráðgjöfum sínum. Frá þessu er greint á fréttavef BBC í dag. Peningarnir sem bæjarfélagið tapaði jafngilda 1,3 milljarði króna. 12.1.2009 21:08
Afskrifa strax 75 milljarða kr. af kröfum á fjármálafyrirtæki Nú liggur ljóst fyrir að ríkissjóður mun afskrifa strax 75 milljarða kr. af þeim kröfum sem Seðlabankinn (SÍ) á á hendur fjármálafyrirtækja í landinu. 12.1.2009 16:42
Straumur hækkaði mest eftir mikið hrun Gengi hlutabréfa í fjárfestingabankanum Straumi hækkaði um 7,6 prósent í dag og er það mesta hækkun dagsins. Á föstudag féll gengi bréfa í bankanum um 26 prósent. 12.1.2009 16:33
Seðlabankinn frestar upplýsingum um efnahags sinn Ákveðið hefur verið að fresta næstu reglulegu birtingu úr efnahag Seðlabanka Íslands um tvo daga. 12.1.2009 16:24
Alcoa féll um 6,6% eftir að Deutche Bank mælti með sölu Hlutir í álrisanum Alcoa hafa fallið um 6,6% á Wall Street í dag en markaðurinn þar hefur verið í niðursveiflu frá opnuninni. Lækkunin kom í kjölfar þess að greining Deutche Bank mælti með sölu á hlutum Alcoa en félagið á Fjarðarál á Reyðarfirði. 12.1.2009 16:18
Stofnandi Biva ánægður með kaup Straums Fjónbúinn Henry Johansen, stofnandi Biva, er ánægður með kaup Straums á húsgagnakeðjunni. "Þetta var verulega góð lausn," segir Johansen. "Áframhaldandi rekstur er tryggður og það er aðalatriði málsins." 12.1.2009 15:37
Microsoft Íslandi heldur risaráðstefnu Microsoft Íslandi stendur fyrir risaráðstefnu dagana 19. og 20. janúar. Þar verður farið yfir það mikilvægasta sem fram kom á alþjóðlegu ráðstefnunum TechEd og Convergence sem haldnar voru undir lok síðasta árs í Bandaríkjunum og Danmörku. Ráðstefnan er ætluð tæknimönnum, forriturum og stjórnendum og verður aðgangur ókeypis. 12.1.2009 14:46
Lloyd´s segir að skipa- og viðlagatryggingar muni stórhækka Einn af helstu eigendum alþjóðlega tryggingarfélagsins Lloyd´s í London segir að framundan séu miklar hækkanir á skipa-. eigna- og viðlagatryggingum í heiminum. Eigandinn, tryggingarfélagið Amlin, telur að þessar tryggingar muni hækka um 20% í ár. 12.1.2009 14:33
Rússar skrúfa frá gasinu til Evrópu á morgun Evrópubandalagið og Rússland hafa komist að samkomulagi um gasflutninga til ERvrópu og munu Rússar skrúfa frá gasinu til Evrópu klukkan sjö í fyrramálið. Þetta kemur fram á Reuters fréttaveitunni. 12.1.2009 14:08
Straumur kaupir dönsku húsgagnakeðjuna Biva Straumur hefur fest kaup á dönsku húsgagnakeðjunni Biva og kemur jafnframt með nýtt fjármagn inn í keðjuna. Þar með er vinnu 350 manns hjá Biva Möbler Odense bjargað fyrir horn. 12.1.2009 13:52
Frekari lækkun lánshæfiseinkunna ríkissjóðs yrði álitshnekkir Ef lánshæfiseinkunnirnar ríkissjóðs lækka frekar fara þær niður fyrir þau mörk sem almennt eru talin skilja á milli hágæða skuldabréfa og annarra skuldabréfa, og væri það töluverður álitshnekkir. 12.1.2009 12:03
Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um 11% í fyrra Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um 11% að raungildi á frá upphafi síðasta árs til nóvemberloka. Eignastaðan batnaði þó heldur í nóvembermánuði, þótt stærstur hluti nafnaukningar eigna hafi verið vegna þess hve gengi krónu var lágt í nóvemberlok. 12.1.2009 11:30
Straumur hækkar eftir hrun Gengi hlutabréfa í Straumi hefur hækkað um 3,8 prósent í Kauphöllinni í dag í kjölfar um 26 prósenta hruns á föstudag. Á eftir fylgir gengi bréfa í Össuri, sem hefur hækkað um 0,93 prósent, og Century Aluminum, sem hefur hækkað um 0,7 prósent. 12.1.2009 10:51
Skuldabréf Landic sett á Athugunarlista kauphallarinnar Skuldabréf í fjórum flokkum útgefin af Landic Property hf., hafa verið færð á Athugunarlista kauphallarinnar með vísan til tilkynningar frá félaginu, dags. 9. janúar 2009, um greiðsluerfiðleika félagsins, að því er segir í tilkynningu frá kauphöllinni. 12.1.2009 10:39